Fréttablaðið - 20.01.2005, Síða 36
Spaksmannsspjarasysturnar, Björg Inga-
dóttir og Vala Torfadóttir, eru með fulla
verslun af íslenskum fyrirsætum þegar
blaðamann ber að garði. Nokkrum dög-
um síðar á að mynda auglýsingu fyrir
verslunina og hönnuðirnir vita nákvæm-
lega hvernig hún á að líta út. Þær stjórna
hópnum eins og skipstjórar á vertíð. Á
þessu ári eru tólf ár síðan þær stofnuðu
Spaksmannsspjarir. Þær eru einu íslensku
hönnuðirnir sem hafa haldið úti fata-
framleiðslu og verslunarrekstri öll þessi
ár, en það hefur ekki alltaf verið auðvelt.
„Við erum „original“ hönnuðir og
þess vegna höfum við haldið þetta út
allan tímann, en auk þess erum við
miklir vinnuhestar. Við erum að hanna
fatalínur út frá okkar konsepti. Við
hlaupum ekki á eftir tískubylgjum sem
við sjáum í öðrum verslunum. Rekstr-
argrundvöllurinn hérna hefur þó oft
verið mjög erfiður og við erum búnar
að lenda í öllum vandamálum sem hægt
er að lenda í hvað varðar framleiðslu og
flutninga. Efni hafa týnst og fyrirtækin
sem við höfum verslað við hafa farið á
hausinn, skipt um eigendur og sum
lokað,“ segir Björg og Vala tekur undir
og bætir við:
„Kostnaður við reksturinn er mjög
mikill, húsaleigan er til dæmis mjög há
og hönnunarferlið er mjög dýrt. Það
þarf oft að sauma margar prufuflíkur
áður en flíkin fer í framleiðslu.“
Aðspurðar um staðsetningu versl-
unarinnar segja þær að það hafi oft
komið til tals að flytja í verslunarmið-
stöð en lokaniðurstaðan hafi alltaf
orðið sú að Spaksmannsspjarir myndu
ekki fúnkera þar.
„Við viljum trúa því að þeir sem vilja
versla við okkur komi á Laugaveginn
enda viljum við efla miðbæinn,“ segir
Björg sem vill meina að það sé aðeins
að rofa til á Laugaveginum. „Það eru
komnar margar litlar og skemmtilegar
sérverslanir í miðbæinn. Því var spáð að
miðbær Reykjavíkur ætti að verða rosa-
lega trendí frá 2000 til 2010. Við erum
greinilega bara enn þá seinna á ferð-
inni,“ segja þær.
Lítið fyrir glyðruföt
Björg og Vala hafa mjög ákveðnar skoð-
anir á klæðaburði kvenna. Þær segja sem
dæmi að konur geti alveg verið í sama
sparikjólnum árshátíð eftir árshátíð svo
framarlega sem þær séu flottar í þeim og
kjólarnir séu klæðilegir.
„Það er endalaust hægt að stílisera
upp á nýtt með skóm og fylgihlutum þó
kjóllinn sé sá sami,“ segir Björg.
„Línan hjá okkur er líka svo mikið
í pörtum að það er svo auðvelt að
breyta uppröðuninni. Konur geta létti-
lega fengið 20 útkomur úr þremur
dressum,“ segir Vala.
Aðspurðar um hvort þær vinni út
frá einhverju þema þegar þær eru að
hanna segjast þær löngu vera komnar
yfir slíkt vinnuferli.
„Ég man varla hvað við vorum að
hugsa í fyrra þegar við hönnuðum
línuna. Við erum meira í því að vilja
hafa konurnar flottar og sexí, ekki samt
svona glyðrusexí,“ segir Björg og Vala
kinkar kolli.
„Við hugsum línurnar meira út frá
konunum, sem eru náttúrlega bara
þemað. Við skoðum efni og spáum í
snið og þannig fáum við fílinginn. Og
svo byggjum við á því sem við erum
með. Þó við hugsum alltaf hverja línu í
heild sinni erum við mikið í því að mixa
saman. Og þegar línan kemur í hús
blandast nýja línan við það sem fyrir
er,“ segir Björg.
Pink í æðardúnskápu
Yfir kaldasta vetrartímann finnst kven-
fólki oft erfitt að klæða sig og mörgum
konum finnst ekkert þokkafullt við
dúnúlpur, húfur og vettlinga. Þessu eru
Björg og Vala algerlega ósammála.
„ Mér finnst miklu erfiðara að vera í
skvísufélaginu á sumrin. Á veturna
hefur maður allavega alltaf eitthvað til
að vera í,“ segir Vala og brosir út í
annað. Meðhönnuður hennar gæti ekki
verið meira sammála.
„Við förum í skvísukjólinn, setjum á
okkur húfu, reimum á okkur grófa skó
og látum kjólinn dragast eftir götunni,“
segir Björg. Vala segir að þeim finnist
ekkert skvísulegt að vera ekki í neinu.
„Við setjum á okkur rúllukragana
setjum perlufestar yfir og höfum ullar-
nærbolinn upp úr korsilettinu,“ segir
Björg. Þær stöllur hafa um nokkurt
skeið verið að gera tilraunir með æða-
dún og hafa tilraunirnar heppnast gríð-
arlega vel. Erlendar konur virðast þó
vera spenntari fyrir æðardúnsflíkunum
en þær íslensku. Síðasta sumar heim-
sótti söngkonan Pink Spaksmanns-
spjarir og fjárfesti í æðardúnskápu.
