Tíminn - 07.10.1973, Page 7
Suiinudagur 7. október 1973.
tíminn
7
ÞAÐ ER eðli dýrmætra hluta, að
tilvist þeirra virðist vera
einhvern veginn svo sjálfsögð. Er
hér ekki um að ræða einvöröungu
sjúlfar frumþarfir manna, eins og
til dæmis vatn, eða rafmagn,
heldur ótalmargt annað, svo sem
blöö, bækur og annað lesefni, sem
nú þykir sjálfsagt að hafa i
seilingu við hvern mann, en var
áður munaöur i hendi hins
geistlega og konunglega valds.
Fyrir aðeins mannsaldri þurfti
leyfi konungs fyrir prent-
smiðjum, og voru þaö einkum
biskupar og valdsmenn, er
prentuöu. Og guðsorðabækurnar
þokuðust yfir landið, ilmandi I
farvanum og háleitar i andanum,
og fólkið leit yfir blöðin fullt
iotningar. Fátt var þá orðið um
bækur um veraldleg efni á
islandi.
Prentsmiðjan stofnuð
1852
A Akureyri eru þrjár prent-
smiðjur. Prentverk Odds Björns-
sonar, Valprent og prentsmiðja
Björns Jónssonar, eða Skjaldborg
sf. eins og rekstur hennar heitir
nú. Þetta er fyrsta prentsmiðja
Akureyrar, og aöeins Hólaprent
hið forna mun eldra á Noröur-
landi öllu, en hefur nú löngu verið
lagt af.
Prentsmiðja Björns Jónssonar
var stofnuð árið 1852, og voru
stofnendur nokkrir Eyfirðingar.
Aðalhvatamaðurinn að stofnun
prentsmiðjunnar var Björn
Jónsson (1802-1886), Jónssonar á
Grenjaðarstað, en Björn mun
kunnastur sem ritstjóri Norðan-
fara. Var hann, er þetta gerðist,
nýfluttur til Akureyrar. Eftir
fund á Akureyri árið 1840 var
stofnað félag um prentsmiðjuna,
og eftir aðalfund árið 1852 var
konungi skrifað bónarbréf um aö
mega stofna prentsmiðju á Akur-
eyri. Konungsleyfið fékkst 14.
april sama ár, en undanskilin
voru þó öll hlunnindi, er Hóla-
prent hafði haft.
Jón Sigurðsson
keypti prentsmiðjuna
Það var Jón Sigurðsson forseti,
er keypti prentsmiðjuna fyrir
félagið, og yfirprentari varð
Helgi Helgason (1807-1862), sem
verið hafði yfirprentari i Viðey.
Eftir áramótin tók prentsmiðjan
til starfa, og i marz kom fyrsta
blaðið út á Akureyri, Norðri, en
ritstjórar voru þeir Björn Jónsson
og Jón Jónsson alþingismaður,
faðir Jóns bónda á Munkaþverá.
Klemenz Jónsson landritari
telur blað þetta hafa verið
áhrifalaust, en það komst til
áhrifa, er Sveinn Skúlason (1824-
1888) gerðist ritstjóri þess. Stýrði
hann blaðinu i 9 ár og átti i
hatrömum deilum, meðal annars
út af Fjárkláðamálinu. Sveinn
varð siðar alþingismaður, en árið
1862 tók Björn Jónsson aftur við
prentsmiðjunni og hóf útgáfu
Norðanfara.
Hefur ávallt prentað
blöð Eyfirðinga
Björn ritstjóri missti tök sin á
prentsmiðjunni og stofnaði nýja.
Ekki er rúm til að rekja þá sögu
hér, eða fjölskrúðuga sögu prent-
smiöjunnar, en þess er þó að
minnast, að prentsmiðjan hefur
ávallt — og fram til dagsins i dag,
prentað blöð Akureyringa, og
eigandi hennar um skeið var
meðal annarra Björn Jónsson,
ráðherra og þingmaður, en nú-
verandi eigendur prentsmiðj-
unnar tóku hana á leigu fyrir
fimm árum og keyptu svo fyrir
rúmum tveim árum.
