Fréttablaðið - 16.10.2004, Page 64

Fréttablaðið - 16.10.2004, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Sendu SMS skeytið JA STF á númerið 1900 og þú gætir unnið - Miðar á myndina - SHARK TALE tölvuleikir - DVD myndir - Varningur tengdur myndinni og margt fleira. 1.490,- TRUNNA ljósakróna IK E 25 95 9 1 0. 20 04 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 4 Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is Nýtt og spennandi! 1.290,- RIBBA rammi 50x23 sm 2.990,- DUNKER gólflampi/skilrúm 71x120 sm 590,- TRUDELUTT ketill 1,5 l 545,- ARV IDYLL bolli og undirskál 95,- VILDBÄR blómapottur 695,- BATIST vasi H30 sm munnblásið gler 345,- DOFTA ilmjurtir í glasi, 3 stk. 390,- ARV IDYLL skál 15 sm 1.490,- LACK hliðarborð 55x55, H45 sm 1.490,- ALKOV diskur Ø60 sm 2.990,- DINERA matarstell, 18 stk. 1.990,- TERJE fellistóll 1.990,- HORTEN spegill Ø60 sm 1.990,- BRANÄS karfa 68x24x24 sm 490,- Nýr réttur Kryddjurtabakaður lax með grænmeti 2.290,- PÄLLBO skemill 39x39, H38 sm 990,- TANJA BLOMMIG rúmföt 150x210/50x60 sm Skemmtilegt Eitt er skemmtilegt við verkföll ogsvoleiðis, svo maður reyni nú að horfa á björtu hliðarnar og freisti þess að létta brúnina á niðurdregn- um foreldrum þessa lands og kennur- um sem horfa vondaufir í tómið, og á bæjarstjórum sem eiga enga peninga og á krökkum sem vilja læra og yfir- leitt bara á öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna kjaramála kenn- arastéttarinnar um þessar mundir. ÞAÐ sem ég vil segja er þetta: Hvenær hefði Haraldur Ólafsson veðurfræðingur rokið til og stofnað einkaskóla í Vesturbænum nema í verkfalli grunnskólakennara? Ég veit að þetta kann að virðast smávægilegt og ég get ímyndað mér að fólki sem verður hvað harðast úti í kennara- verkfallinu stökkvi varla bros við þessa athugasemd, en bíðið nú aðeins hæg. Þetta er dáldið skemmtilegt. VERKFÖLL kenna naktri konu að spinna. OG ÞAÐ er fleira svona svipað sem hefur gerst í gegnum tíðina. Í einu verkfallinu ruku menn til og stofn- uðu ólöglegar útvarpsstöðvar. Það var dáldið gaman. Í öðru verkfalli tóku menn upp á því að drekka vanilludropa til þess að detta í það. Þannig getur mannsandinn bjargað sér jafnvel við hinar hryllilegustu að- stæður, eins og þegar Ríkið er lokað í mánuð. BERAST ekki tíðindi af því að fræðsluefni fyrir börn hafi aldrei selst eins vel og einmitt núna? Hver hefði búist við því að árið 2004 myndu bókaskruddur með fræðslu- efni fyrir krakka seljast í bílförm- um? Þetta er verkfallið. Fólk hugsar: „Jæja, ætli ég verði ekki að reyna að troða einhverri vitneskju inn í haus- inn á gríslingunum fyrst að þetta er hvort sem er heima allan daginn og hefur ekkert að gera nema horfa á PoppTíví.“ VERKFÖLL eru kannski bara meiri- háttar. Önnur hlið á sama teningi er það þegar ýmislegt er bannað. Eins og til dæmis rjúpnaveiðibannið. Það virkar eins og verkfall. Og hvað gera menn í svona kringumstæðum? Jú, jólamatur Íslendinga hefur aldrei verið fjölbreyttari. Hver hefði búist við því að Jói Jóns í næsta húsi pant- aði sér skoska rjúpu á internetinu til að hafa í jólamatinn? Eða að Sigga Sigurðar keypti sér hreindýr? TJA SEI SEI. Kannski við ættum að fara að beita þessu markvisst í þjóð- félaginu okkur til skemmtunar. Svona til þess að halda okkur á tán- um. Við gætum til dæmis bannað pizzur eitt árið. Það gæti orðið gam- an. Sanniði til. Við myndum upplifa alveg nýja siði í heimsendingu á skyndibitafæði: „Ég ætla að fá eina lummu með pepperóni.“ Eða betra: „Ég ætla fá hjá þér sextán tommu kex með skinku, sveppum og an- anas.“ ÞAÐ er dáldið gaman að þessu. BAKÞANKAR GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.