Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 18
Kiddi sleggja
Þrálátur orðrómur er á kreiki um að Kristinn
H. Gunnarsson hafi ámálgað samstarf við
Frjálslynda flokkinn en fengið þvert nei.
Orðrómurinn er að vísu þrálátastur í Fram-
sóknarflokknum en bæði Kristinn H. og frjáls-
lyndir þvertaka fyrir þetta. Raunar kæmi upp
undarleg staða ef af þessu yrði því Kristinn er
úr Norð-Vesturkjördæmi eins og helmingur
þingmanna frjálslyndra og meira að segja frá
Vestfjörðum, höfuðvígi Guðjóns Arnars Krist-
jánssonar og félaga.
Chirac skrifaði ráðherrum
Jacques Chirac Frakklandsforseti lítur bersýni-
lega með velþóknun á Ísland þessa dagana
því hann skrifaði ráðherrum í ríkisstjórn sinni
bréf þar sem hann mun hafa beðið þá um
að huga sérstaklega að samvinnu við Ísland.
Chirac hefur aldrei komið til Íslands en for-
veri hans Francois Mitterrand kom hingað tví-
vegis. Hins vegar mun Chirac og Davíð Odds-
syni vel til vina en kunningskap þeirra má
rekja til borgarstjóraára beggja, í París og
Reykjavík.
Ætluðu að sniðganga nefndina
Stjórnarandstæðingum kom mjög í opna
skjöldu þegar menntamálaráðherra gaf eftir
öllum að óvörum og ákvað að fjölga í fjöl-
miðlanefndinni til að allir stjórnarandstöðu-
flokkarnir hefðu fulltrúa. Þeir höfðu sam-
mælst um að sniðganga nefndina og skipa
enga fulltrúa í hana. Þorgerður Katrín skaut
þeim ref fyrir rass áður en þeir náðu að
tilkynna þessa ákvörðun.
Strákatal úti í horni
Ummæli á þessari síðu um að Ingi-
björg Sólrún væri úti í horni í Sam-
fylkingunni hafa fallið í grýttan jarð-
veg hjá fylgismönnum varafor-
mannsins. „Dæmigert strákatal,“
sagði Þórhildur Þorleifsdóttir,
fyrrverandi alþingismaður, í Silfri Egils á Stöð
2. Engu að síður viðurkenna fylgismennirnir
(aðallega konur) að Össur Skarphéðinsson
nýti sér formennskuna í flokknum til hins
ítrasta. Þingmenn eigi mikið undir
honum, til dæmis hver tali
fyrir flokkinn, sitji í
nefndum, fari í utan-
landsferðir á vegum
hans og svo framvegis.
Því verði lítillar andstöðu
við hann vart á þingi.
18 16. október 2004 LAUGARDAGUR
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra
stal senunni í íslenskum
stjórnmálum í vikunni með
því að snúa vörn í sókn í
heyrnleysingjamálinu.
Sagt var um Ronald heitinn
Reagan að hann væri teflon-mað-
ur í stjórnmálum, því ekkert loddi
við hann frekar en þetta ágæta
gerviefni. Nú er spurt hvort sama
máli gegni um menntamálaráð-
herra Íslands.
Flest spjót stóðu á Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur þegar hún
mætti á ríkisstjórnarfund síðast-
liðinn þriðjudag. Ekki nóg með að
45 þúsund íslensk skólabörn
hefðu ekki notið kennslu svo vik-
um skipti, heldur hafði fjölmiðla-
frumvarpinu, eitruðum kaleik,
verið ýtt yfir í menntamálaráðu-
neytið.
Og ráðherrann vissi að á pöll-
um alþingis biðu heyrnleysingjar,
sannarlega ekki hávær þrýstihóp-
ur en fólk sem hvarvetna nýtur
samúðar. Á leið af ríkisstjórnar-
fundi sagði Þorgerður Katrín að-
vífandi blaðamönnum að hún
hefði ákveðið að skipa tvo auka-
fulltrúa til að koma til móts við
stjórnarandstöðuna í fjölmiðla-
málinu.
