Fréttablaðið - 02.12.2004, Side 51
Undanfarinn áratug hefurframþróun víngerðar íChile verið mikil. Landið
nýtur þeirrar gæfu að sjúkdómar
hafa aldrei herjað á vínviðinn og
fáum vínlöndum hefur verið
jafnríkulega útdeilt gæðum af
móður náttúru. Andesfjöllin
mynda mikið skjól og sólin
skín stöðugt þar sem fjöllin
soga til sín regnskýin. Regn-
vatnið skilar sér síðan niður
hlíðarnar og því eru þurrkar
ekki vandamál. Mikið hefur
verið gert í að auka gæði
ræktunarinnar og einnig hef-
ur það hjálpað til að stöðugleiki í
efnahagslífinu hefur styrkt rekstrar-
umhverfi víngerðarinnar.
Vina Maipo var stofnsett um
1900 og er staðsett í Central Valley
þar sem samspil loftslags og jarðveg-
ar skapar ákjósanlegar aðstæður fyrir
góð vín. Á áttunda áratug síðustu
aldar fór Vina Maipo fyrst að selja
vín til Evrópu og á síðustu misserum
hafa vinsældir þeirra farið ört vax-
andi. Vínin hafa átt miklum vinsæld-
um að fagna í nágrannalöndum okk-
ar og má nefna að Vina Maipo kassa-
vínin eru með söluhæstu kassavínun-
um í Svíþjóð. Nýverið hófst innflutn-
ingur á vínum þeirra hing-
að til lands og fást vínin í
Heiðrúnu og Kringl-
unni. Vina Maipo
framleiðir ákaflega að-
gengileg borðvín á
hagstæðu verði. Hér á
landi fást fjórar teg-
undir vína frá þeim,
auk þeirra sem fjallað
er nánar um hér að
neðan má fá vín úr
merlot og blandað vín
úr cabernet sauvignon
og merlot.
Afmælis-
hnattreisa
Torres
Spænska víngerð-
a r m a n n i n u m
Miguel Torres er
þakkað það að
hafa nánast ein-
sömlum tekist að
umbylta spænskri
víngerð og koma
henni í fremstu
röð í heimin-
um. Um þess-
ar mundir er
haldið upp á
50 ára af-
m æ l i
T o r r e s
Sangre de
Toro og
T o r r e s
Vina Sol,
m e s t
seldu vína
S p á n a r .
Af því til-
efni kom
hingað til
lands full-
trúi fyrir-
t æ k i s i n s
Imma Ll-
opar og
kynnti vínin frá Torres. Auk hinna
geðþekku borðvína Sangre de Toro og
Vina Sol bauð hún upp á hið athygl-
isverða hvítvín Marimar sem fram-
leitt er í Russian River Valley eða
Rússaárdal sem er í Kaliforníu. Feitt
og smjörkennt vín eins og vera ber um
kalifornískt hvítvín en fínlegra og
evrópskara í sér en algengt er um am-
erísk vín.
Vínið er nefnt eftir höfundi þess,
Marimar Torres, en hún er systir
Miguels. Hún hefur stundað víngerð í
Sonoma-sýslu í aldarfjórðung með at-
hyglisverðum árangri. Torres-fjöl-
skyldan stundar víngerð í þremur
löndum, Chile og Bandaríkjunum
auk heimalandsins Spánar. „Hjarta
framleiðslunnar er á Spáni og vín-
gerðin í Chile og Bandaríkjunum er
bara örlítið brot af heildarframleiðsl-
unni. Hins vegar er það mjög merki-
legt að hér á Íslandi seljast Torres-
vínin frá Chile nánast jafnmikið og
vínin sem eru framleidd á Spáni. Það
er til marks um gríðarlegar vinsældir
Chile hér á landi því þetta þekkjum
við ekki á öðrum mörkuðum,“ segir
Imma Llopar. Hún er nú á ferðalagi
um heiminn til að fagna afmæli San-
gre de Toro og segir tilefnið svo gott
að hún ætli að treina afmælið langt
fram á næsta ár! Torres sé orðið al-
þjóðlegt fyrirtæki en hún þvertekur
fyrir að víngerðin sé að alþjóðavæðast,
séreinkenni hvers lands hafi aldrei
verið mikilvægari en nú þegar til-
hneigingin sé að gera öll vín eins.
Hið ágæta borðvín Sangre de Toro
hefur hlotið mjög góðar viðtökur og
vann meðal annars gullverðlaun á
International Wine & Spirit
Competition.
F219FIMMTUDAGUR 2. desember 2004
Vina Maipo Chardonnay
Epli og suðrænir ávextir einkenna
þetta einstaklega ferska vín sem er í
góðu jafnvægi. Mjög gott með sjáv-
arréttum, einkum skelfiski. Verð í
vínbúðum 3.590 kr. í 3 l kassa og 990
kr. í 75 cl flösku
Vina Maipo Cabernet Sauvignon
Einkennist af plómum, brómberum,
súkkulaði og vanillu. Mjög gott með
rauðu kjöti, ekki síst grilluðu, pasta og
ostum. Verð í vínbúðum 3.590 kr. í 3 l
kassa og 990 kr. í 75 cl flösku
Vina Maipo: Ný vín frá Chile