Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 42
Rúmt ár er liðið frá því að ís-lensk stjórnvöld tilkynntu aðþau hygðust sækjast eftir sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna þegar kosið yrði í ráðið haust- ið 2008. Ef framboðið verður árang- ursríkt mun Ísland verða fámenn- asta ríkið í sögunni til að taka sæti í ráðinu. Markmiðið er metnaðar- fullt enda komst þáverandi utanrík- isráðherra svo að orði að fyrst og síðast væri framboðið spurning um áræði og metnað fyrir hönd Íslands á alþjóðavettvangi. „Það er engum vafa undirorpið að óneitanlega væri ódýrara og mun þægilegra að sitja heima með hendur í skauti og láta öðrum þjóðum það eftir að takast á við heimsmálin og bera kostnað af því,“ sagði ráðherrann. Málsvari smáríkja í Öryggisráðinu Frá því að Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, til- kynnti um framboð Íslands til setu í Öryggisráðinu síðastliðið haust hafa áherslur Íslands verið að mótast. Ís- land verður fámennasta ríkið til taka sæti í Öryggisráðinu ef allt gengur að óskum. Þess vegna kemur ekki á óvart að rauður þráður í áherslum Íslands er að vera málsvari smáríkja og halda á lofti þeirra sjónarmiðum í Öryggisráðinu. Í ræðu á Alþingi 13. október síð- astliðinn, þar sem utanríkisráð- herra kynnti ákvörðun ríkisstjórn- arinnar um framboð Íslands fyrir þingheimi, sagði Halldór Ásgríms- son að sú ákvörðun byggði á þeirri sýn að Ísland geti með sérstökum hætti miðlað af eigin reynslu og að- stöðu í þágu aðildarríkjanna allra. Ísland hefur sérstaka aðstöðu sem efnað smærra ríki með góð tengsl við helstu áhrifavalda í heiminum. Draga mætti hagnýtar ályktanir af hraðri vegferð Íslands frá örbirgð til auðlegðar og síðar aðstoð við efnahagsþróun fátækari ríkja. Í ræðu sem Geir H. Haarde flutti á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í september síðastliðnum í fjarveru Davíðs Oddssonar kem- ur áhersla á framboð Íslands sem smáþjóðar enn betur fram. Þar sagði Geir að á sama hátt og skipan Öryggisráðsins tæki mið af mark- miðinu um sem jafnasta dreifingu aðildarríkja eftir hnattstöðu væri einnig mikilvægt að sjónarmið smærri ríkja og þau mál sem þau varðaði sérstaklega væru til um- fjöllunar í ráðinu. Jón Hákon Magnússon, formað- ur Samtaka um vestræna sam- vinnu, segir að fyrsta verk Íslands í Öryggisráðinu, ef framboðið ber árangur, eigi að vera að festa sig í sessi sem málsvari hinna smærri ríkja. „Þau ríki eru alla jafna miklu friðsamari en þau stærri og ef smáu ríkin standa saman geta þau komið mjög miklu til leiðar. Við munum ekki áorka miklu ein og sér í Öryggisráðinu og þess vegna eigum við að byrja á því að festa okkur í sessi þar og marka okkur stöðu með því að tala máli smærri ríkja.“ Í áðurnefndri ræðu Halldórs Ás- grímssonar nefndi hann þrjú atriði sem sérstök áhersla yrði lögð á í kynningu á framboði Íslands; í fyrsta lagi framlag Íslands til frið- ar og stöðugleika í heiminum, í öðru lagi að Ísland myndi stuðla að umbótum á Öryggisráðinu og í þriðja lagi afvopnunarmál með sér- stakri áherslu á vinnu gegn út- breiðslu gereyðingarvopna. Friður og öryggi Hvað fyrsta atriðið í þessari upptalningu varðar leiðir það bein- línis af hlutverki Öryggisráðsins en samkvæmt 24. gr. Sáttmála Sameinuðu þjóðanna fela aðildar- ríki SÞ ráðinu það hlutverk að gæta heimsfriðar og öryggis. Sú spurn- ing kann að vakna hvort staða Ís- lands kunni að veikjast að þessu leyti vegna stuðnings ríkisstjórn- arinnar við hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna og Breta í Írak, sem strangt til tekið fengu ekki blessun Öryggisráðsins. Kunnugir segja þó að í sjálfri kosningabarátt- unni velti stuðningur ríkja ekki á slíkum atriðum. „Íslendingar hafa alltaf verið í fararbroddi þeirra þjóða sem aðhyllast frið og öryggi. Þó að við höfum tekið þá afstöðu að vera í Atlantshafsbandalaginu hef- ur okkar áhersla alltaf verið sú að það eigi að leysa deilumál með frið- samlegum hætti. Við erum mjög trúverðugur kandídat í Öryggis- ráðið að þessu leyti,“ sagði Pétur Leifsson þjóðréttarfræðingur í samtali við Fréttablaðið. Aðrir sem rætt var við telja að afstaða Ís- lands í Íraksmálinu kunni að vinna gegn framboðinu, sérstaklega þar sem hvorugt ríkið sem einnig sæk- ist eftir hinu lausa sæti, Tyrkland og Austurríki, tilheyrði fylkingu hinna fúsu. Afvopnunarmál hafa verið mjög í brennidepli á síðustu misserum og því kemur ekki á óvart að lögð skuli sérstök áhersla á þau. Ekki er ósennilegt að afvopnunarmálin komi í ríkari mæli til kasta Örygg- isráðsins á næstu árum eftir því sem fleiri ríki koma sér upp kjarn- orkuvopnum. Nú þegar hefur ráðið samþykkt ályktanir sem beinast gegn kjarnorkuáætlun Íraka og einnig beinast sjónir manna að Norður-Kóreu. Umbætur á Öryggisráðinu Hvað varðar umbætur á Örygg- isráðinu hefur Ísland nú þegar markað sér nokkuð skýra stefnu. Á síðustu árum hefur gætt vaxandi óþreyju með núverandi skipan þar sem fimm aðildarríki Sameinuðu þjóðanna, sigurvegarar síðari heimsstyrjaldar, fara með neitun- arvald í ráðinu, þó svo að valdahlut- föll á alþjóðavettvangi hafi gjör- breyst frá lokum heimsstyrjaldar- innar. Ríki sem greiða verulegan kostnað af starfi Sameinuðu þjóð- anna, til að mynda Þýskaland og Japan, hafa krafist þess að fá fasta- fulltrúa í ráðinu, sem og fjölmenn- ari ríki heims á borð við Indland. Í áðurnefndri ræðu Geirs H. Haarde á Allsherjarþinginu í sept- ember síðastliðnum sagði hann að niðurstaða yrði að fást í umræðum sem staðið hafa yfir í mörg ár um að fjölga fulltrúum í Öryggisráð- inu. Sagði Geir að nýta yrði tæki- færið við þá fjölgun og gera þær breytingar á ráðinu að það endur- speglaði betur þann mikla fjölda ríkja sem aðild á að Sameinuðu þjóðunum, auk þess að gera ráðið skilvirkara. Við þetta tækifæri nefndi Geir sérstaklega Þýskaland, Indland, Japan og Brasilíu en bætti við að jafnframt væri mikilvægt að Afríkuríki ættu fastafulltrúa í ráð- inu. Þessi yfirlýsing markar þá stefnu sem Ísland hefur tekið í hinu umdeilda máli sem lýtur að umbætum á Öryggisráðinu. Mikilvæg jaðaráhrif Útilokað er að spá fyrir um hvernig atkvæði muni falla í Alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna síðari hluta árs 2008 þegar þau fimm aðildarríki sem sitja munu í Öryggisráðinu frá 1. janúar 2009 til 31. desember 2010 verða kjörin. Ís- land hefur á síðustu mánuðum tekið upp stjórnmálasamband við fjölmörg þeirra eitt hundrað af 191 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna sem ekki voru í stjórnmálasam- bandi við Ísland áður. Þetta er einn liðurinn í því að koma áherslum Ís- lands á framfæri í þeirri von að viðkomandi ríki greiði Íslandi at- kvæði sitt. Nokkrar þjóðir hafa þegar lofað stuðningi en fara verð- ur varlega í það að telja þau at- kvæði komin í hús. Fyrsta verkefnið er vitaskuld að ná kjöri en þá tekur við verkefni sem ekki er síður umfangsmikið og vandasamt, en það er aðuppfylla þær skyldur og axla þá ábyrgð sem því fylgir að sitja í Öryggisráðinu. Pétur Leifsson þjóðréttarfræðing- ur segir að hlutverk Öryggisráðs- ins sé í seinni tíð orðið afar marg- þætt og nauðsynlegt fyrir aðildar- ríki þess að setja sig vel inn í alla þá málaflokka sem undir ráðið heyra. „Burtséð frá þeim áherslum sem við ætlum að beita okkur fyrir, verðum við að standa klár á því að geta sinnt þeim skyldum sem við tökum okkur á herðar með setu í ráðinu,“ segir Pétur, sem leggur stund á doktorsnám í þjóðarétti í Rotterdam og hefur sérhæft sig í alþjóðlegum öryggismálum. Pétur segir að ef Ísland nær kjöri í Öryggisráðið muni það styrkja mjög öryggishagsmuni landsins. En aðild fylgir margvís- legur ávinningur annar. „Við megum ekki leiða hjá okkur þau já- kvæðu áhrif sem seta okkar myndi hafa á okkar eigin hag. Við megum ekki gleyma jaðaráhrifunum í tengslum við aðrar alþjóðastofnan- ir. Að hafa sæti í ráðinu gefur okk- ur sérstakan aðgang á alþjóðavett- vangi. Ég tel að ef rétt er haldið á málum geti þetta gefið okkur mun sterkari stöðu en áður til að koma málum á framfæri,“ segir Pétur og nefnir sérstaklega