Fréttablaðið - 16.10.2004, Side 22
22 16. október 2004 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
Dagskrá í Listasafni Íslands í
dag, í tilefni 120 ára afmælisins, frá
klukkan 11.00. Litaspil, Megasukk,
Leiðsögn um sýningu Guðmundu
Andrésdóttur og um menningar-
arfinn, dægurlög og djassperlur
með Ragnheiði Gröndal...
Opnun á málverkasýningum
Margrétar Sigfúsdóttur og Valerie
Boyce í Hafnarborg, Hafnarfirði...
Nánum kynnum (Intimacy),
fransk/enskri bíómynd í Sjónvarp-
inu klukkan 00.55. Myndin var
gerð árið 2000 og er byggð á sögu
eftir Hanif Kureishi.
Ráðstefna um sálma og sálmasöng verður
haldin í Grensáskirkju í dag frá klukkan
13 til 18. Herra Karl Sigurbjörnsson bisk-
up setur ráðstefnuna og síðan flytur
Ragnar Håkanson erindi sem ber heitið
„Kristur gengur á meðal vor“ (Kristus
vandrar bland oss än). Annar fyrirlesari er
Mark Anderson, sem fjallar um aðferðir
við að glæða almennan safnaðarsöng.
Kristín Þórunn Tómassdóttir flytur fyrir-
lestur sem ber heitið Syngið Guði nýjan
söng, þar sem stiklað er á sálmabókar-
vinnu lúthersku kirkjunnar í Bandaríkjun-
um, og Margrét Eggertsdóttir fjallar um
Sálma og sálmasöng.
Ráðstefnunni lýkur með Sálmakvöldi í Hall-
grímskirkju með Mark Anderson. Þar verða
sálmar úr íslenskum sálmaarfi kynntir og
sungnir í almennum söng og nyjum undirleik.
Umsjón með sálmakvöldinu hafa dr. Einar
Sigurbjörnsson og Hörður Áskelsson.
Kl. 20.00, sunnudag
Frumsýning á Böndin á milli okkar eftir
Kristján Þórð Hrafnsson á Litla sviði
Þjóðleikhússins. Leikarar í sýningunni
eru Sólveig Arnarsdóttir, Rúnar Freyr
Gíslason, Nanna Kristín Magnúsdóttir
og Friðrik Friðriksson. Leikstjóri er
Hilmir Snær Guðnason.
menning@frettabladid.is
Ráðstefna um sálma og sálmasöng
!
HEILDSÖLU LAGERSALA
Vegna flutnings
Barna og fullorðins fatnaður með 50-90% afslætti
Útivistar, skíða, snjóbretta og golffatnaður einnig mikið úrval af skóm
Verð dæmi
SKEMMUVEGUR 16 (BLÁ GATA) KÓPAVOGI (NEÐAN VIÐ BYKO)
Úlpur: Áður 29.900- Nú : 7.900-
Skíðabuxur: Áður 14.900- Nú: 4.900-
Barna úlpur Áður: 8.990- Nú: 3.990-
Barnagalla: Áður: 8.990- Nú: 2.990-
Opið eingöngu
Laugardag 16. október 11:00 til 17:00.
Sunnudag 17. október 11:00 til 17:00.
Mánudag 18. október 13:00 til 20:00.
NÝTT KORTATÍMABIL
Leitað var til Valgeirs Guð-
jónssonar með þá hugmynd
að setja upp sýningu byggða
á hinni sígildu kvikmynd
Stuðmanna Með allt á
hreinu. Tillagan lagðist vel í
hann, sem varð til þess að
hann sló til og má sjá af-
raksturinn á sýningum á
Broadway með stjörnum
eins og Jónsa, Hjálmari
Hjálmarssyni og Andreu
Gylfa.