En ekki nóg með það. Nokkrum
tímum síðar var Þorgerður Katrín
ekki lengur skúrkur heldur
stjarna! Í dramatískri ræðu á
þingi tók ráðherrann u-beygju og
kom algerlega til móts við sjónar-
mið heyrnarlausra
Leikstjórinn vinstri-græni Kol-
brún Halldórsdóttir sagði eftir á
við Fréttablaðið: „Hvað á maður
að gera? Hún byggir upp ræðuna
á dramatískan hátt og loks í lokin
kemur hún með þessar fréttir.
Hún spilaði þessu út á glæsilegan
hátt.“
Málshefjandinn Rannveig
Guðmundsdóttir sagði Þorgerði
mann dagsins og faðmaði svo ráð-
herrann.
„Stundum þarf ekki annað en
eina manneskju, sem er óhrædd
við að taka ákvarðanir, til að leysa
slík mál. Þorgerður átti faðmlagið
skilið,“ Sagði Morgunblaðið í leið-
ara og það blað er lesið á þeim
bæjum sem skipta máli í Sjálf-
stæðisflokknum.
„Hún er stjarna og það er ekki
hægt að segja um marga í íslensk-
um stjórnmálum,“ segir Árni
Matthiesen, samráðherra Þor-
gerðar og fyrsti þingmaður kjör-
dæmis hennar. „Stjórnarandstað-
an hafði búið sér til góðan vett-
vang í þessu máli og það þarf inn-
sæi til að nýta sér það sjálfum sér
til framdráttar“.
En gerir þetta Þorgerði Katrín
að framtíðarleiðtoga? „Ekki þetta
mál,“ segir Siv Friðleifsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins.
„Þetta er lítið sætt mál, en ekki
mál sem er prófraun á leiðtoga.“
Aðdáun Kolbrúnar Halldórs-
dóttur virðist heldur ekki hafa
dugað fram að helgi: „Kastljós
fjölmiðlanna á henni var verð-
skuldað en rauðu ljósin blikkuðu
úti um allt: afstöðuleysi hennar í
kennaraverkfallinu varð æpandi
og fleiri erfið mál bíða, stytting
skólaársins og fjölmiðlafrum-
varpið verða heit mál og ekki víst
að stjarna hennar skíni lengi.“
Af undanfarinni viku í pólitík
virðist ljóst að teflon sé uppáhalds-
efni Þorgerðar Katrínar. Hvort
þetta efni er jafn endingargott og
það hefur reynst klæðilegt í þess-
ari viku leiðir tíminn einn í ljós.
a.snaevarr@frettabladid.is
stjornmal@frettabladid.is
Úr bakherberginu...
Konan sem rændi
stjórnarandstöðuna
nánar á visir.is
Vika er langur tími í pólítik. En ef
smellt er á flipann „samþykkt laga-
frumvörp“ á 31. löggjafarþingi Íslend-
inga á Althingi.is kemur í ljós að eftir
tveggja vikna löggjafarstarf liggur
ekkert eftir Alþingi. Auðvitað gegnir
þingið fleiri hlutverkum en að setja
lög. „Bíðið þið hérna stelpur, pabbi
þarf aðeins að fara að tala,“ sagði
Össur Skarphéðinsson sem tók börn-
in sín með í vinnuna á dögunum og
hefði eins getað verið að fara að saga
eða vélrita, selja verðbréf eða grafa
skurð. Þingmenn vinna við að tala,
þeir tilheyra hinum talandi stéttum.
Íslensk börn eru reyndar ótrúlega
pólitísk. „Þessi Bush er ömurlegur
forseti. Ég held hann hafi búið til
þessi gereyðingarvopn til að fá átyllu
til að ráðast á Írak og ná í olíuna.
Þetta er bara brjálaður klikkhaus,“
sagði Þorgrímur sonur minn 11 ára
upp úr eins manns hljóði yfir sjón-
varpsfréttunum.