Tlminn tók hús á þeim Svavari
Ottesen og Haraldi Asgeirssyni,
eigendum Skjaldborgar sf og
Prentsmiðju Björns Jónssonar,
en prentsmiðjan er til húsa i
Skjaldborg á Akureyri. Var það
Svavar, sem orð hafði einkum
fyrir þeim félögum, og sagðist
honum frá.á eftirfarandi hátt:
Byrjuðu prent-
við erfið skilyrði —
prenta stjórnmálablöð
— Það var fyrir fimm árum,
sem við tókum við rekstri prent-
smiðju Björns Jónssonar á Akur-
eyri Við rekum nú prentsmiðjuna
og bókaútgáfuna Skjaldborg og
önnustum prentun, bókband og
útgáfu bóka.
Viö höföum báðir unnið árum
saman I prentsmiðju. Eg sem vél-
setjari i 20 ár hjá POB en
Haraldur Asgeirsson sem
prentari i 8 ár. Við lærðum báðir
iðnina hér á Akureyri.
Þegar við byrjuðum sjálf-
stæöan rekstur, var heldur litiö
um verkefni, enda hálfgerð
kreppa hér á landi árið 1968.
Aðalverkefni prentsmiðjunnar
var aö prenta Verkamanninn, og
er hann ennþá prentaður hér, en
auk þess prentum við önnur blöð,
Alþýðumanninn og Alþýöubanda-
lagsblaðið, þegar þau koma út, en
þau hafa ekki fastákveðinn
útkomutima. I september er
siðan gert ráð fyrir að viö förum
að prenta Islending, blað Sjálf-
stæðismanna, og eru pá öll stjórn-
málablöðin hér prentuð hjá
okkur nema Dagur, sem ávallt
hefur verið hjá POB.
Útgáfustarf — gefa út
bækur eftir
norðlenzka höfunda
— Horfir þvi sæmilega fyrir
rekstur prentsmiðjunnar, sem
stendur.
Nokkuð hefur reksturinn lika
batnaö. Segja má, að prentsmiðj-
unni hafi um skeiö aðeins verið
haldiðgangandi til þess aö prenta
Verkamanninn, og litiö hafi verið
sinnt að afla almennra verkefna
og gripum við i upphafi til bóka-
útgáfu og reynum að sérhæfa
okkur I norðlenzkum höfundum.
Höfum við alls gefið út um 30
titla, og i ár verðum við með
bækur eftir sex Norðlendinga,
sem eru Erlingur Daviðsson
ritstjóri, sem kemur með II bindi
af Aldnir hafa orðið. Þá kemur
Hesturinn þinn, eftir Vigni
Guðmundsson. Þá er ljóðabók,
Beitilyng, eftir Jórunni Ólafs-
dóttur frá Sörlastöðum, og
Tryggvi Þorsteinsson skólastjóri,
Indriði Crlfsson skólastjóri og
Eirikur Sigurðsson fyrrverandi
skólastjóri eru með barna- og
unglingabækur.
Við höfum einnig bókbands-
stofu og vinnum allar okkar
bækur sjálfir. Um bókbandið sér
Svavar Ottescn annar eigandi Skjaldborgar sf. og prentsmiöju Björns Jónssonar. Ilefur unnið að prent-
verki alla tiö, fyrst i 20 ár hjá POB, en síöan viö prentsmiðju Björns Jónssonar. Faöir hans var cinnig
prentari á Akurcyri.
Ilaraldur Asgeirsson, prentari og annar eigandi Skjaldborgar og prentsmiöju Björns Jónssonar
Reka umfangsmikla bókaútgáfu og hafa
gefið út um 30 bókartitla.
Hafa sérhæft sig í útgáfu á verkum
norðlenzkra höfunda