Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 8
8 16. október 2004 LAUGARDAGUR Íbúasamtök Kjalarness átelja seinagang vegna lagningar Sundabrautar: Vilja að framkvæmdir hefjist á Kjalarnesi SAMGÖNGUR Íbúasamtök Kjalar- ness átelja þann seinagang sem orðið hefur í lagningu Sunda- brautar. „Við erum orðin þreytt á marg- endurteknum loforðum um gerð Sundabrautar,“ segir í ályktun samtakanna sem afhent hefur verið borgarstjóra Reykjavíkur. Hafsteinn Númason, stjórnarmað- ur í íbúasamtökunum, segir að Sundabrautin hafi verið notuð sem gulrót við sameiningu Kjalar- neshrepps og Reykjavíkurborgar og að tími sé kominn til að efna loforðin. Upphaflega hafi átt að byrja á Sundabrautinni árið 2002 en ekkert hafi gerst. „Við viljum fara að sjá ein- hverja hreyfingu á þessu og skor- um á þingmenn landsbyggðarinn- ar að taka undir með okkur,“ seg- ir Hafsteinn. „Það er ekki bara verið að gera þetta fyrir Kjalnes- inga heldur landsmenn alla. Þetta styttir leiðina vestur um land um tuttugu kílómetra.“ Til að flýta fyrir framkvæmd- um leggja íbúasamtökin til að byrjað verði á framkvæmdum á Kjalarnesi. Það sé hægt þó ekki sé búið að ákveða nákvæmlega legu Sundabrautarinnar sunnan megin, hvort byggð verði hábrú, botn- göng eða farin svokölluð eyjaleið. -th Dráp kattarins Pjakks hefur eftirmála fyrir hundahald: Banna vígahunda í borgarlandinu HUNDAHALD Atvik eins og það sem átti sér stað í Breiðholti síðasta föstudag þegar tveir stórir hund- ar, Rottweiler og Doberman, rifu kött í sig geta væntanlega ekki átt sér stað í framtíðinni ef hug- myndir sem nú eru uppi innan borgarkerfisins verða að veru- leika „Það stefnir í að svona víga- hundar, eins og ég vil kalla þá, verði bannaðir innan borgar- markanna,“ segir Stefán Jón Hafstein, varaformaður borgar- ráðs. Kötturinn Pjakkur, sem hundarnir slitu í sundur, var ekki sá eini sem fékk að kenna á hundunum. Þeir veltu um barna- vagni með barni í og ollu ótta meðal íbúa í Seljahverfi þar sem það liggur að Salahverfi í Kópa- vogi. Meðal þeirra hugmynda sem eru uppi er að tiltekið verði hvaða hunda megi ekki vera með innan borgarsvæðisins. Stefán Jón segir jafnframt áhuga fyrir því setja mun strangari reglur um hundahald sumra þeirra teg- unda sem þykir ekki rétt að banna en talin er ástæða til að hafa eftirlit með. - bþg Vopnað rán: Hélt hnífi að hálsi konu DÓMSMÁL Rétt rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður af Ríkissaksóknara fyrir vopnað rán, ásamt óþekktum samverkamanni, í myndbandaleigu í mars 2002. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Maðurinn er sagður hafa komið inn í söluturninn Videóspóluna á Holtsgötu og ógnað afgreiðslukonu með hnífi sem hann bar að hálsi hennar. Þá er hann sakaður um að hafa ýtt konunni upp að vegg og niður á gólf þar sem hann hélt henni á meðan samverkamaðurinn stal tæpum sextíu þúsundum króna úr peningakassanum. ■ SVONA ERUM VIÐ SJÓMENN SEX OG HÁLFT ÁR ÁN SAMNINGA Hótel Héra› er alfljó›legt hótel sem mætir væntingum gesta í hvívetna. Á hótelinu er gó› a›sta›a til a› halda fundi e›a veislur. Hóteli› er mjög spennandi kostur fyrir flá sem vilja breyta til og njóta fless a› kynnast Austurlandi. Vertu velkominn! Sími: 471 1500 www.icehotels.is N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 1 3 3 8 9 Nordica • Loftlei›ir • Flughótel • Flú›ir • Rangá • Klaustur • Héra› HÓTEL HÉRA‹ fi