„Það sem við höfum selt af æðar-
dúnsflíkunum hefur allt farið til útlend-
inga, en það er líklega mest út af verð-
laginu. Ég held að við Vala séum einu
konurnar á Íslandi sem eigum svona
jakka,“ segir Björg og hlær.
Æðardúnskápurnar eru þó ekkert
sérlega dýrar ef miðað er við pelsa og
flokkast sem lúxusvara.
„Það vilja ekki allar konur pelsa þó
þær vilji klæðast lúxusvöru og margar
kjósa að geta klæðast einhverju hlýju án
þess að hafa það á samviskunni að dýr
hafi verið depin fyrir stælinn,“ segir
Björg.
Pink er þó ekki eina stórstjarnan sem
hefur hrifist af hönnun Spaksmanns-
spjara. Uma Thurman, Drew Barrymore,
Terry Hatcher og Helene Mirren eiga til
dæmis allar flíkur frá Spakmannsspjör-
um. Blaðamanni lék forvitni á að vita
hverju stjörnurnar væru hrifnastar af en
þær sögðu að það væri allur gangur á því
hvað þær væru að versla.
„Pink verslaði til dæmis bæði nýjar
vörur og útsöluvörur og blandaði þessu
öllu saman og var rosalega smart,“
segir Björg.
Eftiröpun er þreytandi
Það hefur borið töluvert á því að
hönnun Spaksmannsspjara hafi verið
stæld.
„Okkur finnst þetta ferlega hallærislegt
og þreytandi. En kúnnarnir okkar eru
þó miklu viðkvæmari fyrir þessu en við
sjálfar. Hönnuðir endast aldrei né verða
metnir af verkum sínum ef þeir apa allt
upp eftir öðrum. Við höfum oft hætt að
framleiða flíkur vegna þessa. Við hljót-
um bara að vera svona svakalega góðar,
það getur ekki annað verið,“ segja þær
og hlæja sínum smitandi hlátri. „Okkur
finnst alverst þegar eftiröpunin er svona
hrikalega ljót og illa gerð og sumir
halda svo að varan sé frá okkur. Það
finnst okkur alveg ömurlegt,“ segir
Vala.
Íslenskar konur í of þröngum
fötum
Talið berst að íslenskum konum og
klæðaburði þeirra. „Ég held að íslensk-
ar konur hugsi frekar mikið um útlitið.
Í öllum löndum er þó alltaf bara lítill
hluti kvenna virkilega flottur,“ segja
þær. En hvað skyldu vera algengustu
tískuslysin hjá íslenskum konum?
„Íslenskar konur eru oft í allt of
litlum fötum og allt of litlum skóm.
Fatastærðirnar eru líka mjög viðkvæm-
ar hjá konum. Þó þær fitni vilja þær alls
ekki nota föt í Large, þær kaupa frekar
í Medium. Þetta finnst okkur mjög
kjánalegt því stærð er bara málband og
málbandið breytist ekki neitt. Við
gætum náttúrlega búið til öll fötin úr
teygjuefni, en við erum ekkert í því.
Íslendingar eru að fitna og við erum
ekkert undanskildar því,“ segja þær
„Fötin eru ekki teiknuð á blað og
saumuð eftir því heldur eru þau mátuð
af okkur og stelpunum sem vinna
hérna. Ef buxur eru ekki nógu klæði-
legar eru þær lagaðar til þangað til þær
verða klæðilegar og passa á flesta. Þess
vegna eru góðar líkur á að konur finni
föt hérna því það eru konur sem eru að
máta fötin,“ segir Vala en bætir við að
of þröngar sokkabuxur geti búið til
björgunarhringi á tággrannar konur og
konur verði að varast það.
„Mér finnst yfirleitt smartara að
sleppa hjálpartækjum eins og
„sjokköpp“ sokkabuxum og „wonder-
bra“ brjóstahöldurum. Fyrir nokkrum
árum var þetta voða vinsælt en ég held
að konur nenni þessu ekki lengur.
Konur eru meira niðri á jörðinni
núna. Kannski er það bara af því
sjálfsmyndin er orðin sterkari og kon-
ur þurfa ekki á þessum hjálpartækjum
að halda,“ segir Björg. Um þessar
mundir eru þær að horfa yfir farinn
veg. Þegar þær líta til baka finnst þeim
þær hafa komið hrikalega miklu í verk
á þeim tólf árum sem þær hafa starf-
að. Þær hafa lært ógrynni af nýjum
hlutum enda hafa þær oft þurft að
upplifa mikinn mótbyr. Aðspurðar um
hvernig þær vinni úr vandamálunum
segjast þær yfirleitt alltaf leita til hvor
annarrar og vaði í vandamálin strax.
Þó róðurinn hafi oft verið erfiður hef-
ur aldrei hvarflað að þeim að gefast
upp. „Hvar ættum við að fá okkur föt
ef við myndum hætta? Og hvað ættu
viðskiptavinir okkar að gera? Þetta
yrði bara ekki hægt,“ segja þær og
hlæja enn þá meira.
Spaksmannsspjara-
systurnar Björg
Ingadóttir og
Vala Torfadóttir
eru úthaldsmestu
tískuhönnuðir
Íslands og er fatn-
aður þeirra eftir-
sóttur langt út
fyrir landsteinana.
Þær horfa hér yfir
farinn veg með
Mörtu Maríu
Jónasdóttur og
framtíðin
er björt.
Ljósmyndir: Hari
F2 10 20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
STJÖRNURNAR
SÓLGNAR Í HÖNNUNINA