önnur brýn hagsmunamál Íslendinga, einkum í hafréttarmálum. Fjögur ár til stefnu Framboð Íslands var ákveðið með góðum fyrirvara. Fastlega má reikna með því að aukinn þungi færist í framboðsvinnunna eftir því sem nær líður. Búast má við einhverjum tilfærslum í utanríkis- þjónustunni og jafnvel fjölgun starfsmanna sem vinna að fram- boðinu. Ljóst er að kostnaður vegna framboðsins verður veru- legur og þykir kannski ýmsum árs- seta í Öryggisráðinu dýru verði keypt, að ekki sé minnst á að alls óvíst er hvort markmiðið með framboðinu náist. Hins vegar má velta því fyrir sér hvort framboðið sé ekki verð- ugt markmið í sjálfu sér og muni skila Íslendingum ávinningi til lengri tíma litið í formi öflugri ut- anríkisþjónustu. Íslendingar eiga mikilla hagsmuna að gæta á ákveðnum sviðum alþjóðamála. Eins og að framan greinir telja sér- fræðingar að jaðaráhrifin af setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna yrðu afar jákvæð og vera Íslands þar myndi styrkja hagsmunagæslu landsins á öllum sviðum alþjóða- mála. borgar@frettabladid.is Ef Ísland nær kjöri í Öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna árið 2008 verður það fámennasta ríkið til að taka sæti í ráðinu frá upphafi. Grænhöfðaeyjar tóku sæti í Öryggisráðinu árið 1992 en þá voru íbúar þar rúmlega 361 þúsund. Fimm ríki eiga fastafulltrúa í Öryggisráðinu en allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna kýs í öryggisráðið tíu aðra úr hópi að- ildarríkja SÞ. Samkvæmt Sátt- mála Sameinuðu þjóðanna skal tekið tekið tillit til tveggja þátta við atkvæðagreiðsluna í þing- inu. Í fyrsta lagi að hvaða leyti þau aðildarríki sem í framboði eru hafa stuðlað að varðveislu heimsfriðar og öryggis og unnið að markmiðum bandalagsins að öðru leyti. Í öðru lagi skal tekið tillit til sem jafnastrar dreifing- ar eftir hnattstöðu. Í framkvæmd hefur þetta þróast þannig að einstökum svæðum, eins og til að mynda Norðurlöndunum, gefst kostur á því með ákveðnu millibili að velja úr sínum hópi fulltrúa sem keppir þá við fulltrúa úr sama heimshluta um laust sæti. Þannig keppa Íslendingar nú við framboð Austurríkis og Tyrklands. Sé litið til Norðurlandanna þá hafa Svíar þrívegis tekið sæti í Öryggisráðinu, árin 1957, 1975 og 1997, Noregur fjórum sinnum, árin 1949, 1963, 1979 og 2001, Danmörk þrisvar sinn- um, árin 1953, 1967 og 1985, og Finnland tvívegis, árin 1969 og 1989. ■ 30 16. október 2004 LAUGARDAGUR Smæst hinna smáu SMÁRÍKI Í ÖRYGGISRÁÐINU Land Ár Íbúafjöldi á þeim tíma Máritanía 1974-1975 837 þús. Gabon 1978-1979 726 þús. Gyuana 1982-1983 761 þús. Malta 1983-1984 355 þús. Trinidad og Tobago 1985-1986 1.166 þús. Grænhöfðaeyjar 1992-1993 361 þús. Djibouti 1993-1994 393 þús. Botswana 1996-1997 1.504 þús. Guinea-Bissau 1996-1997 1.165 þús. Bahrein 1998-1999 611 þús. Gabon 1998-1999 1.160 þús. Máritanía 2001-2002 1.190 þús. Ísland? 2008-2009 304 þús. skv. spám. Áræði og metnaður á alþjóðavettvangi Á næstu fjórum árum munu ís- lensk stjórnvöld safna atkvæðum meðal aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna vegna framboðs Íslands til setu í Öryggisráðinu. Verkefn- ið er í senn umfangsmikið og metnaðarfullt en óvíst er hvort markmiðið náist. Ávinningur Ís- lands af setu í ráðinu yrði mikill. VALDAMESTA STOFNUN HEIMS Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er valdamesta stofnun heims. Þáverandi utanríkisráðherra sagði að framboð til setu í ráðinu væri fyrst og síðast spurning um áræði og metnað fyrir hönd Íslands á alþjóðavettvangi. NÚVERANDI AÐILDARRÍKI ÖRYGGISRÁÐSINS Ríki Lok kjörtímabils Alsír 31. desember 2005 Angóla 31. desember 2004 Bandaríkin Varanlegur aðili Benín 31. desember 2005 Brasilía 31. desember 2005 Bretland Varanlegur aðili Chile 31. desember 2004 Filippseyjar 31. desember 2005 Frakkland Varanlegur aðili Kína Varanlegur aðili Pakistan 31. desember 2004 Rúmenía 31. desember 2005 Rússland Varanlegur aðili Spánn 31. desember 2004 Þýskaland 31. desember 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.