Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 20
Íslendingar framsæknir Fjögur íslensk fyrirtæki eru meðal þeirra fimm hundruð framsæknustu í Evrópu. Bakkavör er í þriðja sæti á listanum og er ekkert fyrirtæki á Norðurlöndum ofar. Stoðtækjaframleiðandinn Össur er í 68. sæti, hug- búnaðarfyrirtækið Opin kerfi í því 91. og fjármála- fyrirtækið Creditinfo, móðurfélag Lánstrausts, er í 153. sæti. Góðir miðað við höfðatölu Samantektir á fimm hundruð framsæknustu fyrir- tækjunum hafa verið birtar frá 1996 og eru fyrir- tæki í átján löndum tekin til skoðunar. Staða ís- lenskra fyrirtækja á listanum í ár er sterk en til samanburðar eru tvö dönsk fyrirtæki á listan- um, fimm norsk, sex finnsk og átta sænsk. Miðað við höfðatölu er þetta mikill árangur. Frændur vorir Danir eru um fjörutíu sinnum fleiri en við en eru með helmingi færri fyr- irtæki. Þetta er líklega einhvers konar met – miðað við höfðatölu. Bakkabræður framarlega Bakkavör hefur áður verið meðal þriggja efstu en árið 2002 var fyrirtækið talið næstframsæknasta fyrirtæki Evrópu. Creditinfo er hins vegar nýtt og vekur athygli að það komist á listann þar sem félagið var stofnað árið 2003. Fyrir- tæki geta ekki komist í hóp fimm hundruð framsæknustu nema þau hafi verið starfrækt í þrjú ár en þar sem Lánstraust var stofn- að árið 1997 kemst það í hóp- inn. Við mat á framsækni fyrir- tækja er tekið mið af fjölgun starfs- manna í fyrirtækinu á síðustu þremur árum og út frá því er þeim fyrirtækjum raðað sem tilnefnd hafa verið. Einungis fyrirtæki þar sem frumherjar eru virkir í eignarhaldi koma til álita við valið. MESTA HÆKKUN ICEX-15 3.855 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 502 Velta: 7.111 milljónir +0,15% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... Sameining fjárfestingarfélaganna Kaldbaks og Burðaráss mun mið- ast við 1. október sl. Þetta var til- kynnt í Kauphöllinni í gær. Stjórn Íslandsbanka samþykkti á fundi sínum í gær að boðað yrði til hluthafafundar. Gera má ráð fyrir að þá verði breytingar í stjórninni og nýr meirihluti verði til í bankaráðinu. Hlutabréf í Evrópu og Japan héldu áfram að lækka í gær. Nikkei í Japan féll um hálft prósent, FTSE í Lundúnum lækkaði um 0,14 pró- sent og þýska Dax-vísitalan lækk- aði um hálft prósent. Landsbankinn tilkynnti í gær að til stæði að sameina útibú bankans á Seltjarnarnesi og í Vesturbæ. Úti- búinu á Seltjarnarnesi verður lokað á mánudaginn. 20 16. október 2004 LAUGARDAGUR Nýtt flugrekstrarfélag með um sjötíu milljarða veltu verður stofnað um áramót. Magnús Þorsteinsson verð- ur stjórnarformaður og stefnt er að skráningu í Kauphöll Íslands. Um 3.200 manns munu starfa hjá Avion group. Um áramót verður til nýtt flug- rekstrarfyrirtæki á Íslandi sem gæti orðið stærsta fyrirtækið á ís- lenskum markaði ef áform um skráningu ganga eftir. Magnús Þorsteinsson, aðaleigandi Air Atl- anta, kynnti í gær áætlanir um að stofna fyrirtæki í kringum rekst- ur Air Atlanta, Excel Airways og Íslandsflugs. Hið nýja fyrirtæki ber nafnið Avion group og er heildarvelta þess í kringum sjötíu milljarðar króna miðað við veltu fyrirtækj- anna í samstæðunni í ár. Það er tíu milljörðum meira en velta SH í fyrra en SH er veltumesta félag á Íslandi samkvæmt tímaritinu Frjálsri verslun. Magnús Þor- steinsson verður starfandi stjórn- arformaður Avion. Hann segir að fyrirtækið verði hið langstærsta í heiminum á sviði útleigu flugvéla með áhöfn, þjónustu og trygging- um. Hann telur að þessi markaður sé vaxandi. „Flugfélög gera sér gjarnan grein fyrir þvi að þau eru góð í að selja sæti og markaðssetja sína vöru en vilja ekki endilega standa í því að reka flugvélar. En þessu er öfugt farið hjá okkur. Við ein- beitum okkur að rekstri flugvél- anna sjálfra,“ segir Magnús. Á blaðamannafundi í gær var einnig tilkynnt um kaup Atlanta á auknum hlut í breska flugfélaginu Excel. Fyrir átti Atlanta um fjöru- tíu prósent en hefur nú keypt þrjátíu prósent til viðbótar af grísku ferðaskrifstofunni Libra. Stjórnendur Excel eiga enn um tuttugu prósent í félaginu og seg- ir Magnús líklegt að þeir muni halda þeirri fjárfestingu og taka þátt í því starfi sem fram undan er. Avion mun hafa til umráða 63 flugvélar og hafa tæplega 3.200 manns í vinnu. Starfstöðvar eru í öllum heimsálfum að Suður- skautslandinu undanskildu. Félög innan samsteypunnar munu áfram fljúga undir eigin merkjum og lúta daglegri stjórn forstjóra á hverju sviði en meginstefnumót- um fer fram hjá stjórn sam- steypunnar. Arngrímur Jóhannesson stofn- aði Air Atlanta og á nú um fjórð- ungshlut í félaginu á móti 75 pró- senta hlut Magnúsar. Ekki fæst uppgefið hvort og hvernig þessi hlutföll breytast í kjölfar stofnun- ar Avion. thkjart@frettabladid.is vidskipti@frettabladid.is Peningaskápurinn… Actavis 52,00 +0,97% ... Bakkavör 28,40 -1,39% ... Burðarás 15,10 -0,66% ... Atorka 5,60 +1,82% ... HB Grandi 7,41 -5,00% ... Íslandsbanki 11,65 - ... KB banki 500,00 - ... Landsbankinn 15,00 1,35% ... Marel 54,00 -0,18% ... Medcare 6,25 - 0,79% ... Og fjarskipti 3,76 - ... Opin kerfi 26,80 +5,10% ... Samherji 13,70 +4,58% ... Straumur 9,80 - ... Össur 95,50 -1,55% Stærst á sínu sviði Þormóður Rammi7,14% Opin kerfi 5,10% Samherji 4,58% Tangi -5,88% HB Grandi -5,00% VÍS -3,92% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is Glazer eykur hlut sinn í United Bandaríski athafnamaðurinn Malcolm Glazer, sem stefnt hefur að því að taka yfir fótbolta- félagið Manchester United, jók í gær hlut sinn í félaginu í rúman fjórðung. Hlutabréf í félaginu hækk- uðu um átta pró- sent í kjölfarið. Manchester United sendi yf ir lýs ingu til bresku kauphal lar - innar í gær þar sem það staðfesti í fyrsta sinn að Glazer hefði lýst yfir áhuga sínum á því að eignast félagið. Kaup hans á hlutabréfunum í gær eru sögð auka líkurnar á því að honum heppnist að taka yfir félagið. Tveir Írar, Magnier and M c M a n u s , eiga 28,9 pró- sent í félag- inu og eru því lykillinn að því hvort áætlanir Glaz- ers verði að veruleika eða ekki. -sda Frosti Bergsson, stofnandi og stjórnarformaður, hefur selt hluti sína í Opnum kerf- um. Gert verður yfirtökutil- boð til hluthafa. Kögun hefur eignast ríflega tvo þriðju í Opnum kerfum og keypt út Frosta Bergsson, stofnanda og stjórnarformann félagsins. Átök hafa verið um eignarhald á félag- inu undanfarna mánuði eftir að Kögun keypti 35,77 prósent í félaginu um miðjan ágúst. Frosti Bergsson kveðst sáttur við þessi viðskipti og segir hlut- hafa í Opnum kerfum fá gott verð fyrir hluti sína. „Þetta sýnir að menn eru skotnir í félaginu. Stað- an á markaðnum í dag er þannig að félögum í Kauphöllinni er að fækka og félögin sem eru skráð eru háð breytingum og svipting- um,“ segir Frosti. Hann mun hætta sem starfandi stjórnarformaður Opinna kerfa en útilokar ekki að hann muni áfram starfa í upplýsingatækni- geiranum. Hvað varðar framtíð Opinna kerfa telur Frosti að þar vegi þyngst að hjá félaginu starfi góður hópur fólks. „Markaðsverðmæti félagsins er á níunda milljarð króna. Ég held að menn muni reyna mjög að passa upp á verðmætið sem er í félaginu og það er að stórum hluta fólkið sem þar starfar,“ segir hann. Viðskiptin í gær fóru fram á genginu 26,8 sem er um fimm pró- sentum hærra en loka- gengi bréfanna var á fimmtudag. Ásamt Frosta seldi Straumur rúm fimm prósent, Ís- landsbanki tæp tuttugu prósent. -þk Meira kaffi Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks hyggst þrefalda fjölda útsölustaða á næstu árum. For- svarsmenn fyrirtækisins segja að Bandaríkjamenn nenni ekki að ganga og því þurfi að sjá til þess að útibú frá Starbucks sé alltaf innan seilingar. Nú þegar rekur Starbucks 8.500 úti- bú. Flest þeirra eru í Banda- ríkjunum. Talsmenn fyrirtækis- ins segjast vilja fjölga útibúun- um upp í 30.000 á næstu árum og þar af verði helmingur í Banda- ríkjunum. ■ MAGNÚS ÞORSTEINSSON Nýtt félag undir hans forystu verður með höfuð- stöðvar á Íslandi. Avion group er stofnað utan um fjárfestingar í flugfélögunum Atl- anta, Excel og Íslandsflugi. Félagið mun hafa um tvöfalt meiri veltu en Flugleiðir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. FROSTI Á FÖRUM Kögun hefur keypt Frosta Bergsson út úr Opnum kerfum. Hann mun láta af störfum sem starfandi stjórnarformaður. Kögun kaupir Opin kerfi FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.