Fréttablaðið - 28.02.2005, Page 11

Fréttablaðið - 28.02.2005, Page 11
MÁNUDAGUR 28. febrúar 2005 11 800 7000 - siminn.is Stundum er betra að senda SMS! S úr heimasíma Efni Listahátíðar í Reykjavík kynnt í gær: Myndlistin í forgrunni LISTIR Listahátíð verður haldin í Reykjavík dagana 14. maí til 5. júní. Sérstök áhersla verður lögð á samtímamyndlist á hátíð- inni og ber þar helst að nefna viðamikla sýningu á verkum svissnesk-þýska listamannsins Dieters Roth í þremur listasöfn- um í borginni. Hann átti heimili sitt á Íslandi frá sjötta áratug síðustu aldar og gerði það að heimalandi sínu. Jessica Morg- an, sýningarstjóri frá Tate-safn- inu í London, hefur af þessu til- efni tekið að sér að stjórna öðr- um hluta verkefnisins; Tími, rými, tilvera. Þar eru sýnd ný verk um þrjátíu myndlistar- manna, innlendra og erlendra, sem eru sérstaklega pöntuð fyrir sýninguna. Verkin þróa áfram viðfangsefni og áhrif sem finna má í verkum Roths. Sú sýning verður sett upp í Reykja- vík og nágrenni og öðrum lands- fjórðungum. KB banki er aðal- styrktaraðili myndlistarhluta hátíðarinnar en kostnaður við hana er áætlaður um 120 millj- ónir króna. - js Einhleypar japanskar konur: Sjö af hverj- um tíu sáttar HEILSA Sjö af hverjum tíu ein- hleypum konum í Japan segjast ekkert hafa á móti því að halda áfram að vera einar. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun dag- blaðsins Yomiuri. Í könnuninni kemur einnig fram að fjöldi kvenna sem trúir því að þær geti verið hamingju- samar þrátt fyrir einveruna hefur aukist um 10% frá árinu 2003. Sérfræðingar telja að niðurstöð- urnar beri þess merki að fólk sem sé einhleypt sé ekki lengur litið sama hornauga og áður fyrr. ■ Umhverfisstofnun um litarefni: Ekki ástæða til aðgerða MATVÆLI „Næsta skref er að fá frekari upplýsingar um hvaða vörur er um að ræða, en að öðru leyti sjáum við ekki ástæðu til að stökkva af stað,“ segir Baldvin Valgarðsson, matvælafræðingur hjá Umhverfisstofnun, um við- varanir bresku matvælastofnun- arinnar um að krabbameinsvald- andi litarefni, Sudan-1, sé í yfir 350 matvælategundum þar í landi. Efnið greindist í sósu. „Sósan er ekki til hér á landi og við erum ekki komin á það stig að kanna hvort eitthvað af þeim matvælum sem gefin hafa verið upp séu til hér á landi. En fáum við tilkynn- ingar um það bregðumst við vita- skuld við,“ segir Baldvin. - bs VINNUMARKAÐUR Marteinn Másson, lögmaður GT verktaka, segir fyrirtækið kaupa þjónustu af er- lendu fyrirtæki og um slíka þjón- ustusölu gildi lög frá árinu 2001 þannig að hið erlenda fyrirtæki geti sent starfsmenn sína hingað til að sinna þeirri þjónustu. Þeir geti verið hér í allt að níutíu daga í senn við framkvæmd hennar. Vinnumálastofnun og lögregl- an á Egilsstöðum eru að skoða rútubílaakstur erlendra ríkis- borgara á Kárahnjúkum en GT verktakar kaupa slíkan akstur af lettneska fyrirtækinu Vislandia. „Í lögum eru ákveðnar reglur sem eiga að tryggja þessum starfsmönnum lágmarksréttindi. Þeir eiga að njóta þeirra lág- markskjara sem eru hér á landi þannig að ekki er verið að flytja inn hálfgerða þræla, eins og reynt er að ýja að. Þetta hefur verið málað dálítið dökkum litum,“ segir Marteinn. Samkvæmt samningnum við Vislandia kaupa GT verktakar bæði akstursþjónustu og verklega vinnu en Marteinn kveðst ekki vita í hversu miklum mæli GT verktakar muni nýta þann þátt í þjónustusamningnum. - ghs Lögmaður GT verktaka: Kaupa vinnuafl hjá þjónustusölu ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR Kynnti efni listahátíðar í Reykjavík. MARTEINN MÁSSON LÖGMAÐUR Segir að GT verktakar kaupi þjónustu af erlendu fyrirtæki við ráðningu á starfs- mönnum að utan til að flytja fólk á Kárahnjúkum. Selfoss: Harður árekstur LÖGREGLUMÁL Ökumaður var handtekinn af lögreglunni á Sel- fossi aðfaranótt sunnudags með fíkniefni í fórum sínum. Fíkni- efnin voru gerð upptæk en lögreglan áætlar að maðurinn hafi ætlað þau til eigin nota. Maðurinn var færður í fanga- geymslur og yfirheyrður á sunnudag. Þá varð harður árekstur á Austurvegi þegar tveir bílar skullu harkalega saman um þrjúleytið á sunnudag. Engin slys urðu á fólki en bílarnir voru báðir óökuhæfir eftir áreksturinn. - þlg 10-11 27.2.2005 18:12 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.