Fréttablaðið - 16.10.2004, Síða 29
LAUGARDAGUR 16. október 2004
1.078 krónum munar á hæsta og
lægsta verði á dekkjaskiptum,
umfelgun og jafnvægisstillingu.
Þetta er niðurstaða verðkönnunar
sem gerð var af Fréttablaðinu á
13 dekkjaverkstæðum fimmtu-
daginn 14. október. Ódýrust var
þessi þjónusta í Hjólbarðastof-
unni Bíldshöfða í Reykjavík, 4.410
krónur, en dýrust á Hjólbarða-
verkstæði Grafarvogs, 5.488
krónur, miðað við að bíllinn sé á
álfelgum. Verðmunur í því tilviki
er rúm 24%. En ef bíllinn er á
stálfelgum er verðið mun lægra í
Grafarvoginum, 4.984 krónur. Það
er 13% hærra verð en í Hjól-
barðastofunni. Gúmmívinnustof-
an Akureyri er einnig með hærra
verð á umfelgun og jafnvægis-
stillingu álfelga en stálfelga. Verð
á umfelgun stálfelga er 5.150 kr.
sem er tæpum 17% hærra en
lægsta verð.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu eru 11 verkstæðanna á höfuð-
borgarsvæðinu en tvö á Akureyri.
Könnunin fór fram í gegnum síma.
Nú er framundan sá tími sem
landsmenn skipta um dekk undir
bílum sínum því þau þurfa að
vera af þeim grófleika að geta
mætt hálku og snjó og veitt þar
viðnám. Nagladekkjatíminn hefst
1. nóvember en heilsársdekk
henta í mörgum tilfellum. ■
Audi 6 hlaut 34,7 af hundraði atkvæða í
vali á Auto Trophy 2004 í sínum flokki.
Þjóðverjar:
Velja Audi
Bílar frá Audi-verksmiðjunni fengu
þrenn Auto Trophy-verðlaun í kosningu
lesenda þýska bílablaðsins Auto
Zeitung. Auk þess hlutu bæði Seat og
Lamborghini verðlaun en þeir heyra
undir Audi-væng Volkswagen sam-
steypunnar.
Audi-fólksbílarnir A4, A6 og A8 fengu
þrenn af eftirsóttustu verðlaunum árs-
ins. Lesendur Auto Zeitung kusu þá í
efsta sæti í flokkum millistórra fólksbíla,
stórra fólksbíla og lúxusbíla.
Alls bárust rúmlega 84.000 atkvæði en
lesendur Auto Zeitung og tímaritsins TV
Movie tóku þátt í kosningunni. Audi A8
fékk alls 28,2% atkvæða í lúxusflokki.
Hinn nýi Audi A6 fékk enn hærra hlut-
fall atkvæða í flokki stórra fólksbíla, alls
34,7% kjósenda völdu þennan bíl sem
sitt uppáhald í þessum flokki bíla.
Audi-fólksbílar hafa unnið Auto Trophy
verðlaun alls 25 sinnum þau 17 ár sem
þeim hefur verið úthlutað.
Senn fá starfsmenn dekkjaverkstæða nóg að gera við að skipta út sumardekkjum
fyrir önnur grófari eða negld.
Dekkjaskipti á fólksbíl, með umfelgun og jafnvægisstillingu
Verðkönnun 14. október 2004
Staður Verð
Barðinn, Skútuvogi, R. 4.480
Borgardekk, Borgartúni, R. 4.500
Dekkið, Reykjavíkurvegi, Hf. 4.700
Dekkjahöllin Ak. 4.730
Dekkjalagerinn, Skeifunni, R. stálfelgur 4.800
álfelgur 5.200
Gúmmívinnustofan Ak. 5.150
230 kr aukalega á dekk með álfelgum
Hjólbarðastofan Bíldshöfða, R. 4.410
Hjólbarðaviðgerð Kópavogs 4.890
Smur- og dekkjaþjónustan, Breiðholti 4.488
Sólning, Smiðjuvegi, Kóp. 4.700
Hjólbarðaverkstæðið Nesdekk, Seltjarnarn. 4.690
Hjólbarðahöllin, Fellsmúla, R. 5.240
Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs - stálfelgur 4.984
álfelgur 5.488
Verðkönnun á dekkjaskiptum:
Hátt í fjórðungs-
munur á verði