Tíminn - 18.12.1973, Qupperneq 5
Jólablað 1973.
TÍMINN
5
Séra Páll Pálsson
Á JÓLANÓTT
JÓLAGUÐSPJALLIÐ: ,,En það bar til um þessar
mundir, að boð kom frá Agústus keisara um að skrá-
setja skyldi alla heimsbyggöina. betta var fyrsta skrá-
setningin, er gjörð var, þá er Kýrenius var landstjóri á
Sýrlandi. Og fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver
til sinnar borgar. Fór þá einnig Jósef úr Galileu frá
borginni Nazaret upp til Júdeu, til borgar Daviðs, sem
heitir Betlhem, þvi að hann var af húsi og kynþætti
Daviðs, til þess að láta skrásetja sig, ásamt Mariu
heitkonu sinni, sem þá var þunguð. En á meðan þau
dvöldust þar, kom að þvi, að hún skyldi verða léttari.
Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum
og lagði hann i jötu, af þvi að það var eigi rúm fyrir þau
i gistihúsinu.
Og i þeirri byggð voru fjárhirðar úti i haga og gættu
um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá
þeim og dýrð Drottins ljómaði i kringum þá, og urðu
þeir mjög hræddir. Og engillinn sagði við þá: Verið ó-
hræddir, þvi sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem
veitast mun öllum lýðnum, þvi að yður er i dag frelsari
fæddur, sem er Kristur Drottinn, i borg Daviðs. Og
hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifaö
og liggjandi i jötu. Og i sömu svipan var með englinum
fjöldi himneskra hersveita, sem lofuöu Guö og sögðu:
Dýrð sé Guði i upphæðum
og friður á jörðu meö þeim mönnum, sem hann hefur
velþóknun á”. Lk. 2,1-14.
,,En það bar til”. Það er margt,
sem ber til. Þannig hefur það ver-
ið, og þannig er það enn. Nú er
miklu annriki lokið hjá flestum.
Fólk hefur verið i óða önn að búa
sig undir jólin, en það er regin-
munur á jólum og heilögum jól-
um. Jólagjafir verða viða gefnar i
kvöld. En ætlum við að taka á
móti sjálfri jólagjöfinni, sem er
orsök þess, að við viljum nú enn
einu sinni halda kristin jól? Undir
þvi er hamingja heimilanna á Is-
landi komin, já, hamingja hvers
einstaklings.
Það eru ekki allir, sem taka
boðskapnum um fæðingu Frels-
arans eins. Honum er oft mætt
með kulda og afskiptaleysi,
spurningamerkjum, efasemdum
og jafnvel harðsnúinni mót-
spyrnu. Sumum finnst þetta allt
vera ómögulegt. Hvaða vit er i
þvi, að Jesús fæddist i jötu? Er
vfst að hann hafi fæðzt á jólun-
um? Hvernig getur þetta Jesú-
barn fært mannkyninu huggun?
Þannig er oft spurt. Ég undrast
ekki svo mjög slikar spurningar,
en ég undrast hitt, sem á bak við
þær felst. Þurfa menn endilega að
vera óhressir yfir þvi, hvað Guð
er góður? Og er það ekki hans
mál, hvernig hann fer að? Þarf
almáttugur Guð endilega að haga
sér eins og einhverjum skamm-
sýnum mönnum finnst, að hann
heföi áttað haga sér? Það get ég
ekki séð. En hitt kem ég auga á,
að þörf mannanna fyrir Frelsara
var algjör. Hann kom og var sett-
ur inn i okkar eigin kjör til þess að
við gætum skilið þennan atburð
og þyrftum ekki að segja, aö þetta
væri framkvæmt á allt of háfleyg-
an hátt fyrir okkur. ,,Sjá ég boða
yður mikinn fögnuð, sem veitast
öllum lýðnum”. Það er greinilegt,
að hér er ekki um að ræða ein-
hverja aðgerð fyrir vissa einka-
aðila, heldur er þetta fyrir alla.
Kirkjan ómar öll. Það fæddist
barn, sem bjó með oss, fullt náðar
og sannleika. Það er þetta, sem
veldur þvi, að við komumst i
samband við upphaf okkar.
Hjartað þráir Guð, og hann er
kominn. Frægur maöur kvað einu
sinni upp úr með það, að hann
hefði tileinkað sér þessi sannindi.
Hann var þá spurður, hvort hann
hefði þar með skipt um skoðun á
lifinu. En hann svaraði: ,,Nei, en
ég hef hins vegar þvegið glugg-
ana og sé nú miklu betur út en áð-
ur”.
