Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 17
Rússarnir fari burt Kjarnorkuknúin herskip rúss- neska norðurflotans sem hugs- anlega eru búin kjarnorkuvopn- um hafa nú haldið kyrru fyrir dögum saman á gjöfulum fiski- miðum, rétt fyrir utan 12 mílna mörkin úti af Norðausturlandi. Hvaða þörf hafa Rússar fyrir flotaæfingu við Ísland? Við erum vinaþjóð þeirra. Nær væri að þeir gerðu þetta rétt fyrir utan 12 sjómílna lögsögu Norð- ur-Noregs en þar eru hefð- bundnar siglingaleiðir rúss- neska flotans þegar hann þarf að komast út í Norður-Atlants- haf frá flotastöðvunum á Kóla- skaga. Óásættanlegt er að þessi floti dvelji hér dögum saman. Orr- ustubeitiskip í þessum hópi hef- ur legið undir ámæli vegna lé- legs ástands. Hafi bilun eða slys orðið á leið frá flotaæfingum í Norðursjó gætu Rússar frekar hafa kosið að leita hingað en að s t r ö n d u m Noregs til að forðast á r v e k n i Norðmanna. Ríkisstjórn- in sýnir v í t a v e r t s innuleys i með því að krefjaat ekki nánari skýringa Rússa og heimta að þeir fari. Við erum friðsöm þjóð. Sættum okk- ur ekki við að hafa kjarnorku- skip á landgrunninu okkar. Varnarliðið virðist lítið sinna því að öflugur herskipafloti Rússa sé hér dögum saman. Kjarnorkukafbátur NATO er þó líklega í grennd við skipin. Þá eru rússneskir kafbátar líka skammt undan. Við sendum van- búið og löngu úrelt varðskip á vettvang. Brýnt er að hefja smíði nýrra varðskipa fyrir Landhelgisgæsluna. Síðan ber að nefna þögn ís- lenskra „friðarsinna“ sem löng- um hamast gegn NATO. Þó hef- ur NATO aldrei komið hingað með kjarnorkuflotadeild. Ekki er vitað til að kjarnorkuvopn hafi verið geymd á Keflavíkur- flugvelli. Hvers vegna mótmæla ís- lenskir „friðarsinnar“ ekki kröftuglega fyrir utan rúss- neska sendiráðið, nú þegar vígdrekar liggja dögum saman við landið? Ef einhvern tímann hefur verið tilefni til að skera haus af hrossi og reisa níðstöng vegna flotaheimsóknar þá er það núna. Höfundur er þingflokksfor- maður Frjálslynda flokksins. Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og segja skoðun sína á fréttum blaðsins, viðhorfum sem birtast í blaðinu eða leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Bréf skulu vera stutt og gagnorð, 50–200 orð að lengd. Ritstjórn áskilur sér rétt til að stytta aðsent efni. Vinsamlega sendið efnið í tölvupósti á netfangið greinar@frettabladid.is. 17LAUGARDAGUR 16. október 2004 MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON ALÞINGISMAÐUR Kappræðurnar eru búnar. Stærstu fréttirnar eru þær að John Kerry tókst að sýna kjósendum fram á að hann væri ásættanlegur forseti og það kann að skipta sköpum því meiri- hluti þjóðarinnar telur að Bush hafi ekki staðið sig vel í embætti. Kerry vann kappræðurnar, ekki vegna þess að hann væri svo frábær heldur vegna þess að hann stóð sig framar vonum. Væntingar almennings til Kerrys voru litlar eftir árangursríkar árásir Bush síðan í ágúst. Það má því segja að Bush hafi óafvitandi lagt vopnin upp í hendurnar á keppinaut sínum. Kerry nýtti tækifærið til að sýna fram á yfirgripsmikla þekkingu sína á alþjóðamálum og hann hefur haldið uppi sannfærandi gagnrýni á frammistöðu forsetans í Íraksstríð- inu. Kerry hefur reyndar tekist á síð- ustu þremur vikum að aðgreina Íraksstríðið og baráttuna gegn hryðjuverkum í hugum margra kjós- enda. Nýjar kannanir sýna að kjós- endur leggja nú aukna áherslu á Íraksstríðið meðan vægi baráttunnar gegn hryðjuverkum hefur minnkað í hugum kjósenda. Þetta hjálpar Kerry því Bush er veikari fyrir í Íraksmál- inu meðan hann sækir mesta styrk sinn í hryðjuverkaógnina. Það var greinilegt í þriðju kappræðunum að báðir frambjóðendur reyndu sérstak- lega að höfða til kvenna og óákveð- inna kjósenda, bæði með málflutningi sínum og fasi. Fyrstu kannanir benda til að Kerry hafi náð betur til þessara hópa. Kappræðurnar breyttu gangi bar- áttunnar en þær munu væntanlega ekki ráða úrslitum. Baráttan í gras- rótinni heldur því áfram af fullum krafti. En hér eru tvær þjóðir í land- inu. Önnur er afskipt og lifir afslöpp- uðu lífi. Hana er að finna í þeim tæp- lega 40 ríkjum þar sem úrslitin eru að mestu ráðin. Forsetaframbjóðend- urnar sjást þar aldrei, engar auglýs- ingar eru í fjölmiðlum og áhugi á kosningum er tæplega í meðallagi. Hins vegar er innan við tíu prósent þjóðarinnar sem býr í þeim 11 ríkjum sem eftir standa. Þar er ekki líft fyrir sjónvarpsauglýsingum, símhringing- um, tölvupósti og heimsóknum frá bláókunnugu fólki sem vill hafa vit fyrir þér. Línur hafa skýrst síðustu vikuna í nokkrum ríkjum. Kerry hef- ur náð talsverðri forystu í Oregon, Maryland og New Jersey og Bush í Missouri. Þessi ríki eru því að detta af kortinu. Aðalslagurinn mun standa um Ohio, Pennsylvaniu og Florida. Þar er tvísýnast um úrslit í Ohio. Eng- inn repúblikani í sögunni hefur orðið forseti án þess að vinna Ohio. Margt bendir til þess að sá sem vinnur tvö af þessum þremur ríkjum vinni kosn- ingarnar. Spennan er að verða óbærileg fyrir marga. Sumir hafa sótt í smiðju sagnfræðinnar í leit að hugarró. Þannig hafa spekingar uppgötvað tvær „reglur“ um úrslit forsetakosn- inga sem báðar hafa staðist undan- tekningalaust í meira en 120 ár. Hin fyrri segir að þegar sitjandi forseti hefur leitað eftir endurkjöri á ári sem endar á tölunni 4 hefur hann alltaf sigrað. Bush getur ornað sér við þessa reglu á lokasprettinum. Hins vegar er önnur regla sem sýnir að á eftir forseta sem sat í tvö kjörtímabil hefur alltaf fylgt forseti sem hefur aðeins setið í eitt kjörtímabil. Ef þessi regla heldur núna þá er Kerry á leið- inni í Hvíta húsið. Önnur reglan verð- ur nú undan að láta. Næstu 17 dagar leiða í ljós hvor frambjóðandinn hef- ur söguna með sér. ■ Þjóðirnar tvær í Bandaríkjunum Ameríkubréf SKÚLI HELGASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.