Fréttablaðið - 28.02.2005, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 28.02.2005, Blaðsíða 19
3MÁNUDAGUR 28. febrúar 2005 ,,Við ætlum fjórar vinkonur saman aftur og aftur! Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“ Sumarnámskeið fyrir skapandi börn, eldri og yngri, keramik, teikning, málun - allt innifalið - litlir hópar. Aðeins 8500 kr. vikan! Skráning í Keramik fyrir alla, sími 552 2882, Laugavegi 48b. Sjá lýsingu: www.keramik.is Hvað segja börnin um námskeið í Keramik fyrir alla? Barnaafmæli Bekkjarferðir Keramik fyrir alla, Frábær skemmtun fyrir allan hópi n. Tilboðspakkar Keramik og pizza frá kr. 990 á mann. Öðruvísi rúmgaflar RÚMGAFLAR ÞURFA EKKI AÐ VERA ÓÞÆGILEGIR OG ÓFRUMLEGIR. Rúmgafl setur svo sannarlega sinn svip á rúmið og allt herbergið sem það er í. Rúmgaflar virðast oft allir vera eins þegar leitað er að rúmum en það er algjör óþarfi að gefa upp vonina. Leyfðu ímyndaraflinu að leika lausum hala og búðu til þinn eigin rúmgafl. Ekki er vitlaust að endurnýta hluti sem hefðu annars lent í ruslinu. • Gamalt hvítt grindverk. Ef þú ert að skipta um grindverk, ekki henda því gamla. Taktu þér sandpappír í hönd, pússaðu það vel upp og lakkaðu það í þeim lit sem þú vilt. Mældu breidd- ina á rúminu þínu og láttu grindverk- ið smellpassa við breiddina. Þá er kominn hinn fínasti frumlegi rúmgafl. • Gömlum hlutum bjargað. Ef þú vilt losa þig við arinhillu eða skreytingu fyrir ofan hurð skaltu ekki henda þeim hlutum. Þeir geta nýst vel fyrir ofan rúmið sem eiginlegur rúmgafl. Passaðu bara að hengja stykkið nógu hátt upp svo þú rekir ekki höfuðið í það. Festu það síðan vandlega og sofðu vel. • Koddahimnaríki. Taktu gömlu gard- ínustöngina úr geymslunni og hengdu hana fyrir ofan rúmið. Festu tvo kodda á hana og láttu þá hanga niður hlið við hlið. Þeir mynda skemmtilegan rúmgafl sem er líka rosalega þægilegur. Gott er að festa höldur á púðana þannig að auðvelt sé að renna þeim á gardínustöngina. • Gamalt garðskýli. Alls ekki henda gamla garðskýlinu þínu ef þú lumar á einu slíku. Pússaðu það upp og lakkaðu og festu það vel og vand- lega þannig að það rammi endann á rúminu inn. Þá verður rúmið eins og lítið hús sem þú býrð í og veitir visst öryggi og þér finnst þú alltaf vera ein(n) í heiminum. Auðvitað er líka hægt að nota eitthvað annað til að ramma rúmið inn – notaðu bara ímyndaraflið! Það er mjög sniðugt að ramma rúmið inn með garðskýli eða einhverju öðru smekklegu. Sandblástursfilmur í glugga bjóða upp á óendanleg frum- legheit. Frumlegheit og sniðugar lausnir eru það sem allir vilja inn á heimilin sín og nú getur fólk látið hugmyndaflugið ráða þegar kemur að rúðum í anddyri og baðherbergjum. Hjá Memó ehf. eru fáanlegar sandblástursfilm- ur í glugga sem hægt er að fá eft- ir máli og að hugmyndum hvers og eins. „Þetta