Fréttablaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 54
Blóðug bankaútás
Það eru ekki bara viðskiptabankarnir sem eru í út-
rás. Blóðbankinn lætur sitt ekki eftir liggja og
bankastjórinn Sveinn Guðmundsson vísaði til út-
rásar bankanna þegar hann kynnti stofnfrumu-
gjafaskrá. Stofnfrumur eru notaðar við meðhöndl-
un alvarlega veiks fólks svo sem hvítblæðis-
skjúklinga. Íslendingar hafa verið þiggendur þegar
kemur að stofnfrumum. Blóðbankastarfsemi er ólík
annarri bankastarfsemi enda leggja flestir inn í
bankann með þá von í brjósti að taka innistæðuna
aldrei út. Því ólíkt annarri bankastarfsemi er sælla
að gefa en þiggja þegar Blóðbankinn á í hlut.
Símafyrirtækin lækkuðu
Töluverð umfjöllun hefur verið í fjölmiðlum und-
anfarna daga um ýmis netforrit sem gefa notend-
um kost á því að ræðast við án kostnaðar. Þekkt-
ast þessara forrita er skype sem einnig býður
notendum upp á þann möguleika að hringja í
hefðbundin símanúmer, bæði landlínu og gsm
númer, um heim allan, en greiða aldrei meira en
innanlandstaxta. Meðal þeirra sem tekið hafa
þessa tækni í notkun er utanríkisþjónustan sem
eðli málsins samkvæmt þarf á greiðum símasam-
skiptum á milli landa að halda. Í KB banka hefur
um nokkurt skeið verið notað við þessa tækni en
þar eru menn misánægðir með kerfið. Símafyrir-
tækin sögðust í fréttum í gær að þau hefðu litlar
áhyggjur af tekjutapi vegna þessarar nýju tækni
þar sem reynsla af slíkum nýjungum væri sú að
notkun ykist en tekjur
drægjust ekki sam-
an. Í Kauphöll-
inni í gær lækk-
uðu Síminn og
Og Vodafone mest
allra fyrirtækja og
má leiða líkum að því
að umfjöllun um hina
nýju tækni kunni að hafa
haft einhver áhrif.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.541
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 218
Velta: 795 milljónir
-0,50%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Magnús Ólason verkfræðing-
ur hefur tekið við framkvæmda-
stjórn Marel UK í Bretlandi af
Halldóri Magnússyni sem snýr
til höfuðstöðva Marel og tekur
við viðskiptaþróun á Asíumark-
aði.
Gengi krónunnar lækkaði um
0,09% í gær. Gengisvísitalan
byrjaði í 111,50 stigum en end-
aði í 111,60 stigum. Litlar sveifl-
ur voru á gengi krónunnar í dag
en gengisvísitalan sveiflaðist á
bilinu 111,50-111,80 stig yfir
daginn.
Í gær lækkaði FTSE í Lundún-
um um 0,12 prósent. Dax í
Þýskalandi lækkaði einnig um
0,12 prósent. Í Japan lækkaði
Nikkei um 0,16 prósent.
22 20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Íslandsbanki telur að
fasteignaverð kunni að
hækka jafnvel meira í ár
en í fyrra. Greiningar-
deildir bankanna telja
það hæpið en fasteigna-
salar segja mikinn kraft í
markaðnum.
Greiningardeild Íslandsbanka tel-
ur að fasteignaverð muni hækka
jafnvel enn meira nú í ár en það
gerði í fyrra. Þó segir deildin að
fljótlega komi að því að markað-
urinn mettist þar sem fólk vilji
ekki standa í því að flytja búferl-
um í sífellu.
Í Morgunkorni Íslandsbanka í
gær kom fram að raunverð íbúða
sé nú í sögulegu hámarki eftir
miklar hækkanir á síðasta ári. Þá
hækkaði verð sérbýlis á höfuð-
borgarsvæðinu um fjórðung en
íbúðir í fjölbýli hækkuðu um
sautján prósent. „Tölurnar vekja
upp spurningar um hve lengi þessi
mikla velta og verðhækkanir geti
haldið áfram,“ segir Íslandsbanki
og segir takmörk hljóta að vera
við því hversu oft fólk vilji flytja.
Engu að síður er það mat Ís-
landsbanka að verðhækkanir
haldi áfram. „Gera má ráð fyrir að
væntingar um frekari hækkanir á
húsnæðisverði, góður aðgangur að
lánsfjármagni, lækkun langtíma-
vaxta og vaxandi kaupmáttur
heimilanna muni viðhalda mikilli
veltu á fasteignamarkaði á þessu
ári að minnsta kosti og að húsnæð-
isverð hækki verulega og jafnvel
meira en á síðasta ári,“ segir í
Morgunkorninu.
Ingóflur Bender, forstöðumað-
ur greiningardeildar Íslands-
banka, segir að líklega verði
hækkunin áfram mest í sérbýli á
höfuðborgarsvæðinu. Hann bend-
ir einnig á að þótt hækkanir hafi
verið miklar upp á síðkastið sé
húsnæðisverð hér enn sem komið
er lægra í hlutfalli við laun en er á
ýmsum svæðum sem hægt er að
bera Ísland saman við. „Þessi
þáttur er ekki takmarkandi um
verðlag á íslenskum fasteignum,“
segir hann. Hann segist hins veg-
ar eiga von á að fasteignaverð
lækki að raunvirði við lok núver-
andi efnahagsuppsveiflu. „Það
kann að verða árið 2006 eða 2007
en við teljum ekki að það verði í
bráð,“ segir hann.
