Fréttablaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 16. október 2004 39
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á ÞRIÐJUDÖGUM
Augun aftur á ensku úrvalsdeildinni
Arsenal, Chelsea og Manchester United eru öll í eldlínunni í dag og
þau tvö síðastnefndu þurfa að fara að sanna sig sem alvöru áskorendur
meistaranna frá Highbury.
FÓTBOLTI Enski boltinn fer aftur á
stað í dag eftir tveggja vikna
landsleikjafrí og nú kemur fljót-
lega í ljós hvort Chelsea og
Manchester United ætli að gera
alvöru úr því að ógna meisturun-
um úr Arsenal, sem geta leikið
sinn 49. deildarleik í röð án þess að
tapa þegar þeir fá Aston Villa í
heimsókn á Highbury. Það reynir
þó væntanlega meira á lið Chelsea
og United sem fara í erfiða útileiki
á meðan meistararnir taka vel á
móti Aston Villa, sem hefur ekki
enn unnið á útivelli í vetur.
Arsenal-liðið spilar nú sinn
fyrsta leik eftir að spænski lands-
liðsþjálfarinn lét hin óheppilegu
orð falla um Thierry Henry við
lærisvein sinn og félaga Henry í
sókninni, Jose Antonio Reyes. Þeir
Henry og Reyes hafa skorað sam-
an 13 mörk og lagt upp önnur 11 í
fyrstu átta leikjum tímabilsins og
eiga stóran þátt í því að liðið hefur
þegar skorað 26 mörk í deildinni
eða 3,25 mörk að meðaltali í leik.
Það er sem dæmi aðeins lið
Newcastle (16 mörk) sem hefur
skorað fleiri mörk en þeir félagar
og ef marka má samvinnu þeirra í
4-0 sigri á Charlton fyrir tveimur
vikum er engin hætta á öðru en að
allt verði við það sama þegar Villa-
menn reyna að stoppa Arsenal-
hraðlestina í dag.
Chelsea er enn án Didier
Drogba og þarf liðið að fara að
finna hjá sér markaskorara hið
fyrsta. Okkar maður hefur skorað
fjórum sinnum fleiri mörk fyrir
íslenska landsliðið en Lundúnalið-
ið á þessu tímabili og það væri
mikilvægt fyrir Chelsea ef hann
færi að skora meira, ekki síst þar
sem liðið hefur aðeins skorað átta
mörk í átta fyrstu deildarleikjun-
um, 18 færri en Arsenal, en góð
vörn hefur séð til þess að stiga-
munurinn er bara tvö stig. Tékk-
neski markvörðurinn Peter Cech
hefur aðeins fengið á sig eitt mark
í fyrstu átta leikjum sínum í ensku
úrvalsdeildinni en Joe Cole er hins
vegar eini leikmaður liðsins fyrir
utan Drogba sem hefur skorað
fleiri en eitt mark í úrvalsdeild-
inni.
Manchester United er loksins
komið með sitt sterkasta lið og það
gladdi Alex Ferguson að sjá þá
Cristiano Ronaldo með Portúgal
og Ruud van Nistelrooy með
Hollandi skora tvívegis í góðum
sigrum sinna þjóða í vikunni sem
og að endurheimta alla landsliðs-
menn sína heila. United er níu
stigum á eftir Arsenal í fjórða
sætinu og má því ekki misstíga sig
mikið til viðbótar. Augun verða
áfram á Wayne Rooney, sem skor-
aði þrennu í fyrsta leik sínum eft-
ir meiðslin en hefur síðan spilað
einn deildarleik og tvo landsleiki
án þess að skora. Alex Ferguson
reynir eflaust líka að passa upp á
álagið á stráknum um leið og hann
reynir að rétta af leik liðsins, sem
var allt annað en sannfærandi í
upphafi tímabils. ■
SÁ EINI MEÐ TVÖ MÖRK Joe Cole er eini leikmaður Chelsea fyrir utan hinn meidda
Didier Drogba sem hefur skorað fleiri en eitt mark í fyrstu átta umferðum ensku úrvals-
deildarinnar. Joe Cole sést hér í leik gegn Tottenham fyrr í vetur.