Fréttablaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 1
Rafmagnsreikningar
hækka um áramót
Rafmagnsreikningar höfuðborgarbúa munu væntanlega hækka um
rúm tíu prósent um áramótin. Stjórnir OR og Hitaveitu Suðurnesja
taka ákvörðun fyrir áramót. Ástæðan er sögð ný raforkulög.
RAFORKUVERÐ Búist er við rúmlega
tíu prósenta hækkun raforku-
verðs á höfuðborgarsvæðinu um
áramót. Samanlögð gjöld gætu þá
hækkað um tæpan milljarð
króna. Stjórnir Orkuveitu
Reykjavíkur og Hitaveitu Suður-
nesja komu saman nýlega og
ræddu stöðuna en lög sem Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, lagði fyrir og
voru samþykkt á Alþingi í vor
gera ráð fyrir að framleiðsla og
dreifing raforkukerfisins verði
aðskilin og dreifikerfið verði að
bera sig sjálft, án stuðnings frá
raforkuframleiðslunni.
Ellert Eiríksson, stjórnar-
formaður Hitaveitu Suðurnesja,
segir að það stefni í tíu prósenta
hækkun á raforkuverði. „Við
vorum sagðir svartsýnir þegar
lögin voru í undirbúningi og við
vöruðum við mikilli hækkun á
raforkuverði en það hefur komið í
ljós að við vor-
um ekki nægi-
lega svartsýn-
ir,“ segir Ell-
ert. „Við sitjum
núna yfir út-
reikningum og
erum að reyna
að finna leið til
að viðskipta-
vinir okkar fái
sem hagstæð-
asta útkomu en
því miður
reynist kostn-
aðurinn sem er
búinn til í
þessu nýja kerfi meiri en okkar
svartsýnustu spár sögðu til um.“
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins stefnir í að hækkanir Orku-
veitu Reykjavíkur verði líka í
kringum tíu prósent. Ekki er
langt síðan Alfreð Þorsteinsson,
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur, átti fund með Hall-
dóri Ásgrímssyni forsætisráð-
herra og lýsti yfir áhyggjum af
verðhækkunum í kjölfar nýju lag-
anna. Markmið laganna er að
jafna orkuverð á landinu og iðn-
aðarráðherra hefur spurt í pistli á
vefsíðu sinni hvort það sé ósann-
gjarnt að íbúar á suðvesturhorn-
inu taki þátt í jöfnun á orkuverði.
Heimili á höfuðborgarsvæðinu
greiða að meðaltali í kringum 70
þúsund krónur á ári. Miðað við
það má gera ráð fyrir að saman-
lögð hækkun á höfuðborgarsvæð-
inu verði á bilinu hálfur til einn
milljarður króna.
Þórólfur Árnason, fyrrverandi
borgarstjóri, sagði fyrr á þessu
ári að rætt hefði verið um að
greiðslur fyrirtækja og einstak-
linga til Orkuveitu Reykjavíkur
gætu hækkað um allt að milljarð
króna á ári vegna breytinganna.
- ghg
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
Fékk samþykkt
frumvarp á Alþingi
um breytingu á
raforkulögum.
HIN ÁRLEGA JÓLALEST COCA-COLA Lestin ferðaðist um höfuðborgarsvæðið í gær og fjöldi fólks fylgdist með er lestin liðaðist áfram
um hvert hverfið á fætur öðru með jólatónlistina í botni. Ferð lestarinnar var lýst í beinni útsendingu á útvarpsstöðinni Jólastjörnunni og
lífgaði lestin svo sannarlega upp á skammdegið, alsett þúsundum jólaljósa.
FJÁRMÁLASTOFNANIR VÍSA Á
SKATTSKJÓL Fyrirtæki eru stofnuð í
skattaparadísum til að koma tekjum undan
skatti hér á landi. Fjármálastofnanir
ráðleggja mönnum hvernig vista megi fé
utan seilingar skattayfirvalda. Sjá síðu 2
ALLT ÓNÝTT Í NÓATÚNI Eldur kvikn-
aði í verslun Nóatúns í JL-húsinu í fyrrinótt.
Allt er eyðilagt í versluninni en engin slys
urðu á fólki. Sjá síðu 4
AMERÍSKIR VÍSINDAMENN Á
SLÓÐ GAMALLA SANNINDA
Bandarískir vísindamenn þykjast hafa fund-
ið nýjan sannleik varðandi eldingar í gos-
strók eldgosa. Sjá síðu 6
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 22
Sjónvarp 32
SUNNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
12. desember 2004 – 340. tölublað – 4. árgangur
12
Opið í dag
13-22
dagar til jóla
Jólagjafahandbókin
- vinningsnúmer dagsins:
24099
SLAGVIÐRI VÍÐA Talsverð úrkoma á
landinu. Úrkomulítið norðan til í kvöld,
annars skúrir. Hlýnandi og hiti 5-10 stig
þegar líður á daginn. Sjá síðu 4
BÓKMENNTAGANGA Borgarbókasafn
býður til bókmenntagöngu. Lagt verður af
stað frá aðalsafni í Grófarhúsi klukkan 17
og gengið um bæinn með viðkomu á
nokkrum stöðum sem tengjast nýútkomn-
um bókum.
SÍÐUR 32 & 33
▲
Ungskáld
Gróska í ljóðagerð
unga fólksins
Írska rokksveitin U2
gefur út elleftu plötu sína
Benedikt Grétarsson
Sjálfur jóla-
sveinninn
SÍÐUR 30 & 31
▲
SÍÐUR 44 og 45
▲
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Uppgjör styrktartónleika:
Fimm millj-
ónir afhentar
STYKTARTÓNLEIKAR Hagnaður af
tónleikum sem haldnir voru til
styrktar Styrktarfélagi krabba-
meinssjúkra barna í Hallgríms-
kirkju nemur 4.748.882 krónum.
Tekjur vegna seldra aðgöngu-
miða námu tæplega 8 milljónum
króna en heildartekjur námu
alls rúmlega 13,1 milljón króna.
Innifalið í því er kaup KB banka
á útgáfurétti tónleikanna. Þá
nam heildarkostnaður tæplega
8,5 milljónum króna.
Alls voru haldnir þrennir tón-
leikar og listamönnum voru
greiddar rúmlega 6,2 milljónir
króna fyrir framlag sitt. Skipu-
leggjandi tónleikanna, Kynning
ehf. og Ólafur M. Magnússon,
gaf alla vinnu sína. Hagnaður-
inn var afhentur stjórn styrkt-
arfélagsins í gær ásamt loka-
uppgjöri. - lkg
Hæstiréttur
Bandaríkjanna:
Leyfir of-
skynjunarte
WASHINGTON, AP Hæstiréttur Banda-
ríkjanna hefur heimilað litlum
trúarsöfnuði í Nýju Mexíkó að nota
ofskynjunarte í tengslum við jóla-
hald safnaðarins.
„Þau eru í skýjunum,“ segir
Nancy Hollander, lögmaður
safnaðarins. „Þau eru svo
ánægð með að geta haldið jól í
fyrsta sinn frá því árið 1998.“
Söfnuðurinn nefnist O Centro
Espirita Beneficiente Uniao do
Vegetal og á rætur að rekja til
Brasilíu. Meðlimir í Bandaríkj-
unum eru um það bil 140.
Í helgiatöfnum sínum notar
söfnuðurinn te sem unnið er úr
jurtum frá Amazon-svæðinu í
Suður-Ameríku.
Söfnuðurinn hefur barist fyr-
ir því fyrir bandarískum dóm-
stólum að fá að nota þetta te allt
frá því lögreglan gerði birgðir
af því upptækar árið 1999. ■