Fréttablaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 12. nóvember 2004
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR HANDA
MINNST FJÓRUM FYRIR 1000 KR. EÐA MINNA.
Indverskt
Ef indverskur matur er í uppáhaldi, þá mæli ég eindregið með þessari
tilraun til matreiðslu á ekta austurlenskum rétti. Ég notaði svína-
hnakka sem uppistöðu í þetta sinn en auðvitað má nota hvaða kjöt sem
er: Kjúkling, lamb, jafnvel sojakjöt. Þó að kryddflóra réttarins sé fjöl-
breytt fást kryddin öll í flestum betri búðum. Skemmtilegt er að gera
sér ferð í Sælkerabúðina á Suðurlandsbraut, en þar er ævintýralegt
úrval af austurlensku hráefni.
Skerið kjötið í strimla og brúnið á vel heitri pönnu. Takið kjötið af
pönnunni, setjið til hliðar og látið fituna renna af. Setjið ólífuolíu á
pönnuna og steikið lauk, hvítlauk og engifer saman þar til laukurinn
hefur mýkst. Setjið þá hveiti, chili og krydd út á pönnuna og steikið
áfram um stund. Setjið þá tómata og kókósmjólk út í og kjötið með.
Blandið öllu vel saman og bætið kjúklingasoðinu svo við og látið rétt-
inn malla um 30 mínútur. Þegar um 10 mínútur eru eftir af eldunar-
tímanum, setjið þá spínatið út í og hrærið vel. Berið fram með soðn-
um hrísgrjónum og þykjustu nan-brauði sem eru tortillur sem settar
eru smá stund undir grillið í ofni og svo penslaðar á báðum hliðum
með hvítlaukssmjöri.
Kostnaður samtals: um 900 kr.
500 g beinlaus svínahnakki 560 kr.
2 laukar (saxaðir smátt)
4 hvítlauksgeirar
1 msk. ferskur engifer (rifinn)
1 msk. hveiti
1 msk. turmeric
1 msk. garam masala
1 msk. cumin fræ
1/2 rautt chili (fræhreinsað og saxað smátt)
1 dós teningaðir tómatar m. hvítlauk 130 kr.
400 g kókosmjólk 120 kr.
600 ml kjúklingasoð
(úr teningi eða krafti er í fínu lagi)
3 teningar frosið spínat
(ferskt spínat er líka mjög gott, þá ca 2-3 handfyllir)
Ferskur aspas frá Perú
Ítölsk
Parmaskinka
Ferskur Parmesan
Yndisauki sælkeraverslun // I‹U-húsinu 2. hæ› // s. 511 8090 // www.yndisauki.is
Rosemount Cabernet/Merlot sem má þekkja af tígulmiðanum hefur verið eitt vinsælasta vínið á veitinga-
staðnum Einari Ben. Það á einkar vel við kjúkling með tamari og stjörnuanís, segir Bjarki Long vínþjónn.
„Sósan er soðin niður í kjarna sem gerir það að verkum að rétturinn ber bragðmeiri vín. Dökkrautt með
smá bláma, alveg flauelsmjúkt vín með mjúkum berjakeimi og góðu eftirbragði,“ segir Bjarki.
Rosemount Cabernet/Merlot
Réttur sem ber bragðmeiri vín
Vínið með matnum
1 stk. stór kjúklingur
75 ml. sesamolía
2 stk. blaðlaukur (skornir í 1 cm þykka hringi)
1 kg. sætar kartöflur (skornar í tenginga)
6 msk. engifer (saxaður)
80 ml. Tamari (japönsk sojasósa)
8 stk. stjörnuanís
10 stk. lauf af hvítlauk (flysjaðir)
1 lítri kjúklingasoð (hægt er að nota 1
kjúklingakraftstening á móti 1 lítra af vatni)
1 stk. sítróna (skorin í fjóra parta)
salt og pipar
Kjúklingurinn tekinn og skipt upp í átta hluta.
Helmingurinn af sesamolíunni settur á pönnu og
kjúklingurinn steiktur þar til hann er orðinn
fallega brúnn. Afgangnum af sesamolíunni hellt á
pönnuna, blaðlaukurinn settur á og steiktur. Allt
hráefnið nema sítrónan, saltið og piparinn, sett í
eldfast form. Stungið í ofn og látið krauma í 1
klst. við 160 C. Salti og pipar bætt á eftir smekk.
Sett upp á disk með sítrónusneið til hliðar.
Einnig er hægt að matreiða þennan rétt sem
pottrétt, en þegar ofangreind eldunaraðferð er
notuð sér rétturinn mikið til um sig sjálfur.
Kjúklingur með tamari og stjörnuanís
Úr eldhúsinu á Einari Ben
Gordon Lee matreiðslumaður
Verð í Vínbúðum
1.290 kr.
Hér eru allar bragðtegundir af Jones
Soda gosdrykkjum en umbúðirnar eru
ansi skrautlegar eins og bragðtegund-
irnar.
Skringilegir
gosdrykkir
Jones Soda framleiðir gos-
drykki með öðruvísi bragði.
Bandaríski gosdrykkjaframleið-
andinn Jones Soda í Seattle í
Bandaríkjunum er ekki einn af
gosrisunum, Coke eða Pepsi, en
fyrirtækið hefur þó vaxið og
dafnað á síðustu árum.
Fyrir jólin í fyrra spilaði Jones
Soda út nýju trompi og setti á
markaðinn gosdrykk með
kalkúnasósubragði. Sala fór fram
úr björtustu vonum og seldust
gosdrykkirnir upp á skammri
stundu. Nú hefur fyrirtækið tekið
upp á því að framleiða þennan
vinsæla gosdrykk aftur og nú í
meira magni. Einnig hefur Jones
Soda bætt við fimm gosdrykkjum
sem þykja harla óvenjulegir en
þeir eru til dæmis með kartöflu-
stöppubragði og ávaxtaköku-
bragði. Spurning er hvenær
frumleiki Jones Soda nær til Ís-
lands? Hvernig væri til dæmis
hangikjötsbragð? ■
30-31 (02-03) matur ofl 11.11.2004 15:45 Page 3