Björn Rúnar Guðmundsson,
hjá greiningardeild Landsbank-
ans, tekur undir að spenna sé á
fasteignamarkaði en segist telja
ólíklegt að hækkunin verði meiri í
ár en fyrra. „Áhrifin verða mest
fyrst á meðan þessi kúfur er að
fara í gegn en mér finnst ótrúlegt
að hækkunin í heild verði meiri í
ár en í fyrra,“ segir hann.
„Ég veit ekki hvort fasteigna-
verð muni hækka meira á þessu
ári en því síðasta en ég gæti trúað
því að tólf mánaða hækkunin eigi
eftir að ná hámarki á þessu ári,“
segir Snorri Jakobsson hagfræð-
ingur í greiningardeild KB banka.
Fasteignasalar verða ekki var-
ir við annað en að markaðurinn
verði áfram kraftmikill. Hákon
Róbert Jónsson, sölumaður fast-
eigna hjá Kletti, segir að það
kæmi sér ekki á óvart þótt hækk-
anirnar í ár verði meiri en í fyrra.
„Það er að koma mikið framboð
af nýbyggingum og menn eru að
átta sig betur á því hvernig þessi
lán virka,“ segir Hákon Róbert.
Hann segir að aukið framboð ný-
bygginga auki veltu á markaðnum
og geti því orðið til þess að hækka
verðið.
Að sögn Hákonar hafa allar
tegundir eigna verið að hækka í
verði en áberandi sé að verðhækk-
anir í úthverfum séu meiri en í
miðbænum og vesturbænum. „Þar
er minna svigrúm til hækkana,“
segir hann.
thkjart@frettabladid.is
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 40,40 -0,98% ... Atorka 5,76 -
0,35% ... Bakkavör 24,90 +1,22% ... Burðarás 12,50 -1,57% ... Flugleiðir
11,55 +0,43% ... Íslandsbanki 11,20 -0,88% ... KB banki 484,00 -0,21%
... Kögun 47,00 -0,21% ... Landsbankinn 12,45 -1,58% ... Marel 52,40 -
0,38% ... Medcare 5,90 – ... Og fjarskipti 3,43 -1,72% ... Samherji 11,35
– ... Straumur 10,00 -0,50% ... Össur 81,50 +1,24%
Spáir áframhaldandi
hækkun fasteignaverðs
Össur 1,24%
Bakkavör 1,22%
Flugleiðir 0,43%
Síminn -2,35%
Og fjarskipti -1,72%
Landsbankinn -1,58%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Fyrir þorrablótið og árshátíðina
Dúkar, servíettur og kerti í miklu úrvali
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Nýr o
pnun
artím
i
í ver
slun
RV:
R
V
20
27
Lotus TexStyle dúkarúlla
1,2 x 50 m
5.696.-
Bosíus kerti
24,5 cm, 30 stk.
598.-
Lotus NexxStyle servíettur
39 x 39 cm, 80 stk.
276.-
Verð frá
Dregur úr atvinnuleysi
Atvinnuleysi minnkar
en óveruleg breyting er
á atvinnuþátttöku.
Atvinnuleysi minnkaði um 0,4
prósent á fjórða ársfjórðungi
samanborið við sama ársfjórðung
árið áður samkvæmt vinnumark-
aðskönnun Hagstofu Íslands.
Samkvæmt könnuninni voru
2,5 prósent vinnuafls án atvinnu
eða í atvinnuleit á fjórðungnum.
Könnun Hagstofunnar stefnir í
sömu átt og tölur Vinnumálastofn-
unar að atvinnuleysi fari minnk-
andi. Hagstofan og Vinnumála-
stofnun beita ólíkum aðferðum
við mat. Hagstofan kannar stöð-
una ársfjórðungslega, en Vinnu-
málastofnun safnar mánaðarlega
upplýsingum frá vinnumiðlunum
vítt og breitt um landið.
Atvinnuþátttaka breyttist hins
vegar lítið sem ekkert. 156.300
manns voru starfandi á fjórða árs-
fjórðungi og fjölgaði um 3.100 frá
sama tíma í fyrra. Á sama tíma
hefur fjölgað um 2.600 manns á
vinnumarkaði. Atvinnuþátttaka
eykst venjulega á þenslutímum en
dregst saman þegar verr árar á
vinnumarkaði. Núverandi upp-
sveifla hefur því enn sem komið
er ekki haft veruleg áhrif á at-
vinnuþátttöku. - hh
ÁFRAM VERÐHÆKKUN FASTEIGNA
Þótt fasteignir hafi hækkað hratt í fyrra telja greiningardeildir enga kyrrstöðu í nánd. Íslandsbanki telur að verð muni jafnvel hækka
hraðar í ár en í fyrra.
INGÓLFUR
BENDER
Greiningardeild Ís-
landsbanka.
BJÖRN RÚNAR
GUÐMUNDSSON
Greiningardeild
Landsbankans.
SNORRI
JAKOBSSON
Greiningardeild KB
banka.
HÁKON RÓBERT
JÓNSSON
Sölumaður fast-
eigna.
ÓBREYTT ÞÁTTTAKA
Atvinnuleysið minnkar en atvinnuþátttaka breytist lítið sem bendir til þess að uppsveifla
efnahagslífsins sé ekki farin að auka þenslu á vinnumarkaði að neinu ráði.