Fréttablaðið - 20.01.2005, Page 40
F2 14 20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Arkarþorrablót
Tökum að okkur þorrablót fyrirtækja,
átthagafélaga, vinahópa og félagasamtaka.
Nánari upplýsingar og pantanir í
síma 483 4700
www.hotel-ork.is, info@hotel-ork.is
Verð: 4.500,- krónur
Verð með gistingu: 8.790,- krónur (á mann í tvíbýli)
29. janúar 2005
Ómar Ragnarsson og Haukur Heiðar Ingólfsson
Glæsileg söng og skemmtidagskrá.
Þorrahlaðborð hlaðið dýrindis mat úr smiðju
matreiðslumanna Hótel Arkar, Tómasar
Þóroddssonar og Jakobs V. Arnarsonar.
Dansleikur með hinum einu sönnu Sölvum
fram eftir nóttu.
Hvaða matar gætirðu ekki
lifað án?
Mér finnst góður matur góður, vond-
ur matur vondur. Þannig get ég ekki
lifað án þess að hafa gott hráefni,
ferskan fisk, gott kjöt, nýtt grænmeti
og ávexti.
Er einhver matur sem þér
finnst vondur?
Allur þorramatur finnst mér veru-
lega ógeðslegur. Mér þóttu
ostrur góðar, en nú er ég,
held ég, með ofnæmi fyrir
þeim.
Fyrsta minningin
um mat?
Ég held það séu vínber sem
pabbi keypti handa mér í Silla
& Valdabúðinni á Hringbraut
á leiðinni úr Hagaborg. Ég kallaði
það kúlur og búðin hét Kúlubúð – ég
er enn sólginn í vínber.
Besta máltíð sem þú hefur
fengið?
Mér finnst fiskur eins og þeir grilla
hann heilan í
Grikklandi bestur.
Eftirminnilegasta
máltíðin er á stað
sem heitir Caprice
á Mykonos, niðri í
fjöruborðinu undir vindmyllunum.
Með stjörnubjartan himin og hafið
fyrir framan sig.
Hvað er það skrýtnasta sem
þú hefur borðað?
Ég segi eins og margir sem svara í
þessum dálki: íslenski þorra-
maturinn. Það er ekkert skrítn-
ara en súrsuð eistu og matur
sem búið er að pissa á.
Leyndarmál úr eldhússkápn-
um?
Ég er smátt og smátt að venja mig af
öllum ósiðum. En leiðinlegt, kynni
einhver að segja. Ég er meira að segja
búinn að hreinsa brauð út úr matar-
æðinu.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum?
Jógurtið klárast held ég aldrei. Helst
einhverja ávexti. Melónu, vínber,
jarðarber.
Hvað borðarðu þegar þú
þarft að láta þér líða
betur?
Konan mín er snillingur að búa til
salöt.
Ef þú yrðir fastur á eyðieyju,
hvaða rétt myndirðu taka
með þér?
Ég myndi taka með mér grill, eld-
spýtur og ólífuolíu til að matreiða all-
an góða fiskinn sem ég myndi veiða.
Sólginn í vínber
Hver og hvar? Veitingastaðurinn
Tilveran, Linnetsstíg 1, 220 Hafnar-
firði.
Hvernig er stemningin? Tilveran
er þekkt fyrir ódýran en góðan mat. Í
hádeginu er staðurinn oft þéttsetinn
af þeim sem vinna í miðbæ Hafnar-
fjarðar og er í boði sérstakur hádeg-
ismálsverður á mjög góðu verði og
fylgir súpa með réttinum. Á kvöldin
breytist Tilveran í notalegan fjöl-
skylduvænan stað, þar sem boðið er
upp á mat við allra hæfi. Tilveran er
í hjarta Hafnarfjarðar. Íburður er í
lágmarki en þess í stað er lögð
áhersla á að gera kvöldið sem allra
notalegast.
Matseðillinn Fiskur af ýmsum
gerðum er áberandi á matseðlinum í
bland við hefðbundnari rétti eins og
lambafillet, grillaðan kjúkling, svína-
kjöt og pasta. Ef börnunum líst ekki
á neitt af þessu þá er í boði sérstakur
matseðill fyrir þau með til dæmis
pítsum og hamborgurum.
Hvað er vinsælast Rauðsprettan er
vinsælasti rétturinn, enda kemur hún
fersk úr hafinu. Hún kostar í hádeg-
inu 1290 kr. og fylgir þá súpa með.