Á Broadway hefur verið settur
upp nýr íslenskur söngkabarett
sem ber heitið „Með næstum allt
á hreinu“ og eins og nafnið vísar
til byggir á einni vinsælustu
kvikmynd okkar Íslendinga,
„Með allt á hreinu“ þar sem
Stuðmenn og Grýlurnar fara á
kostum, enda myndin og tónlist-
in löngu orðin ódauðleg. Fyrrum
liðsmaður Stuðmanna, Valgeir
Guðjónsson, sem lék jafnframt
sjálfur í kvikmyndinni, er hand-
ritshöfundur og listrænn stjórn-
andi sýningarinnar, en sóst var
eftir kröftum hans í tengslum
við sýninguna og þótti honum
hugmyndin það áhugaverð að
hann sló til. Hann valdi þá leið að
setja tónlist myndarinnar í nýtt
samhengi og notast einnig við
önnur eldri lög Stuðmanna frá
þeim tíma er hann var hluti
sveitarinnar.
„Söguþráðurinn í þessari sýn-
ingu er sá að það er vinnustaður
sem er að setja upp árshátíð þar
sem þessi lög eru tekin. Það
gefur mjög frjálst spil með að
leika sér með lögin og þetta efni,
því við erum í sjálfu sér ekki að
endurtaka myndina enda þarf
það svo sem ekki,“ segir Valgeir.
Kabarettinn var frumsýndur síð-
ustu helgi og segir Valgeir að við-
brögðin hafi verið mjög góð.
„Þetta er efni sem stendur þjóð-
inni nokkuð nærri, það var mikið
sungið í salnum og mjög sterk
stemning sem myndaðist og var
skemmtilegt að upplifa. Það var
mikið hlegið og mikið sungið,
virkilega gaman að sjá hvað
þessu var vel tekið,“ segir Val-
geir og talar um að formið sem
slíkt bjóði upp á frjálslegri við-
brögð frá áhorfendum sem geta
stappað og sungið með að vild, en
í leikhúsi sé fólk yfirleitt mun
stilltara og horfi bara á. Hin góðu
viðbrögð vill hann þakka hinum
gífurlega góða hópi fólks sem að
sýningunni kemur. „Þetta er ein-
valalið, bæði kór og hljómsveit,
og þarna er valinn maður í hver-
ju rúmi, ég vildi engu breyta þar
um,“ segir Valgeir en með helstu
hlutverk fara Hjálmar Hjálmars-
son, Jónsi, Margrét Eir, Linda Ás-
geirsdóttir, Valur Freyr Einars-
son og Andrea Gylfadóttir.
„Við leituðumst ekki við að
hafa flutninginn á lögunum eins
og í upprunalegu útgáfunni en
nýttum hópinn hins vegar vel til
að syngja þau með öðrum hætti.
Sum þeirra sem áður voru sungin
af körlum syngja konur, en þan-
nig breytist áherslan og jafnvel
merkingin,“ segir Valgeir.
„Langt er liðið frá því að þessi
tónlist varð til, sem kallar fram
tilfinningu sem maður þarf að
venjast. Sá sérstaki tími þegar
bíómyndin og lögin urðu til er
mér mjög eftirminnilegur þannig
að ég get ekki sagt annað en ég
hafi haft mikla ánægju af því að
fást við þetta efni sem er rúm-
lega 20 ára gamalt,“ segir Valgeir
en bætir við að það sé mjög góð
tilfinning að geta tekið efnið, sett
það í nýtt samhengi og fengið
þessi sterku viðbrögð.
kristineva@frettabladid.is
Í nýútkomnu Hrafnaþingi
veltir Ragnar Ingi
Aðalsteinsson því fyrir sér
hort við eigum á hættu að
glata okkar einstæðu
braghefð.
Hrafnaþing er heiti á nýju tíma-
riti sem gefið er út af Rannsókn-
arstofnun Kennaraháskóla Ís-
lands. Í ritinu kynna íslensku-
kennarar við skólann rannsóknir
sínar og störf og miðla því fjöl-
breytta efni sem þeir hafa verið
að fást við í fræðum sínum. Skýr-
ing á heiti ritsins kemur fram í
formála þar sem segir: „Sam-
kvæmt íslenskri þjóðtrú hafa
hrafnar með sér þing hvert haust
og ráða þar ráðum sínum,
ákvarða skiptingu lífsgæða og
skipa sér niður á
bæi.
Í ritinu fjalla,
meðal annarra,
Ragnar Ingi Aðal-
steinsson og Þórður
Helgason um brag-
fræði og kvæða-
kennslu, hvor með
sínum hætti.
Grein Ragnars
Inga er sérlega
áhugaverð og má
segja að í henni séu
orð í tíma töluð.
Hann rekur sögu
reglna og hefða sem liggja að
baki vísnagerð á Íslandi í dag og
bendir á að sú saga sé reyndar
eldri en elstu heimildir og að
fræðimenn hafi enn ekki getað
gert sér neina verulega trúverð-
uga mynd af því hvaðan þessar
reglur eru upprunnar, eða hvers
vegna þær urðu til.
En vissir þú....
Að reglur um stuðlasetningu
eru löngu gleymdar öllum þjóð-
um öðrum en Íslendingum. Hún
hvarf úr þýskum kvæðum á sein-
ni hluta 9. aldar. Á Norðurlönd-
um, utan Íslandi, voru stuðluð
ljóð svo að segja úr sögunni þeg-
ar kom fram á 13. öld. Síðasta
stuðlaða kvæðið í enskum bók-
menntum er ort á síðari hluta 14.
aldar...
Að það sem einkum varð hin-
um stuðlaða kveðskap að fjör-
tjóni voru áhrif frá bragarhátt-
um sem voru án stuðla en höfðu
endarím. Þetta endarím var upp-
runnið á 5. öld í ljóðagerð kirkj-
unnar og fylgdi henni norður eft-
ir álfunni.
Að Íslendingar hafa einir
varðveitt þennan menningararf.
Hins vegar eigum við á hættu
að glata þessari einstæðu hefð,
þar sem henni er lítið sem ekkert
sinnt í grunnskólum. Að minnsta
kosti segir Ragnar í grein sinni
að ekkert liggi fyrir um það
hversu mikið þær bækur sem
fjalla um bragfræði eru notaðar í
grunnskólum landsins og þaðan
af síður hver kynni
að vera árangurinn
af þeirri kennslu ef
einhver er.
Ragnar leitar
skýringa á ósköpun-
um og segir:
„Yfir vísnagerð-
inni hefur löngum
legið svolítil dulúð
sem gjarnan er
tengd við öfl af öðr-
um heimi, töfra eða
galdra. Sú kenning
hefur gengið manna
á milli sem almenn
staðreynd að hæfileikinn til að
yrkja sé meðfædd gáfa, sumum
gefin en öðrum ekki. Ég er ekki
frá því að þessi villutrú hafi átt
nokkurn þátt í því að margir hafa
alið með sér þá skoðun að brag-
fræðikennsla sé óvinnandi verk.
Þeir sem ekki hafa fengið hæfi-
leikann í vöggugjöf geti þetta
hvort eð er aldrei, hvernig sem
farið sé að, og hinir heppnu þurfi
ekki kennslu í þessu því að náð-
argáfan sé þarna fyrir og ekkert
geti ógnað henni. Hér er um að
ræða einhvern anga af forlaga-
trú sem hefur haft vond áhrif á
framgang menningararfsins.“ ■
VALGEIR GUÐJÓNSSON Á veg og vanda af uppsetningu söngkabarettisins Með næst-
um allt á hreinu sem byggir á Stuðmannamyndinni vinsælu Með allt á hreinu. „Sá sér-
staki tími þegar bíómyndin og lögin urðu til er mér mjög eftirminnilegur þannig að ég get
ekki sagt annað en ég hef haft mikla ánægju af því að fást við þetta efni sem bráðum er
rúmlega 20 ára gamalt.“
Með næstum allt á hreinu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Hefðinni úthýst
úr skólakerfinu?
RAGNAR INGI AÐALSTEINSSON Yfir vísnagerðinni hefur löngum legið svolítil
dulúð sem gjarnan er tengd við öfl af öðrum heimi, töfra eða galdra.