Fréttablaðið - 12.12.2004, Qupperneq 70
Birna Mjöll Atladóttir er bóndi á
vestasta býli Evrópu; Breiðuvík
við Látrabjarg. Fyrr á árum var
rekið upptökuheimili fyrir drengi
í Breiðuvík, en á undanförnum
árum hafa Birna og eiginmaður
hennar, Keran Stueland Ólason,
rekið ferðaþjónustu í þessari un-
aðsfögru paradís Vestfjarða. Nátt-
úrufegurðin er stórbrotin og
kyrrðin engu lík. Reyndar er
gemsasamband út úr kortinu í
Breiðuvík og sjónvarp og útvarp
næst þar ekki, utan langbylgjunn-
ar. Það var í gegnum hana sem
Birna Mjöll heyrði á tal Eiríks
Vernharðssonar, smiðs og MS-
sjúklings, við stjórnendur Kast-
ljóssins í vikunni.
„Þá heyri ég hluta af samtali þar
sem Eiríkur talar um að sig langi
að ferðast með sonum sínum um
landið, og jafnvel heiminn. Datt þá
í hug að koma upp einhvers konar
keðju þar sem aðilar í ferðaþjón-
ustu og almenningssamgöngum;
hvort heldur það eru ferjur, skip,
flugfélög, langferðabílar eða bíla-
leigur, gerðu slíkt hið sama og ég
hef ákveðið að gera; að bjóða Eiríki
heim í tvo til fleiri daga. Í Breiðu-
vík mætti hann vera eins lengi og
hann vildi, en með því að skora á
fleiri getur Eiríkur sjálfur valið þá
staði sem hann langar að heim-
sækja með drengjunum sínum,“
segir Birna Mjöll, sem ætlar að
bjóða Eiríki, ásamt sonum og
fylgdarmanneskju, að dvelja og
hafa það notalegt í Breiðuvík, al-
gjörlega endurgjaldslaust.
„Að sjálfsögðu er allt innifalið
á staðnum; gisting, matur og
hvaðeina. Minna má það ekki
vera, enda hvaða fórn er það fyrir
okkur miðað við hans fjötra og ör-
lög? Við Íslendingar erum ein lítil
fjölskylda sem hjálpum auðvitað
hvert öðru. Því skora ég á alla í
ferðaþjónustu að leggja sitt af
mörkum til að Eiríkur komist í dá-
lítil ferðalög með drengina sína og
þeim takist að skapa saman dýr-
mætar minningar.“
Þess má geta að nú þegar hafa
tveir hlekkir bæst í keðjuna; bíla-
leiga og Hótel Freyja í Minni-
Mástungu, Árnessýslu. „Ferða-
þjónustan í Breiðuvík er opin yfir
sumartímann, en þar sem við
búum á staðnum er ekkert mál að
taka á móti þeim feðgum, hafi
þeir áhuga á að koma á þetta
svæði. En auðvitað væri best að
sem flestir sýndu örlæti sitt og
manngæsku því þá getur Eiríkur
valið hvert hann vill og treystir
sér til að fara.“
Í kvöld klukkan 20 verður hald-
in kvöldvaka til styrktar Eiríki
Vernharðssyni í Háteigskirkju.
Fram koma Guðrún Gunnarsdótt-
ir, Guðmundur Jónsson, Jón
Ólafsson, Felix Bergsson, Greif-
arnir, Eyjólfur Kristjánsson,
Kvennakórinn Heklurnar, Hlín
Pétursdóttir og Ragnheiður Guð-
finna Guðnadóttir. Einnig er hægt
að styrkja Eirík með frjálsum
framlögum á reikningnum 1195-
15-200303 í SPV.
thordis@frettabladid.is
54 12. desember 2004 SUNNUDAGUR
BIRNA MJÖLL ATLADÓTTIR, BÓNDI Í BREIÐUVÍK Býður Eiríki Vernharðssyni að eiga
góðar stundir í Breiðuvík við Látrabjarg eins lengi og þá feðgana lystir. Hún skorar á aðila
í ferðaþjónustu að gera slíkt hið sama.
...fá Hrafnhildur, Bára og Sigrún
Hólmgeirsdætur fyrir að opna
búð í Kaupmannahöfn sem með-
al annars selur þeirra eigin hönn-
un undir merki þeirra, Aftur.
HRÓSIÐ
HIN HLIÐIN
HIN HLIÐIN Á TÓNLISTARMANNINUM ERNI ELÍASI GUÐMUNDSSYNI, ÖÐRU NAFNI MUGISON.
Átti apa sem gæludýr
04.09.76
ELÍAS
GUÐMUNDSSON
(MUGISON)
KATA Litla lirfan heitir nú Kata á íslensku
en Katja á hinum norrænu tungumálum.
Lirfan fjölda-
framleidd
Íslenska teiknimyndasagan um
Litlu lirfuna ljótu hefur nú selst í
yfir 100.000 eintökum. Myndin kom
upphaflega út hér á landi fyrir
tveimur árum.
