Fréttablaðið - 16.10.2004, Page 4

Fréttablaðið - 16.10.2004, Page 4
4 16. október 2004 LAUGARDAGUR VERKFALL Hverju sveitarfélagi er frjálst að semja um laun þeirra kennara sem fá undanþágur, seg- ir Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður Launanefndar sveitar- félaganna. „Ég tel þó eðlilegt að sveitar- félögin greiði fyrir vinnu í verk- falli kennara á þann hátt sem tíðkast hefur, það er að segja að borgað sé fyrir þann tímafjölda og fyrir það verk sem unnið er. Ég tel óeðlilegt að tengja saman veitingu undanþágu og launa,“ segir Gunnar. Það geri kennarar og noti til þess undanþágunefnd- ina. Hennar sé einungis að meta hvort neyðarástand hafi skapast og hvort undanþágur séu þarfar. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sagði á fundi með mæðrum fatlaðra barna í gær að veiting undan- þága strandaði á því að sveitarfé- lögin neituðu að greiða kennur- unum full laun. Ekki hafi hvarfl- að að þeim í verkfallinu árið 1995 að kennararnir fengju einungis greitt fyrir þá lágmarksvinnu sem þyrfti til að leysa vandann. Þeir ætli ekki að brenna sig á því aftur og krefjist einnig að allir kennarar sem komi að kennslu fatlaðra barna fái undanþágu til að koma í veg fyrir verkfalls- brot. ■ Mæður fatlaðra barna mættu á fund Eiríks Mæður fatlaðra barna lýstu óánægju sinni með misræmi í undanþágum kennara til fatlaðra barna. Formaður Kennarasambandsins sagði sveit- arfélögin neita að greiða kennurum á undanþágum full laun. VERKFALL Forsvarsmenn sveitar- félaganna segja kennara neita undanþágubeiðnum en raunin er sú að þeir vilja ekki semja um laun þeirra kennara sem fá und- anþágurnar, sagði Eiríkur Jóns- son við hóp mæðra sem komu með fatlaða drengi sína á fund hans í gær. Eiríkur greindi mæðrum þeirra frá því að næsta verk und- anþágunefndarinnar væri að skoða sérdeildir einhverfra en síðan kæmi væntanlega að því að skoða undanþágur vegna fatlaðra barna í almennum grunnskólum. Nokkrir drengjanna stunda ein- mitt nám í þeim. „Við skiljum ykkar sjónarmið og ég er fyllilega til í að taka þeirri gagnrýni sem að mér snýr. Mér finnst hins vegar að sveitar- félögin hafi legið í vari í þessu máli. Núna er boltinn hjá þeim,“ sagði Eiríkur. Ingibjörg Óskarsdóttur, tals- maður mæðranna, lýsti veruleg- um vonbrigðum yfir skrifum um undanþágur á vef Kennarasam- bandsins. Þar segir: „Í almennum skólum hefur verið sótt um und- anþágur fyrir kennara sérdeilda og einstakra barna. Hér reynir á það sem felst í hugtakinu skóli án aðgreiningar.“ Ingibjörg benti á að ekki væri hægt að tala um jafn- an rétt fatlaðra og heilbrigðra barna: „Börnin okkar geta aldrei staðið jafnfætis hinum börnunum. Ég hnaut um þessi orð og varð öskureið.“ Ingibjörg óskaði eftir því að þegar verkfalli lyki fengju mæð- ur fjölfatlaðra barna að koma og ræða við kennara og sveitarfélög- in svo það erfiða ástand sem vari á heimilum barnanna í verkfalli kennara endurtaki sig ekki. Hún greindi frá því að vegna verkfalls- ins hefði hún einungis getað unnið í þrjá daga. Hún hræddist að þrátt fyrir skilning vinnuveitenda sinna sæju þeir að hægt væri að leysa málin án hennar. Eiríkur ítrekaði að krefja ætti launanefndina svara um hvort undanþágurnar ættu að stranda á launagreiðslum: „Við neitum því í raun og veru að kalla okkar fólk úr verkfalli og segja síðan við það að vinnuveitandinn ráði því nán- ast hvort og þá hvað fólk fái í laun.“ gag@frettabladid.is Ölvunarakstur: Sagðist vera systir sín DÓMSMÁL Tæplega þrítug kona var dæmd í Héraðsdómi Reykja- víkur í þriggja mánaða skilorðs- bundið fangels. Konan var dæmd fyrir að aka ölvuð og þykjast vera systir sín þegar lögreglan stöðvaði hana. Systurinni var birt ákæra í málinu en veitti því ekki sérstaka athygli fyrr en síðar og fékk hún upplýsingar um að systir hennar hefði notað nafnið hennar í heim- ildarleysi. Henni var lofað að málinu yrði kippt í liðinn en næst vissi systir- in af málinu þegar henni var birt- ur dómur. ■ SÉRSAMNINGUR Í KÓPAVOGI Ákveðið hefur verið að kennarar í sérdeild Digranesskóla fái full laun svo vandi fjölskyldna fatl- aðra barna við skólann leysist. Samninga- nefnd kennara hefur sett sem skilyrði að þeir kennarar sem fái undanþágu verði settir aftur á launaskrá á fullum laun- um en fái ekki einungis greitt fyrir þann lágmarkstíma sem þurfi til að leysa vandann. FÁTT UM SVÖR SVEITAR- STJÓRNARMANNA Ólafur Lofts- son, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, segir kennara undrandi yfir því hversu fáir sveitarstjórnar- menn hafi séð sér fært að svara bréfi þeirra með al- mennum spurn- ingum um menntun og forgangs- röðun. „Við gáfum þeim tíma frá fimmtudegi til þriðjudags. Hann hefur greinilega ekki verið nægi- lega langur og við bíðum því enn eftir svörum,“ segir Ólafur og bendir á að svörin séu birt á vefnum kennarar.is. ÖNNUR ÚTBORGUN ÚR VERK- FALLSSJÓÐI Verkfallsbætur voru greiddar úr Vinnudeilusjóði til kennara í gær. Rúmur mánuður er liðinn frá því að verkfall kennara hófst. Samhliða verk- fallsbótunum fengu kennara greiddar út gjafirnar frá SFR, Sjúkraliðafél- aginu og Verkalýðsfélaginu Vöku. Komu 2.500 krónur í hlut hvers. Kennarar fá greiddar 3.000 krón- ur fyrir hvern dag verkfalls stundi þeir fulla vinnu. Af því greiða þeir skatt. - gag Hefurðu keypt hlutabréf á þessu ári? Spurning dagsins í dag: Finnst þér í lagi að rússnesk herskip fái að vera við æfingar við strendur landsins? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 72% 28% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun VERÐLAUNIN AFHENT Sturla Böðvarsson samgönguráðherra af- hentir Ágústi Hallvarðssyni, sölustjóra hjá Brimborg, Stálstýrið. Stálstýrið afhent: Volvo valinn bíll ársins BÍLAR Volvo S40 er bíll ársins á Ís- landi að mati nýstofnaðs Banda- lags íslenskra bílablaðamanna. Brimborg flytur inn Volvo og afhenti Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra forsvarsmönnum fyrirtækisins Stálstýrið, en svo nefnist farandgripur sem fylgir nafnbótinni. Volvo S40 hlaut 231 stig, Mazda RX8 224 stig, Hyundai Tucson 211 stig og Kia Picanto 172 stig. Mazda RX8 var valinn sportbíll ársins, Hyundai Tucson vann í flokki jeppa og jepplinga og Kia Picanto í flokki smábíla. Tæplega fjörutíu bílar voru tilnefndir. ■ Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Torfastaði: Greiðslur til Torfa- staða voru of lágar MEÐFERÐARHEIMILI Félagsmála- ráðuneytið telur hvorki raunhæft né ráðlegt að mæla með því að Barnaverndarstofa og meðferðar- heimilið á Torfastöðum geri nýjan samning um áframhaldandi rekst- ur. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar fyrir félags- málaráðuneytið sem birt var í gær. Rökin fyrir niðurstöðunum eru þau að ljóst sé vegna ítrekaðra yf- irlýsinga forsvarsmanna með- ferðarheimilisins á Torfastöðum, Drífu Kristjánsdóttur og Ólafs Einarssonar, jafnt í bréfum til ráðuneytisins sem í fjölmiðlum, að um trúnaðarbrest og viljaskort í samskiptum við Barnaverndar- stofu sé að ræða. Þá bendir Ríkisendurskoðun á að geiðsla til Torfastaða hafi verið að meðaltali um 3,4 milljónum krónum lægri á ári en sambæri- legra meðferðarstofnana. Drífa Kristjánsdóttir segir að skýrslan staðfesti það að Torfa- staðir hafi fengið of lágar greiðsl- ur. „Ég hef haldið því ítrekað fram. Ég óskaði ekki eftir þessari úttekt en ég tel að hún sýni það sem ég hef sagt, að Bragi Guð- brandsson, forstjóri Barnavernd- arstofu, hafi haft til okkar óvild enda staðfestir skýrslan að við höfum ekki fengið jafn miklar greiðslur og önnur meðferðar- heimili,“ segir Drífa. Aðspurð segist Drífa tilbúin til að ræða endurnýjun samnings ef ráðuneytið óski þess. -sda FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA ÁSAMT FORSVARSMÖNNUM TORFASTAÐA Árni Magnússon, Ólafur Einarsson og Drífa Kristjánsdóttir. Drífa segist tilbúin til við- ræðna við ráðuneytið um nýjan starfs- samning meðferðarheimilisins á Torfastöð- um. VIÐ KENNARAHÚSIÐ Mæður fötluðu drengjanna sem komu saman á fund Eiríks formanns KÍ halda hópinn og hittast reglulega. Drengirnir eru góðir vinir en stunda ekki nám í sömu skólunum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R Veita undanþágu gegn fullum launum kennaranna: Undanþágur í hönd- um sveitarfélaganna Fiskveiði: Lítil veiði í september SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli ís- lenskra skipa í september var 62.800 tonn, sem er 32.000 tonnum minna en í september í fyrra sam- kvæmt Hagstofu Íslands. Verðmæti fiskaflans dróst saman um 8,8 prósent samkvæmt föstu verðlagi ársins 2002. Botn- fiskaflinn er svipaður milli ára. Uppsjávaraflinn dregst hins veg- ar töluvert saman og munar þar mestu um litla kolmunnaveiði. ■ STÓRA SAMNINGANEFND KENNARA Ósátt við að laun þeirra kennara sem fái undanþágur miðist eingöngu við þá tíma sem kennt er. Kennarar séu annað hvort í verkfalli eða ekki. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R ■ 26. DAGUR VERKFALLS FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ÁL L

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.