Fréttablaðið - 16.10.2004, Qupperneq 49
LAUGARDAGUR 16. október 2004 37
Skáldið í skriftinni - Snorri Sturlu-
son og Egils saga eftir Torfa H. Tul-
inius. Í þessari bók heldur Torfi því
fram að Snorri Sturluson hafi samið
Egils sögu á árunum 1239 til 1241
til að stuðla að sáttum meðal Sturl-
unga. Hann dregur fram fjölmargar
hliðstæður á milli lýsingarinnar á
Agli Skallagrímssyni og ævi Snorra
og setur fram tilgátur um þær
ástæður sem Snorri kann að hafa
haft fyrir ritun verksins. Þetta er vel
skrifuð og áhugaverð bók og kenn-
ingarnar eru margar hverjar ansi
ögrandi.
[ BÓK VIKUNNAR ]
Zik Zak kvikmyndir ehf., fram-
leiðendur kvikmyndarinnar Næs-
land sem frumsýnd var nú á dög-
unum, hefur keypt kvikmynda-
réttinn á barnabókinni Öðruvísi
dagar eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Öðruvísi dagar hlaut einstak-
lega góðar viðtökur hjá lesendum
jafnt sem gagnrýnendum á Ís-
landi þegar hún kom út 2002 og
var bókin mest selda íslenska
barnabókin þau jól. Í bókinni seg-
ir frá níu ára telpu, Karen
Karlottu, sem er um margt ólík
jafnöldrum sínum. Óvænt at-
burðarás fer af stað þegar hún og
bróðir hennar kynnast gamalli,
dularfullri konu í götunni. Sagan
er full af spaugilegum uppákom-
um og eftirminnilegum persónum
sem vafalítið eiga eftir að njóta
sín vel á hvíta tjaldinu.
Guðrún Helgadóttir er einn
vinsælasti og virtasti barnabóka-
höfundur landsins. Hún hefur
sent frá sér tuttugu sögur og fjög-
ur leikrit. Verk hennar hafa verið
þýdd á níu tungumál í Evrópu,
Bandaríkjunum og Asíu. Bækur
Guðrúnar hafa hlotið góða dóma
heima og erlendis þar sem menn
hafa skipað henni á bekk með
barnabókahöfundum á borð við
Astrid Lindgren, Thorbjörn
Egner og Anne-Cath. Vestly.
Guðrún hefur hlotið fjölmörg
verðlaun og viðurkenningar fyrir
ritstörf sín. Fræðsluráð Reykja-
víkur veitti henni barnabókaverð-
laun sín fyrir fyrstu bók hennar,
Jón Oddur og Jón Bjarni, árið
1975. Árið 1980 fékk hún viður-
kenningu úr sjóði Thorbjørns
Egner og átta árum síðar viður-
kenningu Íslandsdeildar IBBY-
samtakanna. Árið 1992 hlaut Guð-
rún Norrænu barnabókaverðlaun-
in fyrir bókina Undan illgresinu
og barnabókaverðlaun Skólamála-
ráðs Reykjavíkur fyrir Litlu grey-
in. Á þessu ári er hún tilnefnd til
hinna virtu alþjóðlegu Astrid
Lindgren-verðlauna. Guðrún er
nú að leggja lokahönd á handrit að
næstu barnabók sinni sem fær
heitið Öðruvísi fjölskylda og kem-
ur út hjá Vöku-Helgafelli í haust.
Zik Zak kvikmyndir ehf. var
stofnað árið 1995 af Þóri Snæ Sig-
urjónssyni og Skúla Fr. Malmquist.
Fyrirtækið hefur framleitt fimm
kvikmyndir í fullri lengd sem allar
hafa hlotið verðskuldaða athygli.
Næsland er nýjasta mynd þeirra.
Hinar eru Nói albínói, Gemsar,
Villiljós og Fíaskó. ■
Texas bann-
ar bækur
Texas-ríki er ekki beinlínis þekkt
fyrir frjálslyndi og þar er ekki
óalgengt að klassískar bækur séu
litnar hornauga, og má þar sem
dæmi nefna 1984 eftir George
Orwell og Pétur Pan eftir J.M.
Barrie. Á skólaárinu 2003-2004
voru 62 bókatitlar fjarlægðir úr
skólabókasöfnum vegna kvartana
kennara og foreldra, og höft voru
sett á útlán 33 titla, en þar á með-
al er skáldsagan 1984.
Helst var kvartað yfir kynlífs-
lýsingum í bókunum en einnig var
efni sumra þeirra ekki talið henta
börnum. Þar á meðal er bókin The
Upstairs Room, sjálfsævisaga Jó-
hönnu Reiss, en hún komst undan
ofsóknum nasista með því að fara
í felur. Uppvaxtarsagan Black
Boy eftir Richard Wright var
einnig sett á bannlista og hið sama
á við um Pulitzer-verðlaunabók
Alice Walker, The Color Purple. ■
ALICE WALKER Verðlaunabók hennar
The Color Purple er ekki talin æskileg
lesning fyrir börn í Texas.
GUÐRÚN HELGADÓTTIR Kvikmyndaréttur á bók hennar, Öðruvísi dagar, hefur verið seldur.
Öðruvísi dagar verða kvikmynd