Fréttablaðið - 16.10.2004, Síða 48
Þetta er ákaflega skemmtilegvinna. Ég held að það séekkert verra að vera kona í
þessum bransa enda sýna kannan-
ir að konur eru í meirihluta þeirra
sem kaupa og lesa bækur,“ segir
Dröfn Þórisdóttir, útgáfustjóri
Vöku-Helgafells, en hún tók við
starfinu síðastliðinn janúar. Segja
má að hún standi með pálmann í
höndunum þetta árið því hún er
útgefandi tveggja skáldverka
sem reiknað er með að nái met-
sölu um jól. Þetta eru skáldsögur
Ólafs Jóhanns Ólafssonar og Arn-
aldar Indriðasonar.
Ólafur Jóhann, Arnaldur
og Þórarinn
Bók Ólafs Jóhanns nefnist Sak-
leysingjarnir. „Það er mín skoðun
að þetta sé besta bók Ólafs Jó-
hanns,“ segir Dröfn. „Sakleys-
ingjarnir er mikil örlagasaga og
um leið eins konar aldarspegill.
Það er ekki á hverjum degi sem
íslenskur rithöfundur leggur jafn
mikið undir og Ólafur Jóhann
gerir í þessari bók. Nokkrar per-
sónur í bókinni eiga sér fyrir-
myndir úr íslenskum raunveru-
leika en Ólafur Jóhann fer afar
vel með efnið og allar persónurn-
ar fá að njóta sín. Arnaldur er
með frábæra bók, Kleifarvatn,
þar eru Erlendur, Sigurður Óli og
Elínborg í aðalhlutverki. Ég vil
flokka þessa bók með Mýrinni og
Grafarþögn og rétt eins og þær
geymir bókin mikið drama.“
Þórarinn Eldjárn sendir frá sér
sögulega skáldsögu sem nefnist
Baróninn. Aðalpersónan er barón-
inn frá Hvítárvöllum sem Barón-
stígur er kenndur við. „Þetta er
mjög áhugaverð og skemmtileg
bók, gaman að lesa um þennan
merkilega mann og hvaða áhrif
hann hafði á aldarbraginn á Ís-
landi í kringum 1900.“ segir
Dröfn. Kristín Steinsdóttir sendir
frá sér bók fyrir fullorðna, Sólin
sest að morgni. „Ákaflega falleg
bók og vel skrifuð, Kristín sækir
efnið í barnæsku sína á Seyðis-
firði,“ segir Dröfn.
Málsvörn Matthíasar
Málsvörn og minningar er bók eftir
Matthías Johannessen. „Ég á í vand-
ræðum með að flokka þessa bók því
að í henni eru ljóð, minningarbrot
og skáldskapur,“ segir Dröfn. „Ég
flokka hana reyndar undir skáld-
verk en bókin er svo miklu meira.
Það er óhætt að segja að Matthías
haldi ekki aftur af sér, hann gerir
upp ýmis mál, svarar fyrir sig og er
ekki að hlífa neinum.“
Síðan eru það bókmenntaverð-
laun Halldórs Laxness, þau verða
afhend í lok þessa mánaðar en ég
get ekki sagt neitt meira um verð-
launabókina annað en þetta er
bráðskemmtileg skáldsaga.
Vaka gefur út bókina Átakadag-
ar Elínar, sem er ævisaga Elínar
Torfadóttur fóstru, en hún er ekkja
verkalýðsleiðtogans Guðmundar J.
Guðmundssonar. „Elín hefur frá
mörgu að segja enda baráttukona í
orðsins fyllstu merkingu,“ segir
Dröfn. „Árni Johnsen er með mjög
skemmtilega bók, sem hann hefur
sjálfur kallað „stand up“ bók en
hefur titilinn Lífsins melódí. Þarna
er dýpsta alvara og óborganlegt
skop í bland. Bókin er mikill
skemmtilestur og ég skellti oft upp
úr við lesturinn.“
Krónprinsessan eftir Hanne-
Vibeke Holst fjallar um unga konu
sem er kölluð til starfa sem um-
hverfisráðherra. Þessi unga kona
þarf ekki aðeins að berjast við eigin
sannfæringu heldur annarra. Hér
eru launráð brugguð í hverju
skúmaskoti og engum að treysta.
Skáldsagan Ástaraldin er þegar
komin út en höfundur hennar er
Hollendingurinn Karel van Loon.
