Fréttablaðið - 28.02.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 28.02.2005, Blaðsíða 2
2 28. febrúar 2005 MÁNUDAGUR Fastráðnir í Þjóðleikhúsinu: Tinna tilkynnir uppsagnir í dag ÞJÓÐLEIKHÚS „Mér finnst aðferðin við þetta rýra gildi manns sem leikara,“ segir Brynhildur Guð- jónsdóttir, sem er einn þeirra tíu fastráðnu leikara við Þjóðleikhús- ið sem hafa stystan starfsaldur og verður sagt upp fyrir vikið. Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóð- leikhússtjóri hefur boðað til fund- ar með öllum fastráðnum leikur- um leikhússins og er gert ráð fyrir að á fundinum skýrist hverjum verði sagt upp, hverjir verði ráðn- ir aftur og á hvaða forsendum. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins liggja fyrir nöfn átta leikara sem verður sagt upp. Þeir eru Brynhildur og eiginmaður hennar Atli Rafn Sigurðarson, Þórunn Lárusdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Kjartan Guðjónsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Arn- björg Hlíf Valsdóttir og Sólveig Arnarsdóttir. „Við sem erum á „drekalistan- um“, eins og við köllum þetta okk- ar á milli, höfum sammælst um að bíða með að gefa yfirlýsingar þar til eftir fundinn með Þjóðleikhús- stjóra,“ segir Sólveig. Við viljum fá betri upplýsingar um til dæmis grundvöllinn að þessum uppsögn- um, hverjir verða ráðnir aftur og á hvaða forsendum.“ - bs Danir gagnrýna nýja eigendur verslunarkeðjunnar Magasin: Versluninni í Álaborg lokað VIÐSKIPTI Ákveðið hefur verið að loka Magasin-vöruhúsinu í Álaborg en fyrirtækið er í meirihlutaeigu ís- lenskra fjárfesta og er Baugur þeirra stærstur. Í tilkynningu sem stjórn Magasin sendi frá sér á föstudagskvöldið segir að afkoma útibúsins í Álaborg hafi lengi verið óviðunandi og engar líkur á að úr henni rætist. Húsaleigusamningi hefur verið sagt upp og verður versluninni lokað 31. júlí næstkom- andi. 65 manns missa vinnuna. Birgir Þór Bieltvedt, einn ís- lensku fjárfestanna, segir að miklar endurbætur fari senn í hönd á hús- næði verslunarinnar í Álaborg og talsvert rask hafi því verið fyrirsjá- anlegt á starfseminni. Þegar ljóst varð að ekki næðist samkomulag um nýjan leigusamning var ákveðið að segja honum upp. Þótt uppsagnirnar hafi verið gagnrýndar í dönskum fjölmiðlum óttast Birgir ekki að orðspor fyrir- tækisins bíði hnekki. „Við erum ein- faldlega að hagræða. Þetta er eining sem við teljum að muni ekki ganga vel miðað við núverandi forsendur. Hins vegar getur vel verið að við skoðum Álaborg seinna. Við munum kappkosta að útvega þessu fólki sem var sagt upp störf í öðrum búð- um.“ - shg Allt brann sem brunnið gat Fjögurra manna fjölskylda er heimilislaus eftir eldsvoða í Breiðholti á laugardag. Fjölskyldan hafði flutt inn fyrr um daginn. Slökkviliðið segir aðstæður hafa verið mjög erfiðar. Eldsupptökin liggja ekki fyrir en rannsókn beinist að rafmagni. ELDSVOÐI „Líðan okkar er eftir að- stæðum, mér og konunni hefur ekki komið dúr á auga eftir þetta,“ segir Hjálmar Diego Haðarson, heimilisfaðir að Rjúpufelli 22, sem horfði á heimili sitt brenna í fyrrakvöld. „Þetta átti að vera fyrsta nóttin okkar á nýja heimil- inu þannig að þetta var eins ömur- legt og hugsast getur,“ segir Hjálmar, sem ætlaði að flytja inn ásamt konu sinni og tveimur börn- um. Fjölskyldan hafði nýlega keypt raðhúsið og eytt drjúgum tíma í að gera það upp og var nýbúin að mála það allt að innan. Á laugar- dagskvöld var fjölskyldan úti að borða þegar hringt var í Hjálmar og honum sagt að kviknað væri í húsinu. Hann kom að húsinu í ljós- um logum. Það eina af munum fjölskyldunnar sem bjargaðist var fjórir kassar sem átti eftir að fara með í húsið. Hjálmar segir of snemmt að segja hvað taki við. „Við tökum bara einn dag fyrir í einu og vitum ekki hvað tekur við.“ Fjölskyldan býr hjá aðstand- endum um sinn. „Það var verulega heitt þarna og við áttum í erfiðleikum með að komast inn sökum hita. Það brenndist einn maður frá okkur lítillega þegar hann reyndi að komast inn,“ segir Höskuldur Ein- arsson, stöðvarstjóri slökkviliðs- ins. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður gekk vel að slökkva eldinn. „En íbúðin var mikið brennd og flestir innanstokksmunir brenndir,“ seg- ir Höskuldur. Reykur barst í aðliggjandi íbúð og þurfti að reyk- ræsta hana en Höskuldur segir að ekki hafi verið hætta á að eldur- inn breiddist út í aðrar íbúðir. Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir hver eldsupptökin voru en eldhúsið og stofan eru mjög mikið brunnin og engu líkara en spreng- ing hafi orðið þar inni. Nýbúið var að leggja rafmagn í húsið og horfa rannsakendur helst til þess að eld- urinn hafi kviknað út frá raf- magni þó ekki sé hægt að slá neinu föstu að svo stöddu. hrs@frettabladid.is Flensufaraldur: Fleiri dauðs- föll en oft áður HEILBRIGÐISMÁL Grunur leikur á að inflúensan sem gengið hefur yfir landið hafi valdið fleiri dauðsföllum meðal eldri borgara en almennt gerist þegar inflúensa geisar. „Það verða alltaf umframdauðs- föll þegar flensa geisar en við höfum grunsemdir um að þau hafi verið fleiri núna en oft áður,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Haraldur segir ekki liggja fyrir hversu margir kunni að hafa látist af völdum flensunnar en verið sé að kanna málið. „Við mælum með bólu- setningum og þá sérstaklega hjá starfsfólki á heilbrigðisstofnunum. “ - bs Ísrael: Bakslag í friðarferlið JERÚSALEM, AP Samskipti Ísraela og Palestínumanna hafa snöggkólnað eftir sjálfsmorðssprengjuárás í Tel Aviv á föstu- daginn sem kostaði fjögur mannslíf. Ariel Sharon, forsæt- isráðherra Ísra- els, hótaði í gær að stöðva friðar- umleitanir ef Palestínumenn gripu ekki þegar í stað til ráðstaf- ana til að koma lögum yfir hryðjuverkamenn. Í kjölfar árásarinnar ákvað rík- isstjórnin að fresta því að láta Palestínumenn um löggæslu í fimm bæjum í landinu og í gær tjáði Tzipi Livni, dómsmálaráð- herra Ísraels, palestínskum ráða- mönnum að 400 Palestínumenn sem sitja í ísraelskum fangelsum yrðu ekki látnir lausir að sinni. ■ Raðmorðingi í Kansas: Gripinn þrjátíu árum seinna KANSAS, AP Lögreglan í Wichita í Kansas-ríki í Bandaríkjunum hand- tók um helgina Dennis nokkurn Rader en hann er grunaður um að hafa myrt í það minnsta tíu manns á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Skelfing ríkti í Wichita á ár- unum 1974-1986 þegar óþekktur raðmorðingi kyrkti tíu manns. Hann sendi fjölmiðlum bréf undirrituð BTK sem stendur fyrir binda- pynta-drepa (bind-torture-kill) en málið náði aldrei að upplýsast. Á þessu ári tók hann aftur að senda slík bréf og nú með munum úr eig- um fórnarlambanna. Talið er að lög- reglan hafi haft upp á Rader með aðstoð erfðatækni. ■ 29.956,-* Subaru Legacy Wagon sjálfskiptur 2.590.000 2.790.000Ver› á›ur Ver› nú 200.000 SPURNING DAGSINS Þorvaldur Bjarni, er Idol ekki við hæfi barna? „Það er sérstaklega við hæfi barna.“ Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson er dómari í Idol- keppninni en á föstudag vísaði lögregla ungum Idol-aðdáendum af Idol-kvöldi á vínveitinga- staðnum Bragganum á Hólmavík. NÁMSMÖGULEIKAR KANNAÐIR Skeggrætt af miklum móð í hugvísinda- deild Háskóla Íslands. Háskóli Íslands: Vinsæl náms- kynning NÁM Mikið var um dýrðir í Háskóla Íslands á sunnudag þegar ellefu deildir Háskólans kynntu náms- framboð sitt og rannsóknarverkefni á Háskólasvæðinu, bæði í grunn- og framhaldsnámi. Fjölmargar nýj- ungar eru í boði á komandi námsári og möguleikar til samsetningar náms nánast óþrjótandi. Námskynning á Háskólasvæðinu hefur undanfarin ár verið gríðarvel sótt. Það er í samræmi við stöðuga fjölgun nemenda í háskólanám og því margir námsfúsir sem nutu þess nú að fá kost á persónulegum upplýsingum frá kennurum og nem- endum skólans. - þlg Íran og Rússland: Samið um kjarnorkumál ÍRAN, AP Rússar hafa komist að sam- komulagi við Írana í kjarnorkumál- um. Rússar munu sjá Írönum fyrir kjarnorkueldsneyti og aðstoða þá við að koma kjarnorkuveri í Bushehr í gang á næsta ári. Samkomulagið er í trássi við vilja Bandaríkjamanna, sem óttast að Íranar noti kjarnorkueldsneytið til að koma sér upp kjarnorku- sprengjum, og ræddi George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, málið við Vladimír Pútín Rússlandsfor- seta á fundi þeirra í vikunni. Rússar benda aftur á móti á að fullnýtt eldsneyti verði flutt aftur til Rúss- lands þannig að útilokað eigi að vera að Íranar geti notað það í hern- aðarlegum tilgangi. ■ BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR OG SÓLVEIG ARNARSDÓTTIR Báðar eru þær meðal þeirra tíu leikara sem stystan starfsaldur hafa í Þjóðleikhús- inu en þær hafa báðar verið áberandi í burðarhlutverkum í leikhúsinu. SYRGJANDI ÆTTINGJAR Útfarir þeirra sem létust í sprengjutil- ræðinu í Tel Aviv fóru fram um helgina. HORFIR Á HEIMILIÐ BRENNA Hjálmar ræðir við lögreglumann á vettvangi á meðan á eldsvoðanum stendur. EFTIR BRUNANN Húsið er mikið skemmt og eldurinn eirði fáu innanhúss. BIRGIR ÞÓR BIELTVEDT Slæm afkoma og fyrirsjáanleg röskun á starfseminni vegna framkvæmda eru orsakir lokunar Magasin-verslunarinnar í Álaborg. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R 02-03 27.2.2005 21:16 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.