Tíminn - 18.12.1973, Qupperneq 21

Tíminn - 18.12.1973, Qupperneq 21
Jolablað 1973 TÍMINN 21 Soffía Pálma I búftinni aö Laugavegi 12. Allar mögulegar geröir af höttum biöa eftir aö feröast út í mannlffiö. Kvenhattar eru notaöirviö öll möguleg tækifæri, I gleöi og sorg og i hvcrsdagsleikans mikla amstri. um var mismunað eftir tign, að fara i manngreinarálit, er þetta vist kallað. Helgi var hins vegar laus við allt svoleiðis, i hans augum voru allir jafnir. • Hann lifir enn og er enn að hjálpa og hjúkra fólki. Nám i hattasaumi og verzlun með hatta Þegar ég var laus af hælinu, fór ég að læra hattasaum hjá frú Onnu Asmundsdóttur. Það tók mig þrjú ár, en svo setti ég upp mina eigin hattabúð, sem ég rek enn þann dag i dag. Ég opnaði 4. april 1936, hér á þessum sama stað, Laugvegi 12. Þegar ég opnaði þessa verzlun á krepputimum, héldu allir, að ég væri orðin vitlaus — að láta mér detta þetta i hug. 1 raun og veru var nokkuð til i þessu, þvi ég byrjaði með tvær hendur tómar, fjárvana og með tvö ár á Vifils- stöðum að baki. Ég fékk lánaðar 490 krónur hjá fólki til starfseminnar, og ég náði fljótlega tökum á hattagerðinni og verzluninni, og þetta gekk eiginlega prýðilega. Þó var einu sinni reynt aö stöðva mig, vegna tilmæla frá öðrum hattagerðum, þar eð mér hafði láöst að kaupa meistarabréf, en það gerði ég ekki einfaldlega vegna vankunn- áttu. Þetta fór samt allt vel, og ég fékk meistarabréf hjá lög- reglustjóranum i Reykjavik, en um tima leit út fyrir, að það yrði lokað hjá mér. Mitt mikla lán Siðan hefur þetta allt gengið þolanlega. Mitt mikla lán var að fá hýsnæði á leigu hjá þessum yndislega og ábyggilega manni, Helga Hafberg, og siðan leigi ég hjá börnum hans, Aslaugu og Ingólfi, sem eiga þetta hús núna. Ég hef aldrei þurft að gera neinn leigusamning eða svoleiðis, og þetta fólk hefur verið mér alveg sérstaklega gott. Hattasaumur — dauð iöngrein Þegar ég opnaði hattabúð, voru allir hattar saumaðir hér heima. Hjá mér unnu 6-7 stúlkur við hattasaum, að meðtöldum lærlingum. Þetta var sérl'ag, sem kraföist iðnréttinda. Slúlkurnar voru misjafnar, eins og gengur, en þarna verður að blandast saman faglegl handbragð og smekkvisi, og það þarf hug- mvndaflug og formskynjun til að gera margar frambærilegar gerðir af kvenhöttum. Afköstin voru samt ekki nema 2-3 hattar á dag hjá stúlkunum. Ilattaframleiðsla var örugg iðngrein hér allt til ársins 1945, en þá hól'st innl'lutningur kvenhatta frá Bandarikjunum. Amerisku hattarnir voru ódýrari og úrvalið mikið, og þetta varð til þess, að iðnin er nú dauð, og enginn er lengur með lærlinga. Kinn og einn hattur mun samt vera saumaður ennþá i landinu. Það er auðvitað margt, sem þessu veldur. Hattagerð er ekki lengur persónuleg iðn, heldur verksmiðjuframleiðsla. Okkar markaður fyrir halta er alltof smár, til þess að unnt sé að beita sömu Iramleiðsluaðferðum og i stóru löndunum, þar sem millj. kaupenda eru að höltum. Þvi fór sem fór. Núna koma hattarnir hjá mér frá Ameriku, en flutt er inn Irá Kvrópulöndum lika, aðallega Brellandi, Danmörku og Þýzka- landi. — Nú svona hefur þetta gengið hægt og bitandi, án umtalsverðra breytinga. Fékk ekki að halda manninum lengi Arið 1949, á aðlangadag.gifti ég mig, og maðurinn minn hét Albert iMainoli og var frá New York. Ég fékk saml ekki að halda honum lengi, þvi hann dó i bilslysi 6 júli árið 1953. Albert settist að á íslandi, þegar við giftum okkur, en annars vorum við alltaf með annan lótinn vestur i Bandarikj- unum. Við i búðinni flytjum inn allar okkar vörur sjálf. Þetta eru hatt- ar og skrautvörur. Hjá mér starfa nú tvær stúlkur, Maria Sigurðardóttir, sem sér um bók- hald og skrifstofustörf. Hún er búin aö vera hér i 30 ár, eða mest- an hluta ævi sinnar, og hefur verið mér betri en engin, og Halla Jónatansdóttir, sem afgreiðir i búðinni. Hún er yndisleg manneskja. Það er afskaplega mikilsvert fyrir mig að hafa svona góða starfskrafta, þvi heilsan hefur verið slæm. í raun og veru man ég ekki eftir þvi að hafa verið heilbrigð,frá þvi aö ég ar 20 ára gömul, en þá varð ég fyrst veik. Hvað verzlunina áhrærir, þá eru þetta sömu gömlu viðskipta- vinirnir, sem hingað koma. Sumir hafa komið hér allt frá byrjun, en svo hverfa þeir einn af öðrum og nýir hópar bætast i skörðin, eins og alls staöar, segir Soffia Pálma að lokum. — J.G. fe AAissti heilsuna tvítug, en hefur samt S? verzlað i nær fjóra óratugi i II §
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.