Þessi bók fjallar um mjög áhugavert
efni sem hefur verið mikið í fréttum
undanfarið, sem er faðernismál.
Súkkulaði og barnabækur
Af öðrum bókum má nefna Heims-
metabók Guinness. Þetta er 50 ára
afmælisútgáfa í þýðingu Árna
Snævarr, ríkulega myndskreytt.
Svo er bókin Súkkulaði eftir dansk-
an matreiðslumeistara, Morten
Heiberg. Mjög girnileg bók þar
sem er að finna uppskriftir af kon-
fekti og alls kyns réttum og saga
súkkulaðisins er þar vitanlega rak-
in. Nýkomin er út bókin Barn verð-
ur til, sjónrænt ævintýri um þenn-
an mikla viðburð, og fylgst er með
fóstri í móðurkviði. Þetta er góð
handbók fyrir verðandi foreldra.
Einnig gefur Vaka-Helgafell út
100% nylon, sem er bók um
stelpnasveitina vinsælu.
Barnabókaútgáfa Vöku-Helga-
fells er þó nokkur í ár. Guðrún
Helgadóttir er með bókina Öðru-
vísi fjölskylda sem er sjálfstætt
framhald af Öðruvísi dögum. Krist-
ín Steinsdóttir sendir frá sér bók-
ina Vítahringur, sem er saga sem
gerist á 10. öld og fjallar um son
Helgu Jarlsdóttur. Hann heitir
Grímkell og vill alls ekki vera
kappi en neyðist til þess. Elías
Snæland Jónsson er með bókina
Drekagaldur en það er saga sem
gerist í Goðheimum og Brynhildur
Þórarinsdóttir fékk íslensku
barnabókaverðlaunin í ár fyrir bók
sína Leyndarmál ljónsins, sem er
spennusaga í anda Enid Blyton-
bókanna. Óðhalaringla, þrjár
kostulegar kvæðabækur, eftir Þór-
arin Eldjárn með myndum Sigrún-
ar Eldjárn, Óðfluga, Halastjarna
og Heimskringla, eru komnar í
eina bók. Á næsta ári á H.C. Ander-
sen 200 ára afmæli og Vaka
þjófstartar af því tilefni og gefur
út fallega myndskreytta útgáfu af
12 bestu ævintýrunum.
kolla@frettabladid.is
Roth án tilnefningar
Tilkynnt hefur verið hvaða bækur verða tilnefndar til bandarísku National
Book Awards. Í skáldsagnageiranum vekur mikla athygli að Philip Roth
fær ekki tilnefningu fyrir bók sína The Plot Against America en bókin hef-
ur fengið einkar góða dóma. Höfundarnir fimm sem fá tilnefningu eru:
Sarah Shun-lien Bynum fyrir Madeleine Is Sleeping, Christine Schutt fyrir
Florida, Joan Silber fyrir Ideas of Heaven: A Ring of Stories, Lily Tuck fyrir
The News from Paraguay og Kate Walbert fyrir Our Kind: A Novel in Stor-
ies. Verðlaunin verða veitt 17. nóvember í New York.
BÓKASKÁPURINN
36 16. október 2004 LAUGARDAGUR
ALLAR BÆKUR
DA VINCI LYKILLINN
Dan Brown
ELLEFU MÍNÚTUR
Paulo Coelho
LÆRUM AÐ NEMA
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
DAGBÓK BARNSINS
Setberg
SÚPERFLÖRT
Tracey Cox
UNDIR SVIKULLI SÓL
Thorvald Steen
BARN VERÐUR TIL
Lennart Nilsson
NIÐUR MEÐ SYKURSTUÐULINN
Helen Foster
LÆKNUM MEÐ HÖNDUNUM
Birgitta Jónsdóttir Klasen
HVAÐ ER Á BAKVIÐ FJÖLLIN?
