Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 15
Hvers vegna á ekki að tryggja að fyrir- tæki á fjarskiptamarkaði sitji við sama borð? Eru kóngurinn og krónprinsinn á móti samkeppni? Sjálfstæðisflokkurinn gefur sig stundum út fyrir að vilja sam- keppni á sem flestum sviðum en þegar til kastanna kemur þá eru það oft á tíðum einungis orðin tóm. Hver man ekki eftir því þegar foringi flokksins efaðist um að rétt væri að olíufélögin væru látin sæta ábyrgð vegna meintra brota á samkeppnislög- um? Hann gaf í skyn að fésektir myndu einungis koma niður á neytendum en ólíufélögin eru sökuð um sammælast um að fé- fletta neytendur með ólöglegu verðsamráði. Nú virðist krónprinsinn í flokknum, Geir Haarde, vera smitaður af sömu andúð gagn- vart samkeppni í viðskiptum. Geir hefur ekki hirt um að svara ítrekuðum spurningum undirrit- aðs um samkeppnismál, nema með aumum útúrsnúningum. Spurningarnar snúa að því hvort ríkisfyrirtækið Landsími Ís- lands, sem hann ber ábyrgð á, fari að landslögum varðandi samkeppni við fyrirtæki sem bjóða upp á internetþjónustu. Sá ásetningur Sjálfstæðis- flokksins að ætla ekki að að- skilja grunnnet Landssímans er í raun sú aðferð einkavæðingar sem getur án efa komið í veg fyrir samkeppni á fjarskipta- markaði. Nú hafa samkeppnis- aðilar Landssímans kvartað margoft yfir því að ríkisfyrir- tækið misnoti einokunar- og markaðsráðandi stöðu. Heyrst hafa raddir þess efnis að ef grunnnetið verður ekki aðskilið í rekstri einkavædds fyrirtækis þá verði erfiðara um vik fyrir þá sem ætla að veita einokunar- fyrirtæki í einkaeign eðlilega samkeppni, þar sem það mun hafa algera yfirburðastöðu. Við þá breytingu sem varð sl. vor við að samkeppnisvæða raf- orkukerfi landsmanna þá var gerður skýr greinarmunur á þeim sviðum þar sem hægt er að koma á samkeppni og þar sem verður um einokun að ræða. Um flutning raforkunnar um landið sem verður einokun um verður stofnað sérstakt fyrirtæki, Landsnet, til þess að þau raf- orkufyrirtæki sem framleiða orkuna sem eru í samkeppni geti setið við sambærilegar að- stæður. Hvers vegna á ekki að tryggja að fyrirtæki á fjar- skiptamarkaði sitji við sama borð og stofna sérstakt fyrir- tæki um grunnnetið? Ef Sjálfstæðisflokkurinn og B-deild hans, Framsóknarflokk- urinn, myndu vilja tryggja samkeppni á sviði fjarskipta þá væri það forgangsmál að að- skilja grunnnet Símans frá samkeppnisrekstri fyrirtækis- ins. ■ 15LAUGARDAGUR 16. október 2004 Skortur á lýðræði Í dag er umræðan að vakna um lýðræði Íslands, eða skortinn þar á. Lengst af hefur fólk haft það á tilfinningunni að það sé meira eða minna óþarfi að rífa mikinn kjaft yfir stjórnvöldum, þar sem valdið liggi augljóslega á endanum hjá þjóðinni. Undanfarnir atburðir hafa hins vegar sannað það fyrir hverjum sem hefur þorað að horfast í augu við það, að lýðræði á Íslandi er vissulega til stað- ar, en það er nokkuð frábrugðið því sem við höfum haldið. Helgi Hrafn Gunnarssoná politik.is Borga skatta án þjónustu Viðskiptavinur kennara og fjölskyldna er hið opinbera. Hið opinbera heldur áfram að innheimta skatt af fólki, þrátt fyrir að veita ekki þá þjónustu sem innheimt er fyrir. Kennarar eiga í kjaraviðræðum við bákn sem hefur engu að tapa. Viðræð- urnar ganga svo út á að finna þrepskipt launakerfi sem enginn kennari getur starfað utan – og þá skiptir engu hversu hæfileikaríkur hann er. Æskilegri staða væri: Viðskiptavinir kennara og fjöl- skyldna eru fjölmargir einkaskólar í sam- keppni við hvorn annan. SG á uf.is Verkalýðshreyfing og konur Kristján Gunnarsson var kjörinn formað- ur Starfsgreinasambandsins – þvílíkt nafn by the way – í gærkvöldi og sigraði Signýju Jóhannsdóttur í formannskjöri. Björn Snæbjörnsson sigraði Signýju svo í varaformannskjöri. Ætli verkalýðshreyf- ingin fái frasana um að konum sé ekki treyst, konur þar séu greinilega ekki taldar eins hæfar og karlarnir og svo framvegis? Slíkir frasar koma að minnsta kosti jafnan þegar kona í til- teknum stjórnmálaflokki nær ekki þeim árangri sem hún hefði viljað. Vefþjóðviljinn á andriki.is Farsakennt tal Oddvitar ríkisstjórnarflokkanna eru sem kunnugt er miklir áhugamenn um að halda bandarískum hersveitum á Íslandi sem allra lengst. Sérstaklega leggja þeir upp úr öflugum loftvörnum. Ekki láta þeir neitt uppi um meintan óvin; hvort það eru Bretar, Danir, Íranir, Kóreumenn eða Suður-Afríkubúar sem eru taldir lík- legir til að gera loftárás á Ísland. Allt er þetta hálf farsakennt. Ögmundur Jónasson á ogmundur.is Harkan gagnvart Kristni Hún er dæmalaus harka framsóknarforyst- unnar í garð Kristins H. Gunnarssonar. Lík- lega er það fordæmalaust að þingmanni sé með þessum hætti vikið úr hverri ein- ustu þingnefnd sem hann átti sæti í og þannig fæti brugðið fyrir það að hann geti sinnt sínum þinglegu skyldum. Með sama móti má segja að brotið sé á kjósendum Kristins, enda þeirra umbjóðandi og full- trúi á Alþingi Íslendinga sviptur stórum hluta áhrifa sinna innan þingsins. Björgvin Sigurðsson á bjorgvin.is SIGURJÓN ÞÓRÐARSON ALÞINGISMAÐUR UMRÆÐAN SAMKEPPNI ,, AF NETINU SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okk- ur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek- ið á móti efni sem sent er frá Skoðana- síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið- beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Haustlaukaútsala 20-50% afsláttur af öllum haustlaukum Lífræn helgi á Græna torginu ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B LO 2 61 49 10 /2 00 4 Kynninga rtilboð 999 kr. Orkideur Rýmum - Pottaplöntur með 50% afslætti 299 kr. 499 kr. 799 kr. verð Nóvemberkaktus tilboð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.