Fréttablaðið - 12.11.2004, Síða 63

Fréttablaðið - 12.11.2004, Síða 63
FÖSTUDAGUR 12. nóvember 2004 47 SVIK Við erum leidd aftur á bak í tíma þar sem rauður þráður ótryggðar, óheiðarleika og sjálfsblekkingar flækir samræður persónanna og glæðir þær húmor með hættulegum undirtóni. Leikrit sem talar á persónulegan og trúverðugan hátt til áhorfenda. Því allir vita að erfiðara er að muna lygina en sannleikann.... Miðasala í Borgarleikhúsinu: sími 5688000 og á netinu: www.borgarleikhus.is og midasala@borgarleikhus.is SÝNINGAR Í BORGARLEIKHÚSINU Föstudag 12.11.2004 - KL: 20.00 Litla svi› uppselt Sunnudag 14.11.2004 - KL: 20.00 Litla svi› Föstudag 19.11.2004 - KL: 20.00 Litla svi› Sunnudag 21.11.2004 - KL: 20.00 Litla svi› Föstudag 26.11.2004 - KL: 20.00 Litla svi› Föstudag 03.12.2004 - KL: 20.00 Litla svi› HAROLD PINTER Þýðing: Gunnar Þorsteinsson g u n /f ít Svik eftir breska leikskáldið Harold Pinter í þýðingu Gunnars Þorsteinssonar verður frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins í kvöld klukkan 20.00. Leikritið var fyrst sýnt í National Theatre í London 15. nóvember árið 1978. Sýningin var frumsýnd á Akur- eyri í október sl. Svik er opinskárra en flest leikrit Pinters og fjallar um hjón- in Robert (Ingvar E. Sigurðsson) og Emmu (Jóhanna Vigdís Arnar- dóttir) og Jerry (Felix Bergsson), vin þeirra til langs tíma. Hinn rauði þráður ótryggðar, óh- eiðarleika og sjálfsblekkingar flæk- ir samræður Emmu, Jerrys og Roberts enn frekar og glæðir þær húmor með hættulegum undirtón. Oft á tíðum virðast þau jafnvel ekki hafa áhuga á að skilja hvert annað. Útkoman er óvenjulega áhrifamikið leikhúsverk. Pétur Einarsson er í hlutverki þjóns. Harold Pinter nýtir sér tilfinn- ingaríkar þagnir og dulbúið dæg- urspjall í þeim tilgangi að skapa spennu og þá yfirvofandi ógnun sem einkennir leikverk hans. SVIK er þar engin undantekning. Fyrir leikritið hlaut hann gagn- rýnendaverðlaunin „New York Drama Critics’ Circle Award“ fyrir besta erlenda leikritið árið 1980 og var tilnefndur til Ósk- arsverðlauna árið 1983 fyrir besta handrit byggt á áður unnu verki. ■ Daníel Magnússon og Matprjónagerð lýðveldisins kynna innihald heimilisins. „Matprjónagerð lýðveldisins kynnir: Innihald heimilisins,“ er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í 101 gallerí á morgun. Myndlistarmaðurinn sem opnar heimilið er Daníel Magnússon, myndlistarmaður og hönnuður, og hefur með sér fjóra gestalista- menn, þá Stefán Stephensen ljós- myndara, Hrafnkel Sigurðsson myndlistarmann sem sýnir ljós- myndir, Guðmund Ingólfsson ljós- myndara og Harald Jónsson myndlistarmann. „Ég tek með mér gestalista- menn til þess að fylla upp í þetta heimili,“ segir Daníel. „Þessa gaura er ég með mér upp á stemn- ingu heimilisins. Þeir ryðjast inn á það eins og hverjir aðrir hand- rukkarar, en þeir eru bara að rukka athygli. Þeir eru athyglis- sjúkir.“ Á sýningunni gefur þó aðallega að líta hönnun Daníels og þar kennir ýmissa grasa. „Síðast var ég að hanna japanskt misu-súpu- sett, súpuskál með loki,“ segir hann. „Það samanstendur af blómapotti með loki og tveimur prjónum. Ég ætla að fá gestina mína til þess að borða kjötsúpu upp úr blómapotti með prjónum á opnuninni.“ Á sýningunni verður einnig stóllinn sem Daníel hannaði fyrir 101 Hótel og nýja stólinn sinn Squid. „Þetta er einhvers konar heimili og ég mundi alveg vilja búa þar. Ég er þó hræddur um að ég yrði alger plága á þessu heimili, vegna þess að þegar ég laga til heima hjá mér nenni ég aldrei að laga til nema 25 cm frá gólfi. Ég sópa og skúra og nenni aldrei að fara hærra. Þess vegna eru stól- arnir mínir allir mjög lágir. Svo er ég auðvitað með ýmislegt fleira, til dæmis rúm og náttborð og á veggj- um myndir eftir sjálfan mig, bæði listaverk og hrein stemningsverk eins og landslagsljósmyndir. Hinir listamennirnir eru með hrein stemningsverk og ég er til dæmis með mynd eftir Guðmund, sem ég valdi sérstaklega, landslagsmynd sem er tekin í mosahrauni.“ Ekki segist Daníel ætla að hafa standandi kjötsúpu meðan á sýn- ingunni stendur. „Súpan verður bara á opnuninni,“ segir hann, „og er löguð af Áslaugu Snorradóttur ljósmyndara, elduð á 101 hótel – svo það verður svaka stemning hérna.“ ■ Einhvers konar heimili DANÍEL MAGNÚSSON Ætlar að fá gestina til þess að borða kjötsúpu upp úr blómapotti með prjónum á opnuninni. Bókaforlagið Bjartur hefur gefið útskáldsöguna Samkvæmisleiki eft- ir Braga Ólafsson. Sagan hefst undir morgun þegar prent- neminn Friðbert hef- ur kvatt síðustu gestina í þrítugs- afmælisveislu sinni. Þá rekur hann augun í svarta rúskinnsskó fyrir framan dyrnar á stigapallinum, skó sem hann kannast ekki við að hafa séð áður. Samkvæm- isleikir er óvenjuleg, ágeng og spenn- andi saga, lituð af þeirri ísmeygilegu kímni sem einkennt hefur fyrri verk Braga Ólafssonar. Síðustu tvær skáld- sögur hans, Hvíldardagar og Gælu- dýrin, voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hjá Máli og menningu er kominút Karitas án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur. Karitas án titils er dramatísk og áhrifa- mikil örlagasaga ungr- ar stúlku í upphafi 20. aldar, saga um drauma og þrár, óvænta ham- ingju, óbærilega sorg og miklar ástríður. Kar- itas Jónsdóttir elst upp í stórum hópi föðurlausra systkina. Móðir þeirra vill koma þeim öllum til mennta og þau þurfa að leggja hart að sér. En Karitas er margt til lista lagt og hana dreymir um öðruvísi tilveru. Fyrir tilviljun kynn- ist hún óvenjulegri konu með trönur og upp frá því tekur líf hennar að hverfast æ meir um tvö máttugustu öfl tilverunnar, listina og ástina. NÝJAR BÆKUR Svik í Borgarleikhúsinu 62-63 (46-47) menning 11.11.2004 19:42 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.