Fréttablaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 82
Líf og starf íslensku hermann-
anna sem hafa dvalið á Kabúl-
flugvelli síðan í júní er viðfangs-
efni leikstjórans Friðriks Guð-
mundssonar og framleiðandans
Kristins Hrafnssonar í myndinni
Íslenska sveitin. „Við fáum þarna
að fylgjast með daglegu lífi her-
mannanna og skotæfingum. Þeir
deila með okkur eigin hugrenn-
ingum til umhverfisins, hugverks
og vopnaburðar. Þarna eru svip-
myndir bornar saman við ríkjandi
sjálfsmynd þjóðarinnar sem frið-
söm og vopnlaus þjóð,“ segir
Kristinn Hrafnsson framleiðandi
myndarinnar.
Tónlist skipar stærðarinnar
sess í myndinni og sér tónlistar-
maðurinn Barði Jóhannsson í
Bang Gang um þann þátt. „Barði
hefur hannað magnað tónverk
fyrir myndina en auk þess eru
leikin gömul íslensk dægurlög í
þessu nýja umhverfi heitrar eyði-
merkursólarinnar.“
Háskólabíó sýnir myndina og
er hún forsýnd í kvöld og fer í al-
menna sýningu á morgun. „Það
ætti engum að leiðast á þessari
mynd því það er nóg að gerast í
henni og strákarnir sem voru
þarna við störf eru í fókus. Þeir
eru persónur og leikendur í þess-
ari mynd. Myndin er í fullri lengd
eða áttatíu mínútur og í henni eru
engin óhugnanleg atriði og því er
hún leyfð öllum aldurshópum.
Ekki er hægt að skilgreina mynd-
ina sem fræðslumynd og hún fer
fjarri því að vera heimildarmynd
í anda Michael Moore þar sem
menn fella sleggjudóma um þær
hermannalegu stellingar sem þeir
eru í. Markmið myndarinnar er að
kveikja umræðu um þetta verk-
efni og stöðu Íslands í samstarfi
við aðrar hernaðarþjóðir.“ ■
42 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
FRÁBÆR SKEMMTUN
Shall we Dance?
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 12
SÝND kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 16
SÝND Í LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i. 14 Sýnd kl. 4
MINDHUNTERS SÝND KL. 8 & 10.20 B.I. 16 ára
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 B.I.12 ára
Sýnd kl. 4, 5.40, 8 og 10.20 Sýnd í LÚXUS VIP kl. 5.40, 8 og 10.20
Richard Gere, Jennifer Lopez og Susan Sarandon í
HHH kvikmyndir.comSýnd kl. 5.50
Sýnd kl. 10.15
HHH1/2 kvikmyndir.is
HHH kvikmyndir.com
HHH
HL Mbl
HHH Balli / Sjáðu PoppTV
Kolsvört jólagrínmynd
Sama Bridget. Glæný dagbók.
Fór beint á toppinn í USA
Frá leikstjóra Mr Deeds kemur gamanmynd
sem fær þig til að missa það algjörlega.
THE GRUDGE kl. 8.15 og 10.20 B.I.16 ára
"Snilldarþriller! Skuggalega
hrollvekjandi!"
- Variety
"Nístir inn að beini!"
- Elle
"Upplifun! Meiriháttar!"
- Leonard Maltin
"Snilldarþriller! Skuggalega hrollvekjandi!"
- Variety
"Nístir inn að beini!"
- Elle
"Upplifun! Meiriháttar!"
- Leonard Maltin
L. 627 Sýnd kl. 10
Film Noir Kvikmyndahátíð
(allar myndir með enskum texta)
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 B.I.12 ára
CINDERELLA STORY kl. 4 og 6 SHARK TALE kl. 3.45 & 6.15 m/ísl. tali
HHH Ó.Ö.H DV
HHH
S.V. Mbl
JÓLAKLÚÐUR KRANKS
HHH1/2 kvikmyndir.is
HHH kvikmyndir.com
HHHHL Mbl
HHH
S.V. Mbl
Óttist endurkomuna
því hann er mættur aftur
vígalegri enn nokkru sinni fyrr!!
