Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.09.2004, Qupperneq 45

Fréttablaðið - 13.09.2004, Qupperneq 45
Ég skora á alþingis- menn sem ég trúi og treysti til þess að færa mér og öðrum lesbíum og homm- um í eitt skipti fyrir öll það sjálfsagða frelsi sem býðst samferðafólki mínu flestu. Óska eftir fullri mannvirðingu 17MÁNUDAGUR 13. september 2004 SARA DÖGG JÓNSDÓTTIR UMRÆÐAN MÁLEFNI SAMKYN- HNEIGÐRA ,, AF NETINU Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um efni Fréttablaðsins eða málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Ritstjórn áskilur sér rétt til að stytta aðsent efni. Einnig áskilur ritstjórn sér rétt til að birta aðsent efni að meginhluta á vefsíðu blaðsins, sem er Vísir.is, og vísa þá til þess með útdrætti í blaðinu sjálfu. Vinsamlega sendið efni í tölvupósti á greinar@frettabladid.is. Þar er einnig svarað fyrirspurnum um lengd greina. Ég hef öðlast sjálfsvirðingu en óska hér með eftir fullri mannvirðingu. Hvernig er hægt að túlka niðurstöður skýrslu nefndar forsætisráðuneytisins um stöðu lagalegra réttinda samkynhneigðra öðruvísi en svo að þar gæti viðhorfa sem byggja á fordómum í garð þess lífsstíls sem lesbíur og hommar vænta að hafa frelsi til? Frelsi sem byggir einvörð- ungu á almennum mannréttindum. En hluti nefndarmanna telur sig ekki geta fallist á að samkynhneigð hjón eða ein- staklingar skuli öðlast það frelsi að hafa val um möguleika til þess að stofna til fjölskyldu með þeim rétti sem ættleið- ing barna af erlendum uppruna veitir gagnkynhneigðum hjónum og einstak- lingum. En rökin eru m.a. þau að vegna þess hve lítið er vitað um líðan þeirra ættleiddu barna sem hér eru fyrir og þeirrar óvissu um almenna líðan þeirra barna sem hugsanlega eignuðust sam- kynhneigða foreldra, vegna hugsanlegs aðkasts sem þau börn yrðu fyrir í ofaná- lag, sé engin leið að ganga alla leið í að jafna rétt samkynhneigðra og gagnkyn- hneigðra. Enginn annar hópur þarf að sitja undir slíkum ákvörðunum fagfólks sem hefur slíka ábyrgð og þau völd sem raun ber vitni sem leyfir sér að vega og meta rétt og frelsi með þeim hætti sem niður- stöður fyrrgreindrar skýrslu segja til um. Sú lagalega réttarbót sem allir sam- kynhneigðir hafa vænst að yrði staðfest í nýútkominni skýrslu á sér ekki stað og er það afar athyglisverð niðurstaða. Það eru mikil vonbrigði fyrir þjóðina alla að enn skuli viti bornu fólki leyfast að finn- ast réttindi samkynhneigðra vera í ætt við forréttindi þegar réttindi samkyn- hneigðra snúast fyrst og fremst um að öðlast sama rétt og aðrir einstaklingar sem kjósa að skilgreina sig gagnkyn- hneigða. Það ætlar ekki að verða þrauta- laus ganga fyrir lesbíur og homma að öðlast þá mannvirðingu sem þykir sjálf- sögð hverri manneskju og jafnræðis- reglan kveður skýrt á um. Í mínum huga er þó ekki öll von úti - við eigum eina von og það er sjálft Alþingi sem hefur síðasta orðið. Alþing- ismenn og -konur hafa það í valdi sínu að greiða götu lesbía og homma fyrir fullt og allt. Alþingi Íslendinga hefur nú sem aldrei fyrr ótrúlegt tækifæri til þess að lögfesta frelsi samkynhneigðra upp að sama marki og frelsi gagnkynhneigðra einstaklinga um persónulegt val hvers og eins til að lifa því lífi sem hver kann að kjósa sér. Hvort heldur sem er í formi staðfestrar samvistar, skráðrar sam- búðar, möguleika lesbískra kvenna til tæknifrjóvgunar eða þann möguleika samkynhneigðra para til að stofna