Réttur dagsins Í hádeginu er boðið
upp á rétti dagsins, og kosta þeir frá
990 kr. og upp í 1290 kr.. Þá er einnig
boðið upp á fisk kvöldsins á góðu verði
Veitingastaðurinn Tilveran
Heimilislegur og ódýr
Mexíkönsk matargerð hefur notið vax-
andi vinsælda á Íslandi, og flestir
þekkja orðin tacos og fajitas. Mexíkönsk
matargerð er byggð upp á mjög hollum
og einföldum mat og segir Sævar Stein-
arsson yfirkokkur á veitingastaðnum
Tex Mex matinn hér á Íslandi jafnvel
vera enn einfaldari. „Í Mexíkó baka þeir
allar sínar kökur sjálfir, og eru þær þá
gerðar á svipaðan hátt og flatkökurnar.“
Hann segir að hér á landi hafi menn
kannski kynnst eingöngu ákveðnum
hlutum af mexíkanskri matargerð en
hún bjóði upp á miklu fjölbreytilegri
mat. „Í sumum héruðum, er fiskmeti
eins og risarækja og koli mikið notað, á
meðan í öðrum héruðum sé uppistaðan
kjötbollur og svínakjöt.“ Hann bætir
því þó við, að pönnukökurnar séu ein-
kenni mexíkanskrar matargerðar, ásamt
grænmeti og fersku chilli. „Þó hér sé
hægt að fá kannski tvær gerðir af hinu
rótsterka jalapeno þá eru yfir hundrað
tegundir af chilli,“ segir hann.
Mexíkanar nota mikið af olíu, og
marínera matinn sinn. Þá fer einnig
mikið fyrir ferskum koríander, límónu og
djúpsteiktum mat. „Þeir gera líka mikið
af súpum svo sem baunasúpur, hvítlauks-
súpur, límónusúpur, avókadósúpur og
krabbasúpur.“ Sævar segir þá sem hugsa
um línurnar ættu að kætast, því mexík-
anskur matur sé ekki mjög fitandi. „Til
dæmis er salsasósan samansett úr tómöt-
um, kryddi og vökva. Hana er síðan hægt
að bragðbæta með olíunni úr jalapeno,
án þess að það skaði bragðið.“
Mexi skins með baconi
bökunarkartöflur
beikon
laukur
salsasósa
rifinn ostur
Kartöflurnar eru bakaðar í ofni í 30 til
45 min, eftir stærð og kældar niður.
Þær eru síðan skornar í tvennt og
skafið úr þeim, um það bil fjórum mat-
skeiðum, innan úr hvorum helmingi.
Þá er settur fínsaxaður laukur í botninn,
svo steikt beikon, salsa, og loks er rifn-
um osti stráð yfir. Þetta er síðan hitað í
ofni við 180 gráður í tólf til fimmtán
mínútur. Sævar segir, að þetta ætti að
gefa fólki hugmynd um hvernig hægt er
að gera bökuðu kartöfluna að girnilegu
meðlæti en að einnig megi setja hakk
og í raun hvað sem fólki dettur í hug.
Enchilades
hveiti tortilla-pönnukökur
kjúklingastrimlar .
sósa og rifinn ostur ofan á
salat
laukur
enchilada-sósa (má nota salsa)
Tortilla-kökurnar eru hitaðar létt á
pönnu eða í ofni. Svo er salatið,
kjúklingurinn og laukurinn sett á og
pönnukökunum rúllað upp. Sósan
síðan pensluð á og osti dreift yfir. Þær
eru síðan hitaðar við 150 gráður í
fimmtán mínútur.
Lárperumauk Guacamole
2 stk þroskuð lárpera (avocado)
1msk fínsaxaður laukur
1 stk ferskur chilli saxað og fræin
tekin úr
1 lúka af söxuðum, ferskum kóríander
safi úr 1 súraldin
1 tsk salt
Lárperan er skorin í tvennt, steinninn
tekinn úr og skorinn í teninga, allt sett
í matvinnsluvél og maukað vel
Gott er að bera þetta fram með
nachos-flögum, sýrðum rjóma, fersku
salati og kryddhrísgrjónum.
Chateau Cantenac-
Brown er eitt
þekktasta vín
Frakklands og hef-
ur alltaf notið hylli
vínáhugamanna og
safnara hérlendis.
Ekki spillir fyrir að
dýr vín eru fremur
hagstæð í innkaup-
um hér á landi
vegna hinna flötu
áfengisskatta. Can-
tenac-Brown höllin
er byggð í breskum Tudor-stíl og sker
sig því nokkuð úr frá nágrönnum sín-
um í Margaux. Framkvæmdir voru
hafnar á síðustu öld af John-Lewis
Brown en hann var sonur bresks vín-
kaupmanns. Líftryggingafélagið AXA
festi kaup á Cantenac-Brown árið 1989
og endurnýjaði allan tæknibúnað auk
þess sem vínekrur voru endurbættar og
höllin endurgerð. Hún er nú notuð sem
háskóli AXA-fyrirtækisins á sviði
tryggingarfræða. Þetta er vín í klassísk-
um Margaux-stíl úr þrúgunum caber-
net sauvignon, merlot og cabernet
franc.
Verð í Vínbúðum 3.780 kr.
Dýrari vín hagstæð á Íslandi
Mexíkanskur matur. „Matur og meðlæti að hætti Mexíkana.“
Sævar Þorsteinsson yfirkokkur á Tex
Mexíkönsk matargerð
Pönnukökur uppistaðan
Matgæðingurinn Egill Helgason
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI