Fréttablaðið - 20.01.2005, Qupperneq 28
F2 2 20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Páskaferðir til Tyrklands, Krítar, Kanaríeyja, Túnis,
Egyptalands, Tælands, Bali, Kína, Kúbu og Suður-
Afríku á verði sem kemur á óvart!
Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar, www.kuoni.is, og á
söluskrifstofunni.
Pantaðu glæsilegan ferðabækling!
Vertu með í Glóbus-klúbbnum!
Morgunmatur Nú er lag, hafra-
grauturinn er staðgóður og hollur
morgunmatur, sem ætti að koma fólki
vel af stað. Enda morgunmatur-
inn ein mikilvægasta máltíð
dagsins.
Íþróttir Nú ættu þeir sem
hafa verið að mótmæla sí-
fellt meiri íþróttum í sjón-
varpi, að flytjast úr landi,
fara í stutta ferð til Kanarí.
Því í næstu viku verður
RÚV undirlagt af handbolta,
þegar Viggó og „strákarnir okk-
ar“ í íslenska landsliðinu í hand-
bolta keppa á HM. Mótið hefst á
sunnudaginn með leik Íslands
og Tékklands klukkan fjögur.
Á þriðjudaginn etja þeir kappi
við Slóvena klukkan sjö um
kvöldið, og á miðvikudaginn er leikur
við Kúveit á sama tíma.
Útiveran Þegar snjórinn liggur yfir
öllu, þarf ekki að velkjast í vafa um
hver útiveran er. Heitt kakó, smurt
brauð, skíðin upp á topp, og
skundað upp í Bláfjöll.
Leikurinn Í Champ-
ionsship Manager gefst
leikmönnum færi á að stýra
liði sínu til sigurs. Varúð, getur
orðið ávanabindandi.
Kvikmyndin Þó að
kvikmynd Olivers
Stone, Alexander hafi
fengið útreið hjá
bandarískum gagn-
grýnendum, þá segist
Stone sjálfur vera þess
viss, að umburðarlynd-
ir evrópubúar eigi eft-
ir að taka henni opnum örmum. Eitt
er víst. Kvennþjóðin á eftir að flykkjast
á þessa mynd til þess að sjá Colin
Farell í stuttu pilsi og drengirnir til að
sjá ástaratriðið með Rosario Dawson.
Sjónvarpið Á laugardaginn sýnir
Stöð tvö snilldarmyndina Raising
Arison eftir þá Cohen bræður. Myndin
skartar Nicholas Cage og hirðleikara
Cohen bræðrana, John Goodman í
aðallhlutverkum, ásamt Holly Hunter.
Þetta er mynd sem enginn má láta
fram hjá sér fara. Á dagskrá klukkan
23:45.
Útsalan Það eru ekki
bara föt sem eru á út-
sölu, heldur er líka
hægt að fara á útsölu í
Skífunni og kaupa
diskana sem vantar í
safnið á góðu verði.
velurF2
Líkamsræktarstöðin World Class í
Laugum varð ársgömul í þessum
mánuði. Á einu ári hefur gestunum
fjölgað gríðarlega. Í byrjun voru um
6000 manns að æfa í Laugum en nú í
janúar er fjöldinn kominn yfir 8000
manns. Það hefur einnig vakið athygli
fólks sem hefur verið að æfa annars
staðar hvað margir eru komnir yfir í
Laugar. Aðspurður um hvort Laugar
séu að drepa niður aðra líkamsræktar-
starfsemi í Reykjavík segir Björn
Leifsson eigandi World Class svo ekki
vera.
„Það tekur
samt örugglega
í hjá hinum, en
m a rk a ð u r i n n
stækkar á
hverju ári um
sirka 5% þegar
nýr árgangur
kemur inn í
stöðvarnar, en
þeir eldri halda
áfram að mæta.
Við miðum við 16 ára aldur en yngri
krökkum er heimill aðgangur ef þeir
eru í fylgd með foreldrum,“ segir hann
og bætir við að Laugar hafi ekki enn
náð toppnum, en hann spáir því að
stöðin nái því takmarki sínu í mars á
þessu ári. Talið er að líkamsræktar-
markaðurinn rúmi um 25 þúsund
manns og þar af eru yfir tíu þúsund að
æfa í World Class ef World Class í
Spönginni og World Class í Orku-
veitunni eru meðtalin. Vegna mikillar
aðsóknar í Laugar er verið að bæta við
brennslu-og lyftingatækjum.
„Í janúar fjölgaði kúnnunum um
1000 og við tökum eftir betri nýtingu
kortanna. Ég held að fólk líti ekki
lengur á líkamsrækt sem einhverja
kvöð heldur er fólk að koma því það er
gaman og til að hitta annað fólk.
