Fréttablaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 50
34 12. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR Við hrósum … … Körfuknattleikssambandi Íslands fyrir að ganga fram fyrir skjöldu og gera félög ábyrg fyrir umgjörð í kringum heimaleiki sína. Fjölnismenn voru með leikklukkuna í ólagi hjá sér, unnu leik vegna þess og guldu fyrir það með því að úrslit leiksins voru ógild og leikurinn verður spilaður á nýjan leik. Fjölnismenn hafa sett upp nýja klukku enda vilja þeir ógjarnan lenda í þessu aftur. Við skömmum … … forráðamenn ÍSÍ fyrir að kynna til sögunnar með pompi og prakt forritið Heilsufélagann sem ætlað er til að hjálpa fólki til að halda dagbók um heilsuna. Það er hins vegar ekki nokkur leið að skrá sig til leiks og fer það algjörlega með heilsuna að reyna það til lengdar.sport@frettabladid.is LEIKIR GÆRDAGSINS HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 9 10 11 12 13 14 15 Föstudagur NÓVEMBER FÓTBOLTI Það eru takmarkaðar líkur á því að Viktor Bjarki Arnarsson spili áfram með 1. deildarliði Vík- inga. Hann hefur sett stefnuna á að komast í atvinnumennsku en ef það gengur ekki eftir vill hann spila í Landsbankadeildinni hér heima. Tvö félög í Landsbanka- deildinni eru búin að gera Viktori Bjarka tilboð og svo eru talsverð- ar líkur á því að hann fari fljót- lega til reynslu hjá rússnesku úr- valsdeildarliði. „Maður er enn að skoða sín mál en ég er kominn með tilboð frá Val og Fylki sem ég er að skoða,“ sagði Viktor Bjarki við Frétta- blaðið í gær en hann er ekki búinn að gefa Víking upp á bátinn þótt hann vilji ekki leika með liðinu á næstu leiktíð. Ætla að vera í úrvalsdeild „Ég ætla að vera í úrvalsdeild næstu ár en ég hef tjáð Víkingum að ef þeir lána mig í ár þá mun ég framlengja samning minn við þá um eitt ár. Ég er til í að vera trúr mínu félagi,“ sagði Viktor en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Víking. Viktor Bjarki mun ekki svara Val og Fylki á næstunni því hugs- anlega á hann möguleika á að komast til Rússlands og það dæmi vill hann skoða í þaula áður en hann bindur sig á Íslandi. Fer til Rússlands til reynslu „Ég fer væntanlega til Rússlands á næstunni til reynslu en ég get ekki sagt hvaða lið um ræðir eins og stendur. Það er ljóst að ég mun sjá hvað kemur út úr því dæmi áður en ég skrifa undir við ís- lenskt félag,“ sagði Viktor nokkuð spenntur enda ekki á hverjum degi sem slíkt boð kemur. „Þetta er lið í úrvalsdeildinni og það ræðst væntanlega í næstu viku hvort ég fari út. Þetta er verulega spennandi því ég hef ekki áður komið til Rússlands og það verður gaman að sjá hvernig bolti er spil- aður þarna því maður hefur lítið fylgst með honum,“ sagði Viktor Bjarki Arnarsson. henry@frettabladid.is Á LEIÐ TIL RÚSSLANDS Viktor Bjarki stendur hér í ströngu gegn gamla brýninu Gesti Gylfasyni, leikmanni Grindavíkur. Hann er hugsanlega á leið til Rússlands fljótlega. Rússland mjög spennandi Víkingurinn Viktor Bjarki Arnarsson veit af áhuga rússnesks úrvalsdeildarliðs en auk þess vilja Valur og Fylkir fá hann í sínar raðir.■ ■ LEIKIR  19.15 Grindavík og Tindastóll mætast í Grindavík í Intersport- deild karla í körfubolta.  19.15 KR og Keflavík mætast í DHL-Höllinni í Intersportdeild karla í körfubolta.  19.15 Stjarnan og ÍBV mætast í Ásgarði í suðurriðli 1. deildar karla í handbolta.  