Helgi Guðmundsson
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
ELLEFU MÍNÚTUR
Paulo Coelho
UNDIR SVIKULLI SÓL
Thorvald Steen
DRAUGASAGA
Títus Maccíus Plátus
SÁLMABÓK
Ýmsir höfundar
SVAVA JAKOBSDÓTTIR - STÓRBÓK
Svava Jakobsdóttir
HÚS ÚR HÚSI
Kristín Marja Baldursdóttir
STEINN STEINARR - LJÓÐASAFN
Steinn Steinarr
LJÓÐÖLD - 100 LJÓÐ Á ALDARAFMÆLI
Guðmundur Böðvarsson
DAVÍÐ STEFÁNSSON - LJÓÐASAFN
Davíð Stefánsson - Ljóðasafn
SJÁLFSTÆTT FÓLK I&II
Halldór Laxness
SKÁLDVERK - KILJUR
DA VINCI LYKILLINN
Dan Brown
ÚLFURINN RAUÐI
Liza Marklund
MÝRIN
Arnaldur Indriðason
HR. IBRAHIM OG BLÓM KÓRANSINS
Eric-Emmanuel Schmitt
ÖXIN OG JÖRÐIN
Ólafur Gunnarsson
KVENSPÆJARASTOFA NÚMER 1
Alexander McCall Smith
KILLIANSFÓLKIÐ
Einar Kárason
DÍS
Birna Anna, Oddný og Silja
SNJÓRINN Á KILIMANJARO
Ernest Hemmingway
VILLIBIRTA
Liza Marklund
LISTINN ER GERÐUR ÚT FRÁ SÖLU
DAGANA 06.10.-12.10. 2004 Í BÓKABÚÐUM
MÁLS OG MENNINGAR,
EYMUNDSSONAR OG PENNANUM
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]
Á ÞESSUM DEGI ÁRIÐ 1854 fæddist fagurkerinn Oscar Wilde í Dublin á Írlandi þar
sem hann ólst upp. Hann fór í nám til Oxford og varð fljótlega þekktur vegna fyndni
sinnar og áberandi lífsstíls. Hann skrifaði leikrit, smásögur og eina skáldsögu, Mynd-
ina af Dorian Gray. Wilde kvæntist og eignaðist tvo syni með konu sinni en árið
1895 var hann dæmdur í tveggja ára þrælkunarvinnu vegna samkynhneigðar. Síð-
ustu árunum eyddi Wilde í París, niðurbrotinn maður. Hann lést árið 1900.
Bakverkur Goethes
Nýjar rannsóknir sýna að þýska skáldið Jóhann Wolfgang von
Goethe þjáðist af slæmum bakverk í 40 ár. Þýskur mannfræð-
ingur, sem rannsakað hefur beinagrind Goethes, segir skáldið
hafa þjáðst mjög og átt erfitt með að beygja sig. Samtíma-
menn Goethes dáðust mjög að því hversu tígulega hann bar
sig í ellinni þegar hann var á göngu. Mannfræðingurinn, sem
sérhæfir sig í að rannsaka beinagrindur frægra manna, segir
að Goethe hafi verið búinn að missa flestallar tennur sínar
þegar hann lést árið 1832, 82 ára.
„Ást mín er eilíf,“ kallaði Klara
um leið og hún vökvaði stofublómið.
Vatnskannan hvíslaði: „Ég er
Dettifoss.“
Emil Aarestrup
DRÖFN ÞÓRISDÓTTIR „Ég held að það sé ekkert verra að vera kona í þessum bransa enda sýna kannanir að konur eru í meirihluta
þeirra sem kaupa og lesa bækur.“
VAKA-HELGAFELL ER MEÐ TVÆR ÖRUGGAR METSÖLUBÆKUR Á ÚTGÁFULISTA SÍNUM
Skáldverk og minningar
Rétt gerð
Sorgar
Ný bók Jóns Viðars Jónssonar,
Kaktusblómið og nóttin, um ævi og
skáldskap Jó-
hanns Sigurjóns-
sonar, er um
margt athyglis-
verð. Í bókinni er
til dæmis í fyrsta
skipti birtur texti
Sorgar sam-
kvæmt handrit-
um Jóhanns, eins
og hann virðist
hafa gengið endanlega frá ljóðinu.
Miðað við þau handrit sem til eru
í safni Sigurðar Nordal er tæpast
hægt að sjá annað en Sigurður hafi
gert ákveðnar breytingar á verkinu
að eigin geðþótta þegar hann birti
það í Vöku 1927. Eitt magnaðasta
verk íslenskrar ljóðlistar og mesta
tímamótaverk hefur samkvæmt því
aldrei fyrr birst eins og skáldið
sjálft gekk frá því, fyrr en nú í bók
Jóns Viðars. ■
JÓN VIÐAR
JÓNSSON