■ KVIKMYNDIR
Grand Rokk - You´ll never drink alone.
Í kvöld:
Smokie Bay
blues band
Pollock bræður Danni og Mikki ásamt Gunnari
Hrafnsyni á bassa og Gunnari Erlingssyni
á trommur.
Minnum á spurningakeppnina vinsælu,
pub quiz, á morgun kl. 17.30.
Leonardo DiCaprio elskarað vera með þýskri
ömmu sinni sem er
óhrædd við að segja
það sem henni finnst.
Leonardo segir Helene
DiCaprio sífellt koma
honum á óvart. Amm-
an gerði sér lítið fyrir og
gagnrýndi verk Pablos
Picasso þegar fjölskyld-
an fór á síðustu sýn-
ingu meistarans í París. „Hún var
mjög stillt þangað til ég spurði hana
álits á einni myndinni. Hún sagði:
„Þú gætir sagt mér að þetta væri
snákur, blóm eða hundur og ég
myndi samþykkja það. Veistu af-
hverju? Af því að þetta lítur ekki út
eins og neitt.“ Hún segir fólki ná-
kvæmlega hvað henni finnst og horf-
ir beint í augun á þeim. Hún leyfir sér
það því hún er 89 ára gömul.“
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Margir bíðameð eftir-
væntingu eftir
þriðju plötu
hljómsveitarinn-
ar Coldplay en
þeir hafa nú
sent frá sér tilkynningu þess efnis að
næsta plata komi út í mars á næsta
ári. Ekki er enn komið nafn á plötuna
en hún er framleidd af Ken Nelson
sem framleiddi einnig tvær fyrstu
plöturnar.
Kate Bosworthætlar að flytja
til London til að
vera nálægt Or-
lando Bloom.
Bosworth sem
hefur verið með
leikaranum í tvö
ár sagði: „Mig
langar að finna
stað í London. Það er frábær borg. Ég
verð hvort sem er hérna að vinna við
fyrstu bresku myndina mína. Hún er
trekkjandi sálfræðitryllir, sem heitir
Awake, og í henni leika með mér
Helen Mirren og Jared Leto.
Robertino
áritar
Ítalski söngvarinn Robertino verð-
ur á ferðinni í Reykjavík í dag og
mun árita plöturnar Romantica og
Það allra besta.
A ð d á e n d u r
söngvarans geta
gengið að honum
vísum í Hagkaup
í Skeifunni frá
klukkan 16 og í
bókabúð Máls og
m e n n i n g a r
klukkan 17.30.
Íslandsvinur-
inn Robertino sló
óvænt í gegn
fyrir síðustu jól
þegar útgáfa Zo-
net á Robertino –
Það allra besta
náði gullsölu á ör-
fáum dögum. Á
Romantica er svo
annar hluti af upptökum með
Robertino frá árunum 1960-1962 og
rétt eins og á Það allra besta hafa
upptökurnar verið hreinsaðar með
nýjustu tækni sem stórbætir hljóm-
burð gömlu upptakanna.
Ítalska undrabarnið kom til Ís-
lands árið 1961 og söng í nokkur
skipti fyrir troðfullu húsi í Austur-
bæjarbíói. Frægðarsól Robertino
reis ótrúlega hratt. Hann breyttist á
nokkrum vikum úr götusöngvara í
Rómarborg í einn af vinsælustu
söngvurum heims og fyllti hann öll
helstu tónleikahúsin. Með perlum
eins og O sole mio, Mama, Torna a
Surriento, Santa Lucia og Ave
Maria, vann hann hug og hjörtu
heimsbyggðarinnar. ■
Íslenska friðargæslan í bíó
ÍSLENSKA SVEITIN Í myndinni fá áhorfendur að fylgjast með daglegu lífi friðargæslulið-
anna í Kabúl.
ROBERTINO
Ítalski hjartaknúsar-
inn á enn greiðan
aðgang að hjörtum
íslenskra tónlist-
arunnenda sem fá
tækifæri til að hitta
kappann í dag.
■ TÓNLIST