Tíminn - 18.12.1973, Side 11

Tíminn - 18.12.1973, Side 11
Jólablað 1973. TÍMINN 11 Jólasálmur felldur burt Nú eru byrjuð blessuð jól, var sungið. Þessi sálmur var i sálma- bókinni fram til ársins 1945, er hann var felldur niður.Liklega hefur hann ekki haft nægjanlegt skáldskapargildi fyrir þá fyrir sunnan. sem réðu þessu. Mér þótti ailtaf mest til fyrsta versins koma: ,,t dag eitt blessað barniö er", en lagið er gamalt kirkjulag frá 14. öld. ,,Nú þraut of þung er eng- in”, söng fólkið, og þeirri setn- ingu gleymi ég aldrei. Slik var jólagleðin i augum skáldsins. Bærinn helgaður með guðs orði Mamma var forsöngvari. Hún var afskaplega lagviss, og ég man aldrei eftir að hún byrjaði of hátt eða of lágt. t þá daga voru engin hljóðfæri til að styðjast við. Faðir minn var ágætur lesari, las rólega og látlaust. Það var siður hans að lesa ævinlega hús- lestur áður en farið var til kirkju. Bæði var það, að hann vildi láta fólkið, sem heima sat, njóta guðs blessunar, þvi það gátu ekki allir farið til kirkju samtimis, og svo vildi hann helga bæinn með guðs- orði. Kirkjuferðir og útvarpið — Venjulega var messað upp úr hádegi á jóladag. Það var yfirleitt ekki aftansöngur um jólin, en stundum á gamlárskvöld. Það þótti raska friðhelgi á bænum, ef fólkið fór burtu af heimilinu á að- fangadagskvöld. Það var tveggja tima gangur til kirkjunnar á Torfastöðum, svo gangan tók fjóra klukkutima fram og til baka, en á sama tima getum við nú farið til Oslóar og heim aftur — svona hefur allt breytzt. Meðan ég bjó, fyrstu tiu árin, hélt ég sömu siðum og las fyrir Fagur trjágarður er viö Ibúöarhúsiö á Vatnsleysu. Þessi mynd er tekin garöinum. Jörð er hvitog nokkurt frost og fegursta veöur, en trjágróöurin á jólaföstunni af Þorsteini I n minnir á ianga sumardaga. fólkið. Ég held að þessir gömlu siðir hafi varðveitzt alveg þangað til útvarpið kom. Þá varð mikil breyting á jólahaldinu. Þá var farið að hlusta á útvarpsmessur, og þá lagðist húslesturinn að mestu leyti niður i sveitinni. Við fengum útvarpstæki árið 1933, og Vatnsleysa, teiknuö eftir Ijósmynd frá árinu 1945. Þaö hagar svo til, aö erfitt er að ná mynd af Vatnsleysu, þar eö bæjarstæöiö stendur hátt yfir landiö. Þorsteinn telur, að landnámsmenn hafi kunnaö aö meta útsýn- ið, og bæjarstæöi I Arnes- og Rangárvailasýslum séu gleggst dæmi um það. Menn lögðu á sig vatnsburö, auk annars, til aö geta séö vltt um héröð. Orðið Vatnsleysu segir hann merkja Vatnsmýri á nútlma Is- lenzku. Leysa er fornt orö yfir mýri. þá kom annar blær á jólahaldið. Otvarpsmessurnar voru ágætar, en á jólahaldinu varð ekki eins persónulegu'r blær og ekki eins heimilislegur og var, meðan fólk- ið og húsbændurnir önnuðust þetta allt sjálf. Það var lesinn húslestur eftir matinn á aðfanga- dagskvöld, og börnin horfðu á ljósin. Menn lásu í bókum og allt var svo friðsælt. 1 þá daga var ekkert til að trufla. Núna eru jóla- gjafirnar í haugum, og börnin verða æst og ringluð af öllu sam- an. — En jólatré. Hvenær komu þau? Heimasmiðuð jólatré — Það var um aldamótin, held ég. Svo var mál með vexti, að hér var ungur maður, sem eignaðist barn með ráðskonunni i vestur- bænum. Þau eignuðust telpu, sem slðar var kona Magnúsar — rit- stjóra Storms. Þessi maður var lærður smiður. Hann smiðaði sjálfur jólatré handa dóttur sinni til að gleðja hana um jólin. Já, og þau urðu hjón, ungi smiðurinn og ráðskonan, ekki má gleyma þvi.. Upp úr þessu fór ég að smiða jólatré sjálfur, eftir þessari fyrir- mynd. Ég smiðaði þau ávallt sið- an, unz farið var að kaupa „ekta” jólatré. 1 fyrstu voru trén nakin, með greinum úr tré, en siðar fundum við upp á þvi að rifa upp krækiberjalyng og lima á greinarnar, og þá urðu heima- smiðuðu trén næstum eins og lif- andi tré. Svona jólatré höfðum við lengi frameftir. A kreppuárunum voru engir peningar til að kaupa jólatré fyrir, og ég held að börnin hafi ekki siður verið glöð yfir þessum trjám en öðrum. Við skreyttum trén með ljósum, og allt var svo fint og fagurt. Jóladagur — taöa og búfé Til kirkju var farið á jóladag. Þó verður að geta þess, að i sveit- inni varð að vinna um jólin, eins og aðra daga. Það gildir einnig nú á timum i sveitunum. Skepnunum þarf að sinna um jólin, sem aðra daga. Ég held að skepnunum hjá okkur hafi verið gefið eins og venjulega um jólin, kannske eitt- hvað meira, en sumir höfðu þann sið að gefa öllum búpeningi töðu á aðfangadagskvöld. Annars var allt með eðlilegum hætti. Ég tel, þvi miður, að velsældin afmái með einhverjum hætti þessar dýpstu og helgustu tilfinningar. Það er ljótt að segja þetta. Ein- faldleikinn, hið einfalda lif, sem nú er horfið, varð til þess að jóla- gleðin margfaldaðist i hjörtum okkar. ,,Nú þraut of þung er eng- in,” söng fólkið, og trúði þvi. — Var munur á jólahaldi á býlunum tveim á Vatnsleysu? Ilalldór riki 1 vesturbænum Sat Halldór riki á Vatnsleysu. Hann var kunnur að harðfengi við sjálfan sig og aðra og safnaði peningum og jörðum, enda hlaut hann viður- nefnið riki, sem mjög fáum hlotnast. Faðir minn var hins vegar alinn upp i fátækt. Hann hafði mikla löngun til að verða bjargálna, og það varð hann. En þótt mikill munur væri á efnahag þessara tveggja heimila, var svo til enginn munur á daglegu lifi manna, eða siðum. Aftur á móti er ég ekki að tala um l'átæka bændur, en þeir voru margir og umkomulausir á allan hátt. Nú er hins vegar svo fyrir að þakka, að lifskjör þeirra hal'a batnað svo mikið, að með ólikindum verður

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.