Fréttablaðið - 28.02.2005, Qupperneq 8
1Hver verður deildarforseti nýrrarfélagsvísinda- og hagfræðideildar á
Bifröst?
2Hverjir urðu bikarmeistarar kvenna íhandbolta?
3Hvað hét stofnandi Amnesty Inter-national sem nú er nýlátinn?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 28. febrúar 2005 MÁNUDAGUR
Samskip fær nýtt skip:
Nýju Helgafelli gefið nafn
SAMGÖNGUR „Þetta var yndisleg til-
finning og ofsalega gaman,“ segir
Arney Guðmundsdóttir, starfs-
maður í mötuneyti Samskipa, sem
hlotnaðist sá heiður að nefna nýtt
skip Samskipa í Hamborg á föstu-
dag.
Skipið hlaut nafnið Helgafell
og leysir gamla Helgafellið af
hólmi á siglingaleiðinni milli Evr-
ópu og Íslands. Skipið var afhent
við hátíðlega athöfn á föstudag.
Nöfn allra kvenna sem starfa hjá
Samskipum voru sett í pott og síð-
an var dregið um hver fengi að
nefna skipið og hreppti Arney
hnossið. Helgafellið er fyrsta
skipið sem hún gefur nafn og lík-
aði henni það vel.
Helgafellið nýja er ellefu þús-
und tonna skip og getur flutt 200
gámaeiningum meira en forveri
sinn. Systurskipið Arnarfell var
afhent í fyrra en kostnaður við
hvort skip nam 1,7 milljörðum
króna. Helgafellið leggur úr höfn
í Rotterdam hinn 1. mars og er
væntanlegt til Íslands 9. mars.
Skipverjar eru ellefu talsins en
skipið er skráð í Færeyjum, af
rekstarlegum ástæðum að sögn
forsvarsmanna Samskipa.
-bs
Ólæti í miðborginni:
Rúðubrot
á Alþingi
LÖGREGLUFRÉTTIR Þrír menn voru
handteknir um klukkan fjögur að-
faranótt sunnudags eftir að hafa
skeytt skapi sínu á byggingum Al-
þingis og Stjórnarráðsins og brot-
ið þar rúður. Mennirnir voru vel
við skál og gátu engar skýringar
gefið á athæfi sínu en voru færðir
til yfirheyrslu lögreglu í gær.
Mikill erill var í miðborginni
aðfararnótt sunnudags, glaumur
og gleði, enda veðrið gott. Lög-
reglan hafði í nógu að snúast um
alla borg, þótt lítið hafi verið um
pústra og ólæti.
-þlg
Verðstríð í
uppsiglingu?
Bónus og Krónan lækkuðu báðar verð um helgina. Teikn
eru á lofti um verðstríð milli lágvöruverðsverslana.
MATVÖRUVERÐSTRÍÐ Í kjölfarið af
fréttum af verðlækkun á helstu
neysluvörum í verslunum Krón-
unnar hyggja margir að stutt sé í
verðstríð á matvörumarkaði
milli Bónus og Krónunnar. Sig-
urður Arnar Sigurðsson, for-
stjóri Kaupáss, var inntur eftir
möguleikanum á að slík átök
brytust út. „Það er ljóst að verð-
ið var að lækka um helgina og
það sem við ætlum að gera er að
standa okkur.“ Þegar hann var
spurður að því hversu langt væri
hægt að ganga til að vera með
lægsta verðið sagði Sigurður:
„Það er auðvitað ekki hægt að
lækka verð endalaust og ein-
hvers staðar liggja mörkin en til
að vera raunhæfur valkostur
verður Krónan að bjóða upp á
samkeppnishæft verð.“ Sigurður
sagði að ekki væru uppi áform
um að lækka þjónustustig eða
fækka starfsfólki til að ná mark-
miðum um lægra vöruverð held-
ur væri verið að láta viðskipta-
vini njóta hagræðingar sem
hefði náðst við eigendaskipti hjá
fyrirtækinu.
„Mér finnst það vera hól fyrir
okkur að lágvöruverðskeðja eins
og Krónan þurfi að lækka sig um
allt að 20 prósent til að ná okkur
í verði,“ sagði Guðmundur Mart-
einsson, framkvæmdastjóri Bón-
us. Hann sagði enn fremur að
Bónus myndi gera allt til að
tryggja lægsta vöruverð á mark-
aðnum. „Við erum með skuld-
bindingar við okkar viðskipta-
vini og munum standa við þær
hvað sem það kostar.“ Þegar
hann var spurður að því hvernig
Bónus hygðist ná þeim markmið-
um að standa við þessar skuld-
bindingar sagði Guðmundur:
„Menn þurfa bara að reyra á sig
takkaskóna og herða sultarólina,
það er ekkert flóknara en það.“
Fréttablaðið gerði skyndi-
verðkönnun í gær, sunnudag, þar
sem farið var í verslanir Bónus
og Krónunnar á sama tíma og
keyptar nokkrar algengar
neysluvörur. Mikið var að gera í
báðum búðunum og ljóst að ís-
lenskir neytendur kunna vel að
meta verðlækkanir á matvöru-
markaði. - bb
VIÐ HELGAFELL
Arney með Steingrími Sigurgeirssyni,
skipstjóra Helgafellsins, fyrir framan
skipið í þurrkví í Hamborg.
ÝMSAR ALGENGAR NEYSLUVÖRUR
Um helgina hafa Krónan og Bónus keppst við að lækka verð.
Krónan Bónus
Cheerios 567 g 239 219
Coke 2 l 175 169
Brauðostur 1 kg 997 927
KEA skyr 500 g 183 181
Bananar 129 119
Ali skinka 1618 1618
Merrild kaffi 269 269
Léttmjólk 1 l 66 66
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
08-09 27.2.2005 19:22 Page 2