Fréttablaðið - 28.02.2005, Qupperneq 57
Eyri við Skutulsfjörð hefur verið
kirkjustaður um aldir. Falleg tim-
burkirkja var vígð þar árið1863
en stórskemmdist í eldi sumarið
1987. Á aðalsafnaðarfundi haust-
ið 1991 var ákveðið að byggja
nýja kirkju á gamla kirkjustaðn-
um. Haldin var samkeppni um
hönnun nýju kirkjunnar og fyrir
valinu varð tillaga arkitektsins
Hróbjarts Hróbjartssonar og fé-
laga hans á Vinnustofu arkitekta.
Vinna við byggingu nýrrar Ísafjarðarkirkju hófst
haustið 1992 og var nýja kirkjan vígð á upp-
stigningardag 1995.
Á gólfi kirkjunnar, predikunarstól og borðplötu
altarisins er íslenskur grásteinn. Árið 1995 var
sett upp nýtt danskt 22 radda pípuorgel frá P.
Bruhn. Einnig er Bösendorfer flygill í kirkjunni.
Kirkjuskipið er að öllu leyti fullgert nema að
eftir er að koma upp altaristöflu. Sóknarprestur
er sr. Magnús Erlingsson.
Hagnaður ÍLS
1,1 milljarður
Hagnaður Íbúðalánasjóðs árið
2004 nam rúmum 1,1 milljarði
króna. Þetta kemur fram í árs-
reikningi sjóðsins fyrir árið 2004,
en hann var samþykktur á fundi
stjórnar 24. febrúar 2005. Þann 1.
júlí 2004 voru gerðar miklar kerf-
isbreytingar á starfsemi sjóðsins
þegar hætt var með skuldabréfa-
skipti húsbréfa og útlánum sjóðs-
ins breytt í peningalán. Frá þeim
tíma fjármagnar Íbúðalánasjóður
útlán sín með sölu íbúðabréfa sem
eru verðtryggð jafngreiðslubréf í
íslenskum krónum, skráð í Kaup-
höll Íslands og hjá Euroclear. Í
tengslum við kerfisbreytingarnar
fór Íbúðalánasjóður í gegnum láns-
hæfismat tveggja matsfyrirtækja,
Standard & Poor’s og Moody’s.
Sjóðurinn var metinn með sömu
lánshæfiseinkunn og íslenska rík-
ið. Eftir kerfisbreytinguna taka
vextir útlána Íbúðalánasjóðs mið
af ávöxtunarkröfu við sölu íbúða-
bréfa hverju sinni og hafa útlána-
vextir almennra lána sjóðsins því
lækkað úr 5,1% í 4,15%. Vegna eð-
lisbreytinga á útlánum var aukin
áhersla lögð á áhættu- og fjárstýr-
ingu Íbúðalánasjóðs. Stjórn sjóðs-
ins samþykkti ítarlega áhættustýr-
ingarstefnu og fjárfest var í öflug-
um hugbúnaði vegna áhættustýr-
ingar. Uppgreiðslur á fyrri hluta
ársins voru um 9 milljarðar króna,
en eftir 1. júlí námu þær 74 millj-
örðum króna. Vegna þessa nýtti
sjóðurinn sér heimildir til aukaút-
dráttar húsbréfa og uppgreiðslu
óhagstæðra lána. Í samræmi við
áhættu- og fjárstýringarstefnu
sjóðsins gerði hann samninga við
innlendar lánastofnanir um ávöxt-
un til lengri tíma, með það að
markmiði að viðhalda skilgreindu
eiginfjárhlutfalli, jákvæðum
vaxtamun, jafnvægi í meðallíftíma
eigna og skulda og jöfnu sjóðs-
streymi. Þá var hluti uppgreiðslu-
fjárins varðveittur með skamm-
tímasamningum við fjármálastofn-
anir . Á árinu nam hagnaður af
rekstri sjóðsins 1.116 millj. kr.
samkvæmt rekstrarreikningi.
Hreinar vaxtatekjur á árinu námu
1.856 millj. kr. samanborið við
2.519 millj. kr. árið áður. Aðrar
rekstrartekjur voru jákvæðar um
915 millj. kr. á árinu samanborið
við 880 millj. kr. tekjur árið áður.
Kostnaður við rekstur sjóðsins
nam 900 millj. kr. og hækkar um
14,7 % milli ára. Kostnaðaraukann
milli ára má að verulegu leyti rek-
ja til kostnaðar vegna kerfisbreyt-
inga sem urðu á árinu.
Eigið fé sjóðsins í árslok nam
12.741 millj. kr. eða 2,6% af heildar-
eignum sjóðsins. Eiginfjárhlutfall
sjóðsins sem reiknað er samkvæmt
ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004
um Íbúðalánasjóð er 5,6%. Hlut-
fallið er reiknað með sama hætti og
eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtæ-
kja.
Höfundur er sviðsstjóri þróunar- og
almannatengslasviðs Íbúðalánasjóðs.
HALLUR MAGNÚSSON
HÚSIN Í BÆNUM
-
t=
-
SELDAR EIGNIR Á AKUREYRI*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
21.1-27.1 TÍMABIL
0
5
10
15
20
11
28.1-3.2
17
4.2-10.2
22
11.2-17.2
20
7.1.-13.1.
12 19
14.1.-20.1
30
25
FJÖLDI
Ísafjarðarkirkja
40 - fast bak 26.2.2005 18:14 Page 2