19.15 KA og Fram mætast í KA- heimilinu í norðurriðli 1. deildar karla í handbolta.  19.15 Víkingur og Valur mætast í Víkinni í suðurriðli 1. deildar karla í handbolta.  20.00 FH og HK mætast í Kaplakrika í norðurriðli 1. deildar karla í handbolta.  20.00 Selfoss og ÍR mætast á Selfossi í suðurriðli 1. deildar karla í handbolta.  20.00 Afturelding og Þór Ak. mætast á Varmá í norðurriðli 1. deildar karla í handbolta. Gamla kempan Dennis Rodmanskrifaði undir samning við Or- ange County Crush í bandarísku ABA-deildinni í körfuknattleik. Rod- man, sem vann frá- kastatitil NBA sjö sinnum, segist vera í ágætis formi og fagnar því að hafa fundið vettvang til að sýna hvað í hon- um býr. „Það eru enn nokkur lið í NBA sem hafa sýnt mér áhuga en mér líst mjög vel á það tækifæri sem ég hef fengið hjá Orange County Crush,“ sagði Rodman, sem vann ABA-titilinn í fyrra með liði Long Beach Jam en spilaði þó aðeins þrjá leiki með liðinu vegna meiðsla sem hann hlaut í bifhjólaslysi. Réttarhöld yfir morðingja YetundePrice, hálfsystur tenniskvenn- anna Serena og Venus Williams, standa nú yfir í Los Angeles í Banda- ríkjunum. Price var skotin til bana í Compton-hverfinu í Los Angeles, þar sem systurnar ólust upp og hófu ferilinn, en Price var ávallt systrun- um til aðstoðar. Aaron Michael Hammer, meðlimur í klíkunni Southside Crips, er ákærð- ur fyrir að hafa skotið sex skotum að bifreið sem Price var í. Að sögn Ser- enu er málið búið að hvíla eins og skuggi yfir systrunum. „Við vonumst til að góð niðurstaða náist í málinu,“ sagði Serena. Bruce Grobbelaar, markmaðurinnskrautlegi sem gerði garðinn frægan með Liverpool á níunda ára- tugnum, var fljótur að ná sér í nýtt fé- lag til þjálfunar eftir að suður-afríska félagið Manning Rangers lét kapp- ann fara. Grobbelaar réð sig í gær til Umtata Bush Bucks sem hefur að- eins unnið einn af 10 leikjum í suður-afrísku deildinni í vetur. Bucks er fimmta félagið í Suður-Afríku sem Grobbelaar tekur að sér en hann var einnig landsliðsþjálfari Simbabve á sínum tíma. Adrian Mutu, sem rekinn var fráChelsea eftir að enska knatt- spyrnusambandið dæmdi hann í sjö mánaða keppnisbann vegna kóka- ínneyslu, er sagður hafa átt fund við stórlið Juventus á mið- vikudaginn. Talsmenn félagsins vildu þó ekk- ert staðfesta nánar hvað þeim fór á milli. „Hann fylgdist með leik Juventus og Fiorentina og hitti svo mikilvæga ein- staklinga í félag- inu,“ sagði tals- maður Juventus. ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM Intersportdeildin ÍR–HAUKAR 83–75 Stig ÍR:Theo Dixon 26 (10 frák.), Grant Davis (18 (11 frák.), Eiríkur Önundarson 11. Stíg Hauka: John Waller 18 (7 frák.),Mirko Virejivic 16 (6 frák.), Sævar Ingi Haraldsson 11, Kristinn Jónasson 13. HAMAR/SELFOSS–FJÖLNIR 104–98 Stig Hamars/Selfoss: Damon Bailey 23 (11 frák.), Chris Woods 21 (14 frák., 5 stoðs.), Pétur Ingvarsson 17. Stig: Fjölnis: Jeb Ivey 41 (7 stoðs., 8 þriggja stiga körfur), Nemanja Sovic 23 (8 frák.), Darrel Flake 10 (12 frák.). SKALLAGRÍMUR–NJARÐVÍK 91–92 Stig Skallagríms:Jovan Zdravevski 29, Clifton Cook 20 (9 frák., 5 stoðs.), Ragnar Steinsson 16, Nick Anderson 16 (4 stoðs.) Stig: Njarðvíkur: Friðrik Stefánsson 24 (8 frák.), Brenton Bimingham 18 (8 frák.), Matt Sayman 15 (8 stoðs., 7 frák., 5 stoln.), Jóhann Ól.afsson 14. SNÆFELL–KFÍ 115–68 Stig Snæfells: Pierre Green 29 (7 stoðs.), Desmond Peoples 22 (7 frák.), Sigurður Þorvaldsson 18, Magni Hafsteinsson 18 (4 stoln.), Pálmi Sigurgeirsson 10 (4 stoðs.) Stig: KFÍ: Joshua Helm 35 (9 frák.), Pétur Sigurðsson 16. 