til fjölskyldu í gegnum ættleiðingu, hvort heldur sem er innlenda eða erlenda. Ég skora á alþingismenn sem ég trúi og treysti til þess að færa mér og öðrum lesbíum og hommum í eitt skipti fyrir öll það sjálfsagða frelsi sem býðst sam- ferðafólki mínu flestu, þ.e. öllu því fólki sem býr yfir þeirri tilfinningu að hrífast af hinu kyninu – já, í því liggur allur munurinn. Ég trúi því og treysti að árið 2004 hafi Íslendingum tekist að fá til starfa á Alþingi fólk sem telur mann- virðinguna vera þann grundvallarþátt sem hverri og einni manneskju er lífs- nauðsynlegur. ■ Verður að mismuna En vissulega er fullt af metnaðarfullum grunnskólakennurum sem eiga skilið að fá hærri laun. Nútímaþjóðfélag þar sem báðir foreldarar eru útivinnandi gerir auknar kröfur á menntakerfið og mikil- vægur hluti af uppeldisstarfi barna fer fram í grunnskólum landsins. Við verðum því að skapa aðstæður þannig að besta fólkið veljist í stöður grunnskólakennara og hagfræðingar geta án efa reiknað út að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að borga kennurum góð laun. En það er líka fullt af vonlausum kennurum sem eiga ekkert skilið að fá hærri laun og það er mergur málsins. Það verður að mismuna kennurum eftir hæfni og frammistöðu. Kommúnískar hugsjónir forystusveitar kennara eru úreltar og metnaðarfullir kennarar eiga að sjá hag sinn í því að stokka upp menntakerfið. Davíð Guðjónsson á deiglan.com Samkeppni eykst Með tilkomu Evrópska efnahagssvæðis- ins og Evrópusambandsins hefur sam- keppni milli Evrópulandanna og Banda- ríkjanna harðnað. Nú hafa myndast blokkir beggja vegna Atlantshafsins sem keppa um mannauðinn. Menn spyrja sig nú hvort Evrópa geti keppt við Banda- ríkin í hagvexti. Bandaríkjamenn eiga það til í þessu samhengi að ofmeta stöðu sína og sofna á verðinum. Þessu til stuðnings er rétt að benda á að á milli ár- anna 2001-2002 féll fjöldi útgefinna vegabréfsáritana erlendra starfsmanna sem starfa innan vísinda og tæknigeirans um 55%. Hagspekingar spyrja sig nú jafnframt hvort Evrópubúar gætu hagn- ast á þessum staðreyndum. Reyndar eru ýmis teikn á lofti sem benda til þess að hún sé nú þegar byrjuð að hagnast á þessu þar sem lönd eins og Svíþjóð og Finnland hafa aukið hagvöxt verulega á seinni árum nánast einvörðungu með aukinni virkjun hugvits. María Sigrún Hilmarsdóttir á tikin.is Fyrrverandi húsvörður hjá ríkinu Undirskriftasöfnunin gegn fjölmiðlafrum- varpinu sem fram fór í sumar var í fyrsta lagi ekki undirskriftasöfnun heldur var hún söfnun nafna og kennitalna sem hver sem var gat skráð á vefsíðu söfnun- arinnar. Í öðru lagi lagði forvígismaður söfnunarinnar sérstaka áherslu á það að nöfnum og kennitölum yrði safnað burt- séð frá því hvort nöfnin og kennitölurnar ættu við einstaklinga sem væru sam- þykkir eða andvígir því sem „skrifa“ átti undir. Enda fór það svo að fylgismenn söfnunarinnar reyndu að skipta um nafn á henni, eins og vinstri manna er siður, þegar þeir gátu ekki lengur varist gagn- rýninni. Þannig fór fyrrverandi húsvörður hjá ríkinu, sem var ákafur fylgismaður söfnunarinnar, að tala í sífellu um bæna- skjal á heimasíðu sinni þegar hann átti við þetta fyrirbæri sem áður hafði heitið undirskriftasöfnun. Og bænaskjöl, þau lúta jú allt öðrum lögmálum en undir- skriftasafnanir, eða hvað? Vefþjóðviljinn á andriki.is 16-45 (16-17) Leiðarinn 12.9.2004 19:30 Page 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.