Í tengslum við útgáfu og áfram-
haldandi þróun á litlu lirfunni hefur
hún hlotið nafnið Kata – litla lirfan
ljóta. Á hinum norrænu tungumál-
unum heitir hún Katja og í Englandi
og Frakklandi Katie. Myndin hefur
verið talsett á sjö tungumál og er
væntanleg í spænskri DVD-Kids út-
gáfu á næsta ári.
Litla lirfan ljóta er gerð eftir
sögu Friðriks Erlingssonar. Hún er
framleidd og teiknuð af CAOZ –
hönnun og hreyfimyndagerð. ■
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
24. janúar.
Í Hádegismóa.
Þrettánda desember.
BIRNA MJÖLL ATLADÓTTIR: SKORAR Á FERÐAÞJÓNUSTUR LANDSINS
Gefum Eiríki og drengjunum
minningar og gleði
Bandaríski uppistandsgrínarinn,
sjónvarpsmaðurinn og kvik-
myndaleikarinn Jamie Kennedy
treður upp á Íslandi á Broadway
30. desember. Miðasala á grínið
gengur vel. Ísleifur Þórhallsson
hjá Event, sem flytur Kennedy til
landsins, gerir ráð fyrir að
miðarnir seljist upp innan tíðar.
Þessi mikli áhugi á Kennedy
gefur Ísleifi og félögum byr undir
báða vængi en þeir hafa lengi
unnið að því að fá stærstu nöfnin í
uppistandsgríninu til landsins.
Það hefur hins vegar ekki gengið
sem skyldi hingað til en með tíð-
um ferðum til Los Angeles og Ís-
landsför Kennedys virðist stíflan
vera að bresta og vonir um að enn
stærri nöfn muni fylgja í kjölfar
Kennedys eru farnar að glæðast.
Það hefur til dæmis heyrst að
samningaviðræður við Eddie Izz-
ard séu á lokastigi en Event
stefnir að því að fá þennan vin-
sæla breska grínista og klæð-
skipting til að skemmta á Íslandi
í byrjun næsta árs. Þá mun Ísleif-
ur einnig hafa leitað hófanna hjá
ekki ómerkari mönnum en Chris
Rock, Dave Chapelle og Jack
Black um að koma og skemmta
Íslendingum síðla árs 2005.
Þessir kappar eru vel þekktir á
Íslandi, ekki síst Rock og Black
sem hafa leikið í mörgum vinsælli
gamanmyndum síðustu ára. Rock
kom meðal annars við sögu í Leth-
al Weapon 4, Dogma, Down to
Earth og Osmosis Jones. Black er
jafnvel enn heitari um þessar
mundir en hann hefur sett sterkan
svip á myndirnar High Fidelity,
Shallow Hal, Orange County og
The School of Rock. Það er því allt
útlit fyrir hressilegt uppistandsár
á Íslandi jafnvel þó ekki takist að
landa öllum þessum stórlöxum. ■
Izzard íhugar Íslandsheimsókn
EDDIE IZZARD Þessi feykivinsæli breski uppistandsgrínari gæti verið á leiðinni til Íslands
en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ganga samningar við Izzard um að skemmta
hérna snemma á næsta ári vel.
Hvernig ertu núna? Ég er sæmilegur. Ég er í bíl.
Augnlitur: Grængulur.
Starf: Poppari.
Hjúskaparstaða: Á föstu með Rúnu.
Hvaðan ertu? Ég er sígauni bara, ég veit það ekki. Pabbi minn er
að vestan, mamma að sunnan.
Helsta afrek: Ég stóð einu sinni úti á dekki í tvo og hálfan sólar-
hring.
Helstu veikleikar: Ég er stundum væminn.
Uppáhaldsmatur: Plokkfiskur.
Uppáhaldsveitingastaður: Hjá Magga Hauks á Ísafirði.
Uppáhaldsborg: Ætli það sé ekki Ferrara á Ítalíu. Þar eru allir á hjól-
um.
Mestu vonbrigði lífsins: Ég hélt einu sinni að ég hefði unnið 5
rétta í Lottó í klukkutíma. Ég var búinn að plana hvað ég ætlaði að
gera við átta milljónirnar. Síðan kom í ljós að ég hafði bara fjórar
tölur réttar og vann 12 þúsund kall.
Viltu vinna milljón? Já, já. Alveg til í það. Þarf að borga síðustu
greiðsluna af íbúðinni á morgun.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?Ég ætlaði einu sinni
að verða karatekennari. Svo ætlaði ég að verða bissnessmaður og
eiga hamborgarabúllu. Síðan ákvað ég að verða bara poppari.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Mér finnst Stebbi Panda ógeðslega
fyndinn. Hann er betur þekktur sem maðurinn sem borðar pylsur í
auglýsingunni.
Hver er kynþokkafyllst(ur)? Rúna á morgnana.
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Ég er nú alltaf að fitna. Ætli það sé
ekki bara fíll.
Áttu gæludýr? Nei, en hef átt nokkur. Ég átti einu sinni apa. Það er
skemmtilegt gæludýr, ég mæli með því.
Besta kvikmynd í heimi: Man on the Moon eða Groundhog Day.
Besta bók í heimi: Tabúlarasa.
Næst á dagskrá: Ég þarf fara upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og
árita nýja diskinn minn.