Fréttablaðið - 16.10.2004, Qupperneq 54
Þ að er heilmikill bægslagang-ur í tveimur frumsýningar-myndum helgarinnar að
þessu sinni en í Anacondas glímir
hópur vísindamanna við grimmar
risakyrkislöngur á meðan smáfisk-
urinn Oscar er á flótta undan mafíu-
hákörlum í tölvuteiknimyndinni
Shark Tale.
Anacondas er sjálfstætt fram-
hald spennumyndarinnar Anaconda
frá árinu 1997. Sú mynd sló óvænt í
gegn en þar komust Jennifer Lopez,
Ice Cube, Jon Voight og Eric Stoltz
heldur betur í hann krappann á
fenjasiglingu þegar risavaxin
mannætukyrkislanga varð á vegi
þeirra. Það er ekki jafn mikið af
frægum leikurum í Anacondas en
slöngurnar eru hins vegar mun
fleiri og hætturnar því á hverju
strái.
Dauðinn í fenjunum
Framleiðandi myndarinnar segist
alltaf hafa viljað vinna frekar með
kyrkislöngurnar og hún hafi þess
vegna hellt sér út í verkefnið full
eftirvæntingar en drjúgur tími fór í
þróun sögunnar. „Við ætluðum upp-
haflega að láta slöngurnar berast til
New Orleans með báti frá Amazon-
fljótinu. Það var skemmtileg hug-
mynd en hún varð of flókin. Við
ákváðum því að halda okkur í frum-
skóginum en nú fylgjumst við með
vísindamönnum sem eru að leita að
blómi sem á að geta tryggt eilífa
æsku. Þau lenda svo auðvitað í
meiriháttar vandræðum þar sem
þau koma í skóginn á fengitíma
slanganna.“
Slöngurnar eru því í banastuði í
bókstaflegri merkingu og kæra sig
ekkert um óþarfa mannaferðir þó
þær láti sig ekki muna um að gæða
sér á ráðviltum ferðalöngum frá
New York.
Framleiðendurnir myndarinnar
eru hæstánægðir með útlitið á nýju
slöngunum sínum en framfarirnar í
tölvutækninni hafa verið slíkar frá
árinu 1997 að tölvuteiknuð kvikind-
in eru mjög fim í áflogum og auðvit-
að ákaflega raunveruleg.
Brimsalt mafíugrín
Það er ekki jafn mikil háspenna og
lífshætta í tölvuteiknimyndinni
Shark Tale þó hún greini frá skipu-
lagðri glæpastarfsemi neðansjávar
enda um fjölskylduvæna teikni-
mynd að ræða. Framleiðendur
hennar hika til að mynda ekki við að
bera hana saman við Shrek þar sem
hún leikur sér að ákveðinni bíó-
myndahefð. „Shrek tók ævintýrin á
beinið en þessi mynd tekur sígildu
mafíubófamyndina í gegn og snýr
öllu á hvolf,“ segir einn framleið-
endanna, sem er ekki síst stoltur af
leikaraliðinu sem hann fékk til að
tala fyrir persónur myndarinnar en
þar á meðal eru tveir höfuðpáfar
glæpamyndanna, leikstjórinn Mart-
in Scorsese og sjálfur Robert De
Niro, ásamt Michael Imperioli sem
er þekktastur sem Christopher í
The Sopranos. Þá fer Will Smith
með aðalhlutverkið dyggilega
studdur af hinum óborganlega Jack
Black og þungaviktarkonunum
Renée Zellweger og Angelinu Jolie.
Þessi hópur er svo glæsilegur að
framleiðendur myndarinnar full-
yrða að það sé stórvirki að hafa leitt
allt þetta fólk saman í einni og sömu
myndinni.
Hákarlabani í vondum málum
Smith talar fyrir smáfiskinn Oscar
sem er á botni fæðukeðjunnar í
neðansjávarrríkinu sem mafíuhá-
karlinn Don Lino (De Niro) stjórn-
ar. Oscar dreymir um frægð og
frama og er svo upptekinn af
framapoti sínu að hann tekur ekki
eftir henni Angie (Zellweger) sem
er svaka skotin í honum. Fyrir
hreinan misskilning kemst sú saga
á kreik að Oscar hafi kálað hákarl-
inum Frankie (Imperioli) sem er
annar krónprins Don Lino. Hinn er
grænmetisætan Lenny sem er ekki
líklegur til að uppfylla vonir föður
síns þar sem hann vill engri lifandi
veru illt. Þeir Oscar og Lenny
ganga í bandalag sem þeir telja að
geti bjargað þeim báðum úr klíp-
unni sem þeir eru í en það hitnar
heldur betur undir Oscari þegar
hann er stimplaður „hákarlabani“.
Þá fær hann að vísu alla þá athygli
sem hann hefur látið sig dreyma
um og aðalgellan á kóralrifinu, hún
Lola (Jolie), fær mikinn áhuga á
honum.
Lola er dæmigert tálkvendi og
því stórhættuleg ístöðulausum
körlum eins og Oscari. „Lola er svo-
lítill gullgrafari,“ segir Angelina
Jolie. „Hún tók ekkert eftir Oscari
þegar enginn vissi hver hann var en
um leið og hann verður frægur
reynir hún að draga athygli hans
frá einu sönnu ástinni í lífi hans.