Laugar eru eiginlega að breytast í
félagsmiðstöð. Laugar eru líka miklu
skemmtilegri en hinar stöðvarnar sem
við höfum átt. Við tökum líka eftir
töluvert fleira eldra fólki, það er
skemmtileg viðbót,“ segir Björn
Leifsson.
Bréfsefni sem Einar Gylfason hann-
aði fyrir auglýsingastofuna Ó! hlotn-
aðist nýlega sá heiður að vera valið til
birtingar í bókinni Graphis Letterhead
6, en Graphis-útgáfan, sem er í New
York, þykir eitt virtasta útgáfufyrir-
tæki heims á sviði grafískrar hönnun-
ar. Einar segir þessa birtingu vera
mikinn heiður fyrir sig. „Þetta er við-
urkenning á því að ég hafi gert eitt-
hvað rétt.“ Um hálfgerða hönnunar-
keppni er að ræða, og þeir sem valdir
eru til birtingar eru allir sigurvegarar,
því ekki eru veitt nein verðlaun fyrir
sæti. Einar segir að þetta sé fyrst og
fremst upphefð fyrir þá hönnuði sem
valdir eru til birtingar.
Einar segir þetta hafa komið honum
skemmtilega á óvart, en viðurkennir þó
að hann hafi alveg eins átt
von á þessu. „Ég hafði að
sjálfsögðu fulla trú á því
sem ég var að gera, annars
væri ég ekki að þessu,“
segir hann. Inn í þessa
keppni eru send mörg
hundruð verk og því ljóst
að um töluverðan heiður
er að ræða. „Það sem ég
sendi inn var A4 blað,
nafnspjald og umslag.“
Bókin sem hönnun Einars
birtist í er mjög vegleg og
telur um 260 síður.
F2 alltaf í
Fréttablaðinu
á fimmtudög-
um.
Útgefandi
Frétt hf.
Ritstjórn
Jón Kaldal
Höfundar efnis í þessu hefti
Borghildur Gunnarsdóttir, Freyr Gígja
Gunnarsson, Kristján Hjálmarsson, Marta
María Jónasdóttir og Þórarinn
Þórarinsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Aðalsími: 550 5000
Netfang: f2@frettabladid.is
Auglýsingar Auglýsingadeild Frétta-
blaðsins, Jón Laufdal, Einar Logi Vignis-
son, Ólafur Brynjólfsson.
Forsíðan Björg og Vala í
Spaksmannsspjörum, sjá viðtal bls. 10.
Ljósmynd: Hari
Þetta og
margt fleira
04 Bóndadagsóskirnar hennar og hans
06 Tíðarandinn í innanhússhönnun
08 Göturnar í lífi Ágústs Einarssonar
10 VIÐTAL
Stjörnurnar
sólgnar í hönnunina
Björg og Vala í Spaksmannsspjör-
um eru úthaldsmestu tískuhönn-
uðir landsins. Marta María Jónas-
dóttir lítur yfir farinn veg með
þeim og skoðar líka hvað er
framundan.
12 ÚTTEKT
Eru aukefnin að
sliga mannslíkamann?
Kemíska kryddið MSG er mikill
þyrnir í augum þeirra sem vilja
gæta að heilsunni. Það kemur þó
ekki í veg fyrir að matvörufram-
leiðendur noti það óspart.
14 Matgæðingurinn Egill Helgason
elskar ávexti.
16 3 dagar: Það sem ber hæst
um helgina.
18 Dóri blúsari er líka forfallinn golfari
– Fröken Freyja leysir vandann.
Allir í Laugum ■ Bóndadagsóskir ■ Göturnar í lífi Ágústs Einarssonar prófessors ■ Frönsk sælkeraveisla á Vox
Matgæðingurinn Egill Helgason ■ Dóri vinur: með gítarinn í annarri og golfkylfuna í hinni
F23. TBL. 2. ÁRG. 20. 1. 2005
Framkvæmdaglaðir Íslendingar
Tíðarandinn í innanhúshönnun
Matur og heilsa
Kemíska kryddið MSG
leynist ótrúlega víða
í Spaksmannsspjörum
Hafa klætt Drew Barrymore, Terry Hatcher og Uma Thurman
Vala
og Björg
World Class í Laugum í mikilli sókn:
Fjölgaði um 1000
manns í janúar
Íslenskri hönnun hlotnast mikill heiður:
Bréfsefni á heimsmælikvarða
Líkamsræktarstöðin World Class er ein sú flottasta í landinu og þó stöðin sé stór er hún mjög hlýleg. Þetta skiptir neytendur
greinilega máli en aðsóknin í Laugar er alltaf að aukast.
Björn Leifsson
Eigandi World Class
Einar Gylfason Það er mikil upphefð í
þessari viðurkenningu.