Fréttablaðið - 20.01.2005, Qupperneq 60
28 20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Ég get stundum verið
óskaplegur klaufi.
Það er einungis í
stuttan tíma sem ég
á allt settið af glös-
um, eða diskum, þar
sem mér tekst á
einhvern ótrúlegan
hátt að brjóta þetta í
uppvaskinu (góð rök
fyrir að eignast uppþvottavél, fyrir
utan glerbrotið sem hefur dvalið í
einum fingurgómi mínum í fjölmörg
ár vegna slíks klaufaskapar). Ég
reyni að bjóða gestum mínum upp á
kaffi í könnunum sem enn hafa höld-
ur. Sjálf gríp ég eina af þessum fjöl-
mörgu sem höldurnar hafa brotnað
af (aftur, mjög algengt að slysin ger-
ist í uppvaskinu). Ég geng á
ljósastaura, rek tærnar í þröskulda,
dett niður tröppur og allt annað það
sem gefur til kynna að annað hvort
þarf ég að vera duglegri við að
ganga með gleraugun mín, eða vera
meira með hugann við það sem ég er
að gera þá stundina.
Fyrir ekki svo löngu síðan tókst
mér að ganga á hurð. Fyrir vikið
fékk ég svolitla gulgræna slikju und-
ir vinstra auga, nokkuð sem stund-
um kallast glóðarauga en mér fannst
ofboðslega lítið áberandi. Dagana á
eftir var þó ekki þverfótað fyrir vin-
um og samstarfsfólki sem kom til
mín áhyggjufullt og vildi vita hvað
hefði eiginlega komið fyrir mig. Eft-
ir að hafa útskýrt nokkrum sinnum
að ég hefði gengið
á hurð, og fengið viðbrögðin;
„Gekkstu á hurð? Er það hægt? Er
þetta ekki gamla góða afsökunin?“
ákvað ég eiginlega að það væri betra
að koma með einhverjar ótrúlegar
lýsingar á hörkuslagsmálum. Reynd-
ar held ég að enginn sem ég þekki
trúi upp á mig miklum bardagahæfi-
leikum – eða löngun. Því síður að ég
hafi verið barin. En afsökunin „að
ganga á hurð“ er orðin fastgróin við
hugmyndir um heimilisofbeldi. Því
var tækifærið notað til að gantast
um slíkt og ég jafnvel vænd um að
vera búin að koma mér upp leyndar-
dómsfullum unnusta. Allir virtust
sammála um að það að hafa í alvöru
gengið á hurð, þó bílhurð hafi verið,
væri eitt það hallærislegasta sem
hægt væri að gera. Jafnvel hallæris-
legra en að vera barin. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR GENGUR Á HURÐ
Að hafa hugann við annað
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Melhagi - glæsileg
Vorum að fá í sölu mjög fallega og mikið standsetta 4ra herb. rishæð í einu af
þessum virðulegu húsum í vesturbænum. Franskir gluggar eru í íbúðinni. Svalir
til suðurs. Eftirsótt staðsetning. Verð 20,5 millj. 4689.
Vorum að fá í sölu mjög fallega 2ja herb. íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi við
Hagamel. Íbúðin skiptist í rúmgóða stofu, eldhús, herbergi, baðherbergi og
hol með skápum. Úr stofu er gengið út í garð. Björt og falleg íbúð. Stór afgirtur
garður. Verð 12,6 millj. 4688.
Klapparstígur - með bílageymslu
Vorum að fá í einkasölu mjög fallega 2ja herb. íbúð á 1. hæð í lyftuhúsi. Íbúð-
in snýr að mestu leyti til suðurs og er mjög björt. Búið er að leggja ljósleiðara
í húsið. Gervihnattadiskur. Íbúðinni fylgir merkt stæði í bílageymslu.
Verð 15,3 millj. 4644.
Digranesvegur - mjög fallegt
Vorum að fá í sölu mjög fallegt 226 fm parhús á tveimur hæðum auk kjallara.
Húsið er byggt árið 1955 en hefur verið mikið standsett. Húsið skiptist þannig:
1. hæð: forstofa, snyrting, gangur, tvær stofur og eldhús. 2. hæð: þrjú herbergi
og baðherbergi. Kjallari: forstofa, baðherbergi, tvö rúmgóð herbergi og
þvottahús (gæti nýst sem eldhús). Rúmgóður bílskúr á tveimur hæðum. Á neðri
hæð bílskúrs er herbergi og geymsla. Glæsilegt útsýni. Fallegur garður til suðurs.
Göngufæri í þjónustu. Sjá myndir á heimasíðu Eignamiðlunar.
Verð 35,7 millj. 4699.
Hagamelur
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Úff!
Áttu
ekkert
ódýrara?
Hérna séðu svona
pen gleraugu!
„Mycko sushi“ á
aðeins 40 þúsund.
Hæ, Stanislaw. Pabbi
sagði að ég mætti kíkja á
rúgbrauðið um helgina.
Sama
hér.
Aftur í skólann!
Fríið búið!
Gamanið búið!
Ahh – sjáið við hvern ég er
að tala – þú berð enga
ábyrgð – engin dagleg
rútína – þú gerir EKKI
NEITT!
Ég
hvíli
mig
oft!
Einhver
verður að
gera það!
Föðmumst? Ég hélt að við
værum bara að styðja hvort
annað svo við dyttum ekki!
Líka
það!
Ég elska það þegar við
komum börnunum í
háttinn og stöndum
síðan hér og föðmumst!Mmmm,
já...
Þetta er það
besta við kvöldin.
Hæ Hæ
Sama
hér.
Sama
hér.
Þrátt fyrir það er
ég til í þetta.
Hann segir að vísu að það
sé mikilvæg reynsla að
gera upp gamlan bíl.
Þannig læri ég að axla
ábyrgð, setja mér mark-
mið og koma hlutum í
framkvæmd.
Jú, „Pú pill“ gler-
augu á 30 þús-
und. Ótrúlega
létt! Góð gler-
augu!
30 þúsund?
Eitthvað
meira.... ég
meina eitthvað
sem kostar
minna?
„Gráu sendi-
herragleraug-
un“ á aðeins 20
þúsund! Allt í
lagi með þau!
20 þúsund...
einhver önn-
ur?
Bensínstöðvar-
gleraugu á
þúsund kall!
Þú færð Essó-
derhúfu í
kaupbæti!
Slegið!
Fara þau
mér ekki
vel?
Aðal-vinningur erMEDION XXL tölva með 17”flatskjá!
99 kr/skeytið