Það leið ekki langur timi frá
fæðingu Jesú, unz öfund og hatur,
svik og lygi, ræfildómur og lítil-
mennska leiddu dauðann yfir
hann.-En á sinni stuttu jarðnesku
ævi varð hann helgastur hinna
voldugu og voldugastur þeirra
heilögu. Og hann hóf heimsveldi
af hjörunum, veitti straumi ald-
anna i nýjan og áður óþekktan
farveg og rikir enn og að eilifu.
Myrkur grúfði yfir mannheimi.
Um það var að ræða, hvort syndin
og dauðinn ættu að vera allsráð-
andi. En þrátt fyrir það, að Guð
hafði skapað lifið og sett þvi hin
ýmsu lögmál, þá greip hann inn i
sköpunarverkið og sendi mann-
kyninu það ljós, sem er hin eina
björgun þess og fyllir nú hjörtu
okkar af þeirri heilögu gleði, er
ein megnar að lyfta lifi okkar upp
á það svið, sem skynibornum ver-
um er sæmandi, það er að taka á
móti Guðssyni. Þetta er það, sem
Guð vill færa okkur með heilögum
jólum og orðunum tveimur:
„Verið óhræddir”.
Það hefur margt verið gert og
miklu afrekað, en alltaf er grund-
vallarmunur á þvi, hvort verkin
eru Guðs eða mannanna. Napó-
leon Bónaparte lét eitt sinn þessi
orð falla: „Við Alexander mikli,
Cæsar og Karlamagnús grund-
völluðum allir heimsveldi. En á
hverju reistum við þessa snilli-
sköpun okkar? A valdi. Jesús
Kristur er sá eini, sem reisti
heimsveldi sitt á kærleika, og enn
eru milljónir manna fúsar aö
ganga i dauðann fyrir hann”.
Það er ekki sama, hvernig lifað
er hér á jörð. Það reka menn sig
oftlega á. Eins og þér sáiö, munuð
þér og uppskera. Sáningin er
margvisleg og uppskeran er lfka
mismunandi. Sagt hefur verið:
„Við sáum hugsunum og upp-
skerum orð. Viö sáum oröum og
uppskerum verk. Við sáum verk-
um og uppskerum venjur. Viö sá-
um venjum og uppskerum skap-
gerð. Og við sáum skapgerð og
uppskerum örlög”!
Margir stynja undan lifsbarátt-
unni, og mjög oft eru hinir einsk-
isverðu og ómerkilegustu hlutir
gerðir að stærstu atriðunum.
Þannig fer ævinlega, þegar ein-
blint er á heiminn, en horft fram-
hjá Drottni. En mér er ekki kunn-
ugt um, að hann hafi gleymt okk-
ur. Það sannar jólagjöfin hans.
Hins vegar sjáum við oft, hvað
hégómaskapur, tildur og fordild
og stórhættulegur misskilningur
leiðir marga frá jötunni. Eða
hvaö um manninn, sem sagði:
,,Nú get ég ekki keypt mér skó, af
þvi að áfengiö hækkaði”?! Hvað
ég vildi óska, að þetta hugarfar
og ekkert þvilikt kæmist aldrei
inn á heimilin til þess að eyði-
leggja þau og jólin!... Jólin, sem
eru hátið friðarins, barnanna og
ljósanna, eiga alltaf að minna
okkur á góðsemina og þakklætið.
Við höfum mikið að þakka, og við
getum mörgum gert gott. Skáldið
Ivan Turgenjew hefur m.a. ritað
þetta: ,,Einu sinni bauð Guð öll-
um dyggðunum til veizlu. Þá hitt-
ist svo á, að tvær þeirra, sem voru
algjörlega ókunnar hvor annarri,
settust hlið við hlið. Þær höfðu
aldrei rekizt hvor á aðra niðri á
jörðunni. Guð kynnti þær því hvor
annarri. Þetta voru velgjörðin og
þakklátssemin”.
Ég nefndi áður heimilin. Það er
búið að fegra þau og prýða viðast
hvar, til þess að þar sé hægt að
halda góð jól. En við skulum ekki
hugsa eöa tala um heimilin eins
og þau væru einhver opinber
fyrirtæki. Þau eru annað og miklu
meira. Þau eru og eiga að vera
helgidómur hvers einstaklings.
Við vitum, að á mörgum heimil-
um rikja sorg og söknuður, á-
hyggjur og sár kviði. Þar er oft
háð sú harða barátta, sem ekki er
til sýnis á almannafæri. Já, þar
hniga tárin, sem viö sjáum ekki
alltaf, en Guð sér. Og viöa um
heim eru kvöl og hungur, klæö-
leysi og margvislegir sjúkdómar.
