Fréttablaðið - 10.09.2004, Page 46
„Ég gerði hálsmen úr silfri eftir
teikningunni hennar,“ segir Sif
Ægisdóttir í galleríinu Hún og
Hún við Skólavörðustíg.
Á menningarnótt efndi gallerí-
ið til teiknisamkeppni barna.
Verðlaunin skyldu vera skart-
gripur úr silfri, sem gerður yrði
eftir verðlaunateikningunni.
„Það var svolítið erfitt að velja.
Það komu hingað svo margir
krakkar. Ég þurfti að velja eina
mynd úr stórum bunka,“ segir Sif.
Fyrir valinu varð gullfalleg
teikning af prinsessu eftir
Snædísi Björnsdóttur, fimm ára
telpu í Reykjavík. Í gær mætti
hún í galleríið og fékk afhentan
skartgripinn sinn, sem Sif hafði
smíðað eftir prinsessumyndinni.
Snædís segist hafa gaman af
því að teikna. Hún er í leikskólan-
um Tjarnarborg og svo er hún í
ballett líka.
„Ég var að leita að dæmigerðri
barnamynd.“ segir Sif, sem fyrir
stuttu prófaði að gera skartgrip
eftir mynd sem sonur hennar
teiknaði.
„Sumir misskildu þetta reynd-
ar og teiknuðu skartgripi, En auð-
vitað er misauðvelt að smíða eftir
þeim gripi.“ ■
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Árgerði
Íslandsbanki
Titanic
Reykvísk samtímatónlist
38 10. september 2004 FÖSTUDAGUR
... fá Grafík fyrir að taka ennþá
cjéns!
HRÓSIÐ
Það er hálfgerður kokteilkeimur
af tónlistinni úr kvikmyndinni
Dís. Höfundur hennar er Jóhann
Jóhannsson og nýverið gáfu 12
tónar út breiðskífu með tónlist-
inni, svo að tónþyrstir gætu
fengið sér sjúss eftir að hafa séð
myndina í bíó.
„Mig langaði til þess að gera
reykvíska samtíðartónlist,“ út-
skýrir Jóhann Jóhannsson tónlist-
armaður,og lagahöfundur. „Fyrir
mér er það blanda af elektróník
og órafmögnuðum hljóðfærum.
Þannig fær maður svolítið hráan
hljóm en um leið fágaðan. Þetta er
líka pínulítið dótalegt. Það er því
eins og þetta sé að hrynja í sund-
ur, og eins og þetta sé örlítið brot-
hætt. Þetta er tilfinningin sem
myndin er að reyna að ná. Ég
reyndi, eins og myndin, að fanga
smá sneið af lífinu í borginni,
þetta árið.“
Jóhann kannaðist við Dís áður
en hann breytti henni í tóna. Hann
las bókina á þeim tíma sem hún
kom út og fékk að fletta handrit-
inu vandlega áður en hann hófst
handa við lagasmíðar. „Persóna
Dísar er rosalega fyrirferðar-
mikil og áberandi í myndinni.
Þessi mynd er bara hún. Auðvitað
litast þetta heilmikið af henni og
hennar persónu. Ég hugsa samt
meira bara um heildarstemning-
una í myndinni þegar ég vinn
svona. Þetta myndar allt eina
heild. Persónurnar myndu t.d.
virka öðruvísi á fólk ef myndin
væri skotin öðruvísi. Allir þessir
hlutir hanga saman.“
Stígur Jóhanns virðist leiða
hann æ oftar í átt til kvikmynd-
anna. Á dögunum var greint frá
því að verið væri að nota verk
hans Englabörn í kvikmyndina
Wicker Park eftir Paul McGuigan.
„Þetta á frekar vel við mig,“ segir
Jóhann um þá iðju að búa til tón-
list fyrir kvikmyndir. „Þarna
gefst manni tækifæri til þess að
gera hluti sem maður fær ekki
oft. Að taka eitt stef og þróa það í
nokkrum versum og útgáfum.
Venjulega þegar maður gerir lag
þarf maður að henda helmingnum
af hugmyndunum, vegna þess að
það er ekki pláss fyrir þær í lag-
inu. Þegar maður er að gera kvik-
myndatónlist fær maður allt það
pláss sem maður þarf. Þetta er
miklu stærri leikvöllur.“
Jóhann leggur af stað í litla
tónleikareisu um Evrópu í októ-
ber sem hefst með tónleikum í
Pompidou-safninu í París í lok
október. Fyrir jól gefur hann svo
út plötuna Virðulegir forsetar,
sem var hljóðrituð á tónleikum
hans í Hallgrímskirkju vorið
2003. ■
TÓNLIST
DÍS
■ Jóhann Jóhannsson breytir kvik-
myndapersónunni Dís í tóna.
SAMKEPPNI
SNÆDÍS BJÖRNSDÓTTIR
■ Fékk skartgrip eftir teikningunni sinni
eftir að hafa unnið samkeppni.