Hún er frekar grunn og ég er ekki
viss um að ég hefði viljað leika
hana ef hún væri ekki fiskur. En ég
elska hana sem fisk.“ ■
42 16. október 2004 LAUGARDAGUR
Ómissandi á DVD Fyrstu tveir árgangar hinna sígildu Dallas-þátta eru komnir út á DVD í einu boxi.
Þættirnir héldu alþjóð límdri við sjónvarpstækin á árum áður enda allt að gerast hjá ríka fólkinu í
olíubransanum. Bullandi alkóhólismi, framhjáhald, fjölskylduerjur, svindl og svínarí. Eðalskúrkurinn
J.R. Ewing keyrði þetta svo allt áfram með snilldartöktum og skítlegu eðli. Það verður enginn svik-
inn af því að endurnýja kynni sín við Bobby, Pamelu, Sue Ellen, Cliff Barnes, Lucy, Jock Ewing, hina
blíðu Miss Ellie og síðast en ekki síst snillinginn J.R.
[ SMS ]
UM MYNDIRNAR Í BÍÓ
WIMBLEDON Gagnrýnandi Fréttablaðsins
segir myndina vera vel yfir meðallagi í
flokki rómantískra gamanmynda fa þessu
tagi en varar þá sem þola ekki tennis við
henni.
Wimbledon
„ Af þessu öllu verður ágæt mynd, rómantísk,
nokkuð fyndin, talsvert barnaleg á köflum - eins
og breskra rómantískra gamanmynda er jafnan
háttur - en yfir meðallagi í leik og söguþræði. Pör
voru þónokkur í bíó. Myndin er ekki við hæfi þeir-
ra sem þola ekki tennis.“
GS
Dodgeball
„Hefst þá hin skemmtilegasta atburðarás sem
heldur manni brosandi allan tímann, það vantar
ekki. Og spenntum. En maður liggur aldrei afvelta
af hlátri, eins og maður bjóst við að maður myndi
gera. Ben Stiller er auðvitað fyndinn sem vaxtar-
ræktartröllið og orð-óheppni hans í mannlegum
samskiptum er einkar spaugileg, en það vantar
samt hina ótrúlegu fyndnu og beittu brandara sem
maður bjóst við að efniviðurinn og leikarahópur-
inn myndi færa manni. Ágætis mynd og skemmti-
leg, en undir væntingum.“
GS
Næsland
„Það er margt vel gert í Næslandi enda enginn
skortur á fagmönnum sem koma að framleiðsl-
unni. Kvikmyndatakan er flott, sviðsetningin á köfl-
um snilld, leikararnir standa sig upp til hópa prýði-
lega og tónlistin er fín en samt er eitthvað að klik-
ka þannig að eftir stendur áferðarfalleg mynd sem
er ekkert sérstaklega skemmtileg og ristir ekki
djúpt.“
ÞÞ
Collateral
„Í raun er hér um klassíska baráttu góðs og ills að
ræða. Að þessu sinni fer hún fram í leigubíl, á milli ní-
hilista sem fer um stórborgina drepandi fólk eins og
engill dauðans og er skítsama, og leigubílstjóra sem
trúir enn á drauma og hið góða í lífinu. Og spennan
er klassísk: hvort aflið verður hinu yfirsterkara? Colla-
teral er mjög vel leikin, innihaldsrík í söguþræði, upp-
full af bitastæðum smáatriðum, vel skrifuð og vel út-
færð. Hvað getur maður sagt meira?“
GS
Man on Fire
„Þrátt fyrir tómahljóðið í söguþræðinum má vel
hafa gaman af Man on Fire, sérstaklega ef maður
er veikur fyrir hefndardrama og nýtur þess að sjá
óþokka þjást en í bestu atriðum myndarinnar níð-
ist Creasy heldur ruddalega á óvinum sínum.“
ÞÞ
Girl Next Door
„En myndin kemur bara nokkuð skemmtilega á
óvart á vitsmunalega sviðinu, og það er hennar
styrkur. Og hún er líka nokkuð fyndin og tónlistin
er góð. Svo eru líka ágætis pælingar í henni, til
dæmis um siðferði og pólitík.“
GS
Anchorman
Ef bíó á að leysa einhverjar lífsgátur þá er þessi
mynd auðvitað tímaeyðsla. Það er ekkert merkilegt
í henni. En ef fólk vill akkúrat sjá eitthvað þannig –
svona sæmilegan fíflaskap með kæruleysislegu yf-
irbragði – er hægt að mæla með þessari.
GS
„Barnes just broke the cardinal rule in politics:
never get caught in bed with a dead woman or
a live man.“
- Eðalskúrknum J.R. Ewing varð aldrei orða vant
og gullkornin sem hann lét falla í Dallas á á
árunum 1978-1991 gætu fyllt nokkrar símaskrár.
Mafíuhákarlar og
morðóðar kyrkislöngur
OSCAR OG LENNY Eru ekki neitt sérstaklega kaldir karlar og reyna því að koma sér úr klandri með blekkingum og lygum. Það kann
ekki góðri lukku að stýra, sérstaklega ekki þegar maður er að fást við hákarlamafíuna.
JOHNNY MESSNER Leikur einn vísindamannanna sem álpast inn í frumskóginn á fengi-
tíma risakyrkislanganna sem éta gutta eins og hann í hádegismat.