E G A R H A L D A Á G Ó ‹ A N F U N D 703 KM TIL REYKJAVÍKUR ALfiJÓ‹LEGT HÓTEL BESTA RÁ‹STEFNUA‹STA‹A Á AUSTURLANDI DAGSFER‹IR Á KÁRAHNJÚKASVÆ‹I‹ Þingsályktun: Vilja ESB til Íslands STJÓRNMÁL Lögð hefur verið fram þingsályktunartillaga á Alþingi um að utanríkisráðherra verði falið að óska eftir því við Evrópu- sambandið að „sendiráð“ þess verði flutt til Íslands. Ágúst Ólaf- ur Ágústsson, fyrsti flutnings- maður tillögunnar, segir að það sé með ólíkindum að Evrópusam- bandið hafi ekki „sendiráð“ eða fastanefnd á Íslandi, ekki síst í ljósi þess að Ísland hafi sendiráð í Brussel. Fastanefndin í Osló fjalli um málefni Íslands en af 20 starfsmönnum sé aðeins einn Ís- lendingur: „Ísland er nánast eina Evrópuríkið sem ekki hefur slíkt sendiráð. Ég held að það myndi auka skilning Evrópusambands- ins á okkar afstöðu og hagsmun- um ef fastanefndin væri hér á landi.“ Í þingsályktunartillögunni er bent á að 60% útflutnings Íslands fari til Evrópusambandsins að ógleymdu mikilvægi EES-samn- ingsins. Framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins hefur fasta- nefndir á 130 stöðum í heiminum. -ás EYJALEIÐ Myndin sýnir hvernig Sundabrautin myndi liggja af farin yrði svokölluð eyjaleið. STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson, Vinstri græn- um, mælti í gær fyrir frumvarpi til laga sem gerir ráð fyrir að fjár- m a g n s t e k j u s k a t t u r hækki úr tíu í átján pró- sent. Ögmundur segjist í greinargerð vilja að brugðist verði við breyt- tu tekjumynstri í þjóð- félaginu og því óréttlæti sem stafar af misræmi í skattlagningu fjár- magnstekna og launa. „Vinnandi fólk greiðir af launum sínum rúm 38,5%. Tekjur þeirra auðugustu í landinu eru aftur á móti mestmegnis fjármagnstekjur og borga aðeins 10% skatt.“ Pétur H. Blöndal, þing- maður Sjálfstæðisflokks- ins, sagði flutningsmann á viligötum: „Hann lifir á því að það sé til láglaunafólk,“ og vitnaði til forystu Ög- mundar í BSRB. Sagði Pét- ur að ríkisstjórnin ynni að því að fólk gæti sloppið úr fátækragildrum, til dæmis atvinnuleysi og örorkubót- um. Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna, sagði málflutning Péturs einfeldningslegan, ekki væri jafn einfalt að komast af örorkubótum og Pétur léti í veðri vaka. -ás ROTTWEILER Hundur þessarar gerðar réðist ásamt Doberman-hundi á kött og reif hann í sig í Breið- holtinu í síðustu viku. ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON Með ólíkindum að ekkert ESB-sendiráð sé hér á landi. Fjármagnstekjur: Skatturinn úr 10 í 18 prósent ÖGMUNDUR JÓNASSON IKEA: Barnastólar innkallaðir VERLSUN IKEA hefur innkallað Färgglad-barnastóla þar sem hætta er á að plasttappar á stól- fótunum geti losnað af og það leitt til köfnunarhættu fyrir börn ef þau stinga töppunum upp í sig. Í tilkynningu frá IKEA segir að ekkert slys hafi verið tilkynnt en þar sem öryggi barna sé for- gangsmál hafi verið ákveðið að innkalla stólana. Gallinn kom í ljós við eftirlit í einu vöruhúsa IKEA og var staðfestur við frek- ari prófanir. Ákveðið hefur verið að breyta hönnun plasttappanna til að koma í veg fyrir að þeir losni. ■ Samið/Lög sett Undangengnir dagar án samnings 3. júní 1989 185 20. nóvember 1990 324 27. júlí 1992 315 14. janúar 1994 320 15. júní 1995 365 27. mars 1998 451 19. janúar 2001 397 16. maí 2001 46 Samtals 2.403
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.