Þúsundir heimila eru i sárum og
jafnvel rústum. Mannslifið er
ekki alltaf meira metiö en þetta,
að þaö er fótum traðkað og þvi er
oft útrýmt. Ekkert tekur mig sár-
ar, en þegar slikar fréttir dynja á
manni daglega. Einnig eru heim-
ili viðs vegar i kringum okkur að
leysast upp. Ögæfan er mörg, og
það er fleira en sprengjur, sem
splundrar heimilum. Og oftast er
endirinn sá, að þeir, sem saklaus-
astir eru, börnin, liða venjulega
mest.
Það fæddist barn, og það var
lagt í jötu. Við rækjum báða helgi-
dómana i kvöld, kirkjuna og
heimiliö. Við viljum vera með
ástvinum okkar i friði og fögnuði,
ástriki og samlyndi. Og heimilið á
að geta sýnt, að við höfum Guði
mikið að þakka. Þar er sá unaðs-
reitur, sem ómetanlegur er. Og i
kvöld fáum við enn einu sinni aö
finna orðin rætast: „Hvert fátækt
hreysi höll nú er / þvi Guð er
sjálfur gestur hér”. Það fæddist
umkomulitill drengur: „Hann
var i jötu lagður lágt, / en rikir þó
á himnum hátt”. Leyndardómur
og himneskur kraftur hinnar
helgu nætur er miklu meiri en þig
kann að gruna. Þar er á feröinni
það góða afl, sem þú skalt ekki
hika við að gefa þig á vald.
Hátið hátiðanna er gengin i
garð, og hún á aö vera haldin
heima hjá þér og heima hjá mér.
Þar þarf ekki allt að vera bundið
við ytri aðbúnað, heldur er hitt
aðalatriðið, að þú og ég, að við
skynjum öll kraftinn af hæðum,
sem opinberast meö sérstökum
hætti i nótt. „Hljóöa nótt, heilaga
nótt”. Allt til morguns, og raunar
lengur munu messurnar hljóma
um heim§byggðina, þar sem á ó-
tal tungum er flutt þessi himn-
eska kveðja: „Yður er i dag
Frelsari fæddur* . Og alls stað-
ar, þar sem hún er boðuð i sann-
leika, ómar lofsöngurinn: „Dýrð
sé Guði i upphæðum og friður á
jörðu með þeim mönnum, sem
hann hefur velþóknun á”. Og það
er vfðar en á jörðunni, sem gleðin
yfir þessum atburði heyrist, þvi
að það er i nótt, sem himinninn og
jörðin sameinast i þvi að syngja
Skaparanum lof. Kirkjurnar okk-
ar óma núna, en vita skulum við
hitt, að það gerir hin himneska
kirkja lika, og það má vera okkur
mikil gleði að vita af ástvinum
okkar, sem héðan hafa verið burt
kallaðir, taka núna þátt i þessari
allsher jarlofgjörð heimanna:
„Vér undir tökum englasöng/og
nú finnst oss ei nóttin löng”.
Þannig erum við öll undir áhrifa-
valdi eiliföarinnar. Jatan i Betle-
hem hefur fengiö margan kon-
unginn til þess að krjúpa I lotn-
ingu og taka ofan kórónu sina.
Heimsveldi risa og falla. Svo-
kallaöar „valdablokkir” myndast
og hrynja. En Drottinn er hinn
sami i dag og i gær og að eilifu.
Þegar viö höfum runnið okkar
skeiö og jarölifið er að baki, en
himnesk eilifðin framundan, finn-
um við bezt smæð okkar og mikil-
leik Drottins. En við finnum lika
annað og fleira; það, sem Frels-
arinn var meðal annars sendur til
að boða okkur og kenna okkur: Aö
eins og hinn smæsti bergmoli hef-
ur kvarnazt út úr stór.u fjalli,
þannig erum við hið litla brot af
sjálfum alheimskærleikanum og
eigum að lifa og deyja i samræmi
við það. Barnið i jötunni er bróöir
okkar, vegurinn, sannleikurinn
og lifiö, sem leiða skyldi okkur
heim til Guös. Frá honum erum
við öll komin. Til hans á leið okk-
ar allra að liggja. Við erum eins
og dropi af hinni óstöðvandi lifs-
móöu eilifðarinnar. Dauðinn er
ekkert annað en óhjákvæmileg
breyting frá lifi til lifs.
Glaöir skunduðu fjárhirðarnir á
Betlehemsvöllum til þess að sjá
þann mikla atburö, sem orðinn
var. Við skulum fara aö fordæmi
þeirra og ljá þessu máli rúm i
hjörtum okkar, af þvi að: „Heims
um ból, helg eru jól”.
Guð gefi ykkur öllum sanna,
bjarta og friðsæla jólahátið.
Gleöileg jól!