Öðru vísi mér áður brá. Þegar ég
var að alast upp voru Bandaríkjafor-
setar eins og hálfguðir í sjónvarps-
fréttum og á síðum Morgunblaðsins.
Að vísu eins og skrattinn sjálfur í
Þjóðviljanum en hann keyptu fáir á
þeim árum. Og jafnvel þótt Watergate
hafi miklu breytt, hafa menn lengst-
um borið virðingu fyrir forseta Banda-
ríkjanna sem helsta fulltrúa lýðræðis-
legra stjórnarhátta í heiminum. Og
sjaldan var þetta sannara en eftir 11.
september.
Þar til nú. Forseti Bandaríkjanna
hefur orðið uppvís að því að heyja
stríð sem byggt var á ósannindum.
Bush varð uppvís að því að ljúga á
svo augljósan hátt að jafnvel ellefu
ára börn sjá í gegnum lygina.
Á Alþingi hef ég spurst fyrir um af-
stöðuna til Kerrys og Bush og mér
sýnist að meira að segja sumir sjálf-
stæðisráðherrar myndu frekar sjá
Kerry sigra.
Raunar er það svo að allir íslensku
flokkarnir (að hugsanlega VG undan-
skildum) gætu auðveldlega rúmast
innan bandaríska Demókrataflokks-
ins. Bandarískur sendiráðsmaður
sem dvaldi hér á landi um árabil, fór
eitt sinn með tvær þingkonur, Þor-
gerði Katrínu úr Sjálfstæðisflokki og
Þórunni Sveinbjarnardóttur úr Sam-
fylkingu (þá Kvennalista) í ferð vestur
um haf. Að lokinni viku dvöl með
þeim dæsti diplómatinn og sagði við
þær stöllur: „Er ekkert sem þið getið
verið ósammála um?“
Eftir tvær vikur skýrist svo hvor sigr-
ar Kerry eða Bush. Vika er langur tími
í pólitík og tvær vikur, tvisvar sinnum
lengri tími og allt getur gerst. ■
VIKA Í PÓLITÍK
UMMÆLI VIKUNNAR
JAFNVEL 11 ÁRA BÖRN HAFA SKOÐANIR Á FORSETAKOSNINGUNUM
Árni Snævarr skrifar
,, U MÆLI VIKUN AR
„Strákarnir sjá um sína.“
-Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingismaður í utan-
dagskrárumræðum um skipan hæstaréttardóm-
ara 11. október 2004.
,,
„Evrópa er í dag mikið dúndur, færri komast að en vilja,
þjóðir, sem verr eru settar sjá endalausa möguleika til
velmegunar og sjálfsbjargar í þeim kristilega samhjálp-
arvilja sem einkennir allt samstarf aðildarríkjanna.“
Kristófer Már Kristvinsson, Morgunblaðinu 12. október
ÞORGERÐUR KATRÍN Ótvírætt maður vikunnar í pólitík og það þrátt fyrir kennaraverk-
fall, fjölmiðlafrumvarp og gagnrýni á menningarkynningu.
Kjartan Ólafsson, sjálfstæðismað-
ur úr Suðurkjördæmi, hefur tekið
sæti á Alþingi. Kjartan er fimm-
tugur garðyrkjubóndi og enginn
nýgræðingur í stjórnmálum því
hann sat á þingi frá 2001-2003 en
náði ekki endurkjöri í síðustu
kosningum. Kjartan sest á Alþingi
nú vegna fráfalls Árna Ragnars
Árnasonar, sem lést í sumar. Síð-
ast þegar Kjartan settist á Alþingi
var það einnig eftir dramatíska
atburði af nokkuð öðru tagi en þá
varð hann alþingismaður eftir að
Árni Johnsen sagði af sér þing-
mennsku. Fimm varamenn sitja
nú á þingi og er einn þeirra nýliði,
Sjálfstæðismaðurinn Böðvar
Jónsson. - ás
Kerry og brjálaður klikkhaus
Blómamaðurinn snýr aftur
KJARTAN ÓLAFSSON sest á alþingi öðru sinni.