JÓHANN JÓHANNSSON Breiðskífan Dís virkar vel sem heild án myndarinnar. „Ég vann plötuna alveg sér. Þetta eru sérútgáfur af lög-
unum. Ég vinn alltaf svona verkefni með það fyrir augum að ég geri sérútgáfur fyrir myndirnar, og sérútgáfur fyrir plöturnar.“
í dag
Georg litli lifði
af slátrunina
í Beslan
Kattakonan sefur
í fólksbíl
Allir hvolparnir
hennar dauðir
Engilbert Jensen
Heilsudjús
stofnar áritun
Hljóma í voða
SNÆDÍS FÆR SKARTGRIPINN SINN Hún Snædís bar sigur úr býtum í verðlaunasam-
keppni um barnateikningar á Menningarnótt.
Prinsessan og hálsmenið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
„Það var mjög gaman í veislunni og
maturinn var góður,“ segir Anna Ein-
a r s d ó t t i r
verslunar-
stjóri. „Mér
f a n n s t
ánægjulegt
að Svíakon-
u n g u r
s k y l d i
nefna í
ræðu sinni
að Íslend-
ingar hafi
tekið þátt í
b ó k a s ý n -
ingunni í
Gautaborg í tuttugu ár.“ Anna mætti í
síðkjól eins og mælt var fyrir um. „Það
var gaman að klæða sig svona fínt upp
á,“ segir hún.
„Þetta var fín og hátíðleg veisla og góð-
ur matur,“ segir Ellert B. Schram, forseti
ÍSÍ, sem var á gestalistanum. „Ég vil ekki
gera upp á milli réttanna, enda er ég
mikill matmaður og finnst allt gott. Karl-
menn áttu að mæta í kjólfötum og
konur í síðkjólum. Konan mín átti kjól
en ég fékk leigð kjólföt. Í svona veislum
skiptir máli hverjum maður situr hjá og
borðfélagar
okkar hjóna
voru Ingi-
m u n d u r
Sigurpáls-
son, for-
stjóri Sam-
taka at-
vinnulífsins,
Lýður Guð-
mundsson
f o r s t j ó r i
Bakkavarar,
S i g u r ð u r
G u ð j ó n s -
son, forstjóri Norðurljósa, og þeirra kon-
ur. Þetta var skemmtilegur félagsskapur.
Ég þakka fyrir að hafa verið boðinn en
ég átti líka það erindi að hlusta á konu
mína og dóttur en báðar eru félagar í
kórunum sem sungu í veislunni.“
„Veislurnar gerast ekki flottari en kónga-
veislurnar í Perlunni hjá Ólafi og Dorrit,
sem eru einstakir gestgjafar. Mér fannst
Ólafi talast mjög vel í ræðu sinni sem
hann flutti á fljúgandi flottri sænsku og
maður varð stoltur fyrir hönd þjóðarinn-
ar að hlýða á það mál,“ segir Jón Ársæll
Þórðarson sem var meðal gesta í
Perlunni. Kona Jóns Ársæls, Steinunn
Þórarinsdóttir, var fengin til að gera
listaverk sem konungi var fært fyrir
veisluna, höggmynd úr járni, lágmynd.
„Hann var afskaplega þakklátur og
ræddi við Steinunni þegar hún var
kynnt fyrir honum og virtist mjög
á n æ g ð u r
með gjöf-
ina,“ segir
Jón Ársæll.
„Veitingarnar
voru einkar
að laðand i
og ekki
s k e m m d i
kompaníið.
Við hjónin
sátum til
borðs með
þeim hjón-
um Magnúsi
Scheving og Ragnheiði konu hans og
þar sátu einnig Dóra Takefúsa og afi
hennar, Þorvaldur Jóhannsson, skíða-
kappi og fyrrverandi bæjarstjóri á Seyð-
isfirði, svo einhverjir séu nefndir. Þarna
sveif yfir vötnum samnorrænn andi og
við eigum að vera stolt af því að vera
skyld þeim þjóðum sem lengst hafa
náð í baráttunni fyrir betri heimi á jörð-
inni. Heja Sverige!“
| HVERNIG VAR Í PERLUNNI? |
Um 200 manns voru á gestalista í hátíðarkvöldverði forseta Íslands til heiðurs sænsku konungs-
hjónunum og sænsku krónprinsessunni
Lárétt: 1 alda, 5 fljótfærni, 6 fröken,
7 rykkorn, 8 sæmd, 9 áburður, 10 oddi,
12 eignatilfærslu, 13 svei, 15 félagasam-
tök, 16 tæp, 18 lita. Lóðrétt: 1 veginn, 2
afar, 3 í röð, 4 umbóta, 6 ís, 8 sæmd, 11
konunafn, 14 nokkur, 17 leyfist
Lausn.
Lárétt: 1bára, 5ras, 6fr, 7ar, 8æra, 9krem,
10tá, 12arf, 13iss, 15aa, 16naum, 18
mála. Lóðrétt: 1 brautina, 2áar, 3rs, 4fram-
fara, 6frera, 8æra, 11ása, 14sum, 17má.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
46-47 (38-39) Fólk 9.9.2004 21:50 Page 2