1. deild kvenna HAUKAR–NJARÐVÍK 65–54 Stig Hauka: Helena Sverrisdóttir 16 (19 frák. 6 stoð. 5 stoln.), Ragnheiður Theodórsdóttir 15 (7 stoð.), Kristrún Sigurjónsdóttir 13 (5 stoð.), Ösp Jónasdóttir 7. Stíg Njarðvíkur: Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 25, Jaime Woudstra 18 (10 frák. 7 stoð.), Helga Jónasdóttir 7 (14 frák.) Staðan var 62-35 fyrir Hauka eftir þriðja leikhluta. Njarðvík vann lokafjórðunginn 19-3. KKÍ dæmdi að leikur Fjölnis og Hauka í Intersportdeildinni skyldi endurtekinn: Sanngjarnast að spila leikinn aftur KÖRFUBOLTI „Við höfum þegar áfrýj- að dómnum enda nokkur atriði sem við gerum athugasemdir við en ég get fallist á að sanngjarnast væri fyrir bæði lið að spila leikinn aftur,“ segir Benedikt Guðmunds- son, þjálfari Fjölnismanna í Inter- sportdeildinni. Dómstóll Körfu- knattleikssambands Íslands úr- skurðaði að úrslit í leik Fjölnis og Hauka 7. október væru ógild og leika bæri leikinn að nýju. Mikil uppþot áttu sér stað strax að leik loknum þar sem lið Hauka komst yfir í leiknum á lokasek- úndunum en dómarar leiksins dæmdu körfuna ógilda þar sem leikklukkan hafði ekki farið í gang á réttu augnabliki eftir leik- hlé. Var það mat dómara að karfan hefði komið eftir að leiktíminn rann út og því hrósuðu Fjölnis- menn sigri í leiknum. Voru Hauk- ar afar ósáttir við niðurstöðu leiksins og lögðu fram kæru strax að leik loknum. Benedikt segir að þetta hafi verið ólán hið mesta en segir að það jákvæða sé að þetta hafi ýtt á eftir því að ný leikklukka hafi verið sett upp í íþróttahúsi Fjöln- is. „Ég hef þegar spurt mína leik- menn og þeir eru jákvæðir fyrir því að spila þennan leik aftur. Það sem kannski er merkilegast er að það er að ég held einsdæmi að úr- skurða með þessum hætti. Þessi úrskurður á eftir að hafa talsverð- ar afleiðingar ef hann stendur.“ Þjálfari Hauka, Reynir Krist- jánsson, var öllu ánægðari með úrskurðinn. „Auðvitað er þetta sigur fyrir okkur en ég á nú von á að Fjölnis- menn eigi eftir að áfrýja þessum dómi þannig að við spyrjum að leikslokum. Best væri að fá annan leik og við það yrðum við fyllilega sáttir.“ ■ ÞJÁLFARI FJÖLNIS ÞUNGT HUGSI Dómstóll KKÍ dæmdi Haukum í hag í kærumáli þeirra gegn Fjölni vegna leiks liðanna í október. Úrtökumót fyrir evrópsku mótaröðina í golfi: Birgir Leifur í 61. sæti GOLF Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson endaði í 61. sæti eftir fyrsta keppnisdag á úrtökumóti fyrir evrópsku mótaröðina í golfi. Spilaði hann hringinn á þremur yfir pari en efstu menn voru sex höggum á undan með þrjá undir pari. Um lokastig úrtökumótsins er að ræða en 35 efstu öðlast þátt- tökurétt á mótaröðinni í Evrópu 2005 . Aðeins er um fyrsta dag að ræða og því ekki öll nótt úti enn fyrir Birgi Leif. Hann verður þó að standa sig betur ætli hann sér að eiga möguleika en hann fékk alls sex skolla á fyrsta hringnum og fór aðeins þrjár holur undir pari. ■ BIRGIR LEIFUR Náði sér ekki vel á strik fyrsta keppnisdag úrtökumótsins fyrir evr- ópsku mótaröðina og er í 61. sæti. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R 50-51 (34-35) SPORT 11.11.2004 22:10 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.