Fréttablaðið - 16.10.2004, Síða 45
LAUGARDAGUR 16. október 2004
Snæfríð Þorsteins er sýningar-
stjóri afmælissýningar FÍT og
hefur staðið í ströngu síðustu
mánuði við að setja upp sýning-
una í Hafnarhúsinu. Hún segir að
það sé hrein skemmtun að ganga
um sýninguna sem valdi mörgum
gestinum án efa geðshræringu og
fortíðarþrá.
„Það er svo margt skemmtilegt
að sjá. Það er öllum upplifun að
sjá skissurnar á bak við peninga-
seðlana hans Halldórs Pétursson-
ar og svo umbúðapakkningarnar.
Þar er margt sem vekur upp
gamlar minningar og ýtir við
manni, eins og gömlu mjólkur-
hyrnurnar. Það er svo gaman að
þessum ofurhversdagslegu hlut-
um. Þá erum við með stórt safn
aðgöngumiða; farmiða eins og úr
strætóleiðinni Reykjavík-Hafnar-
fjörður upp á fimm aura, 25 aura
og 50 aura. Þetta er engin hönnun
í sjálfu sér og afar einfalt fyrir
augað, en gefur skemmtilega
mynd af liðnum tíma og þessum
hversdagslegu hlutum sem engu
að síður var sköpun einhvers sem
á hinum endanum sat og gerði
þetta. Þetta er eftirlætið mitt og
óborganlegur vinkill á litla hluti
sem eru svo samofnir daglegri til-
veru okkar.“
Svanfríð telur að nútímamað-
urinn sé eilítið blindur á samtím-
ann þótt hönnun sé allt í kring og
oft sé henni veitt lítil athygli.
„Það er margt og margvíslegt
sem virkar vel á Íslendinga, ekki
síst í dag þegar margir straumar
eru í gangi. Galdraformúlan felst
í því að vera á jaðrinum í ein-
hverju persónulegu sem aðrir eru
ekki að gera. Fólk sem stendur
fyrir utan meginstrauminn nær
oft að slá í gegn. Með því ná þeir
að skera sig út úr meðalmennsk-
unni. Dieter Roth er dæmi um
mann úr fortíðinni sem maður sér
þegar fram líða stundir að klár-
lega stendur upp úr sem snilling-
ur síns tíma. Hans verk enn þann
dag í dag eru algjör snilld í nú-
tímasamfélagi.
Einstaka hönnuður nútímans
lætur oftar frá sér fara eitthvað
sem er eftirtektarverðara en hjá
mörgum öðrum. Ég gæti nefnt
Hjalta Karlsson í New York sem
dæmi um Íslending sem getið hef-
ur sér gott nafn og gert skemmti-
lega hluti, en auðvitað marga
fleiri líka, sem erfitt er að gera
upp á milli.“ thordis@frettabladid.is
Skissur, mjólkurfernur
og farmiðar fyrir augað
Þegar gengið er um sali afmælissýningar FÍT má upplifa fortíðarþrá og
tæra nútímagleði hríslast um kroppinn. Snæfríð Þorsteins sýningarstjóri
uppljóstrar hér hverjir eru hennar eftirlætisgripir á sýningunni góðu.
PENINGASEÐLAR OG FARMIÐAR Á sýningunni má meðal annars sjá skissur Halldórs Péturssonar af íslenskum peningaseðlum og
forna strætómiða í ýmsum gjaldflokkum og litum. Ofantalið er það sem Snæfríð nefnir sem það sem gleður auga hennar mest.
SNÆFRÍÐ ÞORSTEINS Grafískur hönnuður og sýningarstjóri afmælissýningar Félags íslenskra teiknara.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
: E
.Ó
L.