Fréttablaðið - 20.01.2005, Page 22
Ískertastjakar
Festu minni plastdós í stærri með teygju þannig að rúm myndist á milli. Fylltu það með
vatni og settu einnig ber, trjágreinar eða greni með. Stingdu þessi í frystinn og þegar vatnið
er frosið skaltu losa dósirnar. Settu kerti í klakann og út fyrir dyr þegar þú átt von á gestum.[ ]
BLÓMÁLFURINN
Vesturgötu 4 sími 562 2707
Bóndadagurinn
á morgun
- Íslandsmeistari
í blómaskreytingum -
Kringlunni - sími : 533 1322
Matar- og kaffistell
20% afsláttur
Vandaðar heimilis og gjafavörur
Ullarsængur og
ullarkoddar
Amerísk
gæðavara
Skólavörðustígur 21a - Sími 551 4050
Mikið úrval
af viðarörnum og
eldstæðum
Arinbúðin
Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið)
Sími 567 2133 · www.arinn.is
Maricel
181.000 kr.
Barbara 90
294.900 kr.
Ullarsængur og
ullarkoddar
Amerísk
gæðavara
Skólavörðustígur 21a - Sími 551 4050
Alvara í
handverki
Á Selfossi er að finna lítið handverksverk-
stæði og verslun sem kallast Alvörubúðin og
má þar finna heilmikið af bæði íslensku og
indversku handverki.
Alda Sigurðardóttir myndlistarkona er eigandi
Alvörubúðarinnar og heldur úti vefsíðunni
Alvara.is þar sem hún selur vörur sínar.
„Á verkstæðinu bak við Alvörubúðina er útbúin
handavinna fyrir börn, búningar og fleira en hér
er einnig verslun þar sem handverk er selt,“ segir
Alda. Handavinnuna og handverkið býr hún til
sjálf en hún er einnig með til sölu handverk annars
staðar að og mikið af handverki frá Indlandi sem
hún flytur inn sjálf.
„Indverskt handverk er gamalt áhugamál hjá
mér og hef ég farið nokkrum sinnum til Indlands.
Ég hef komið mér upp sambandi við mann á Ind-
landi sem kaupir fyrir mig ekta handverk eftir
minni forskrift,“ segir Alda.
Verslunin hefur því á sér mjög ævintýranlegan
brag og kennir ýmissa grasa og má finna litskrúð-
uga dúka, rúmteppi, dúkkur, leðurvörur og dans-
bjöllur svo fátt eitt sé nefnt. Einnig eru þarna föt á
börn og fullorðna. Allt er handunnið og eru engir
tveir hlutir eins.
„Ég hef einnig verið að þróa pakkningar með
handavinnu fyrir börn. Ég er með þær til sölu hér
og á öðrum stöðum um landið og einnig á vefsíðu
minni, en sjálf er ég alin upp í handavinnubúð,“
segir Alda. ■
Á vefsíðunni www.stencil-libr-
ary.com er ótrúlega mikið úrval
af fallegum stenslum. Mikið er í
tísku núna að veggfóðra en ekki
vilja allir gera það og lenda svo í
því síðar meir að þurfa að taka
veggfóðrið niður. Tilvalið er að
velja sér fallegt mynstur í stensl-
um og mála vegginn eins og hann
sé veggfóður, svo auðvelt sé að
mála yfir hann síðar meir án mik-
ils tilstands. Stenslar geta einnig
nýst ef skreyta á húsgögn, gólf
eða myndaramma og fleira. ■
Málað veggfóðurmynstur
Stenslar notaðir til að mála á veggi, gólf og húsgögn
Á vefsíðunni www.stencil-library.com er
mikið úrval af stenslum.
Japönsk hönnun
Ýmsar vörur fyrir heimilið.
Japanska fyrirtækið Plus Minus Zero
hannar og framleiðir ein-
staklega fallega hluti fyrir
heimilið. Þar má meðal
annars nefna út-
varpstæki, hand-
klæði, ruslafötur,
gólfmottur og fleira.
Öll hönnun er sérstaklega stílhrein og
falleg eins og sést til að mynda á átta
tommu ferðasjónvarpstækinu sem fá-
anlegt er í þremur litum og er með
LCDskjá. Á vefsíðunni www.plus-
minuszero.jp getur að líta vöruúrvalið
og er sjón sögu ríkari.
1. Alda Sigurðardóttir. 2. Indverskt leðurveski.
3. Indverskar dúkkur. 4. Handþrykktir dúkar og rúmteppi.
5. Púðar sem Alda hefur saumað í. 6. Handgerð
vaxbatík-mynd. 7. Litskrúðugir dúkar og engir tveir eins.
8. Kerti og spil frá Þingborg. Þæfður og útsaumaður
ullarpoki með tölu úr horni.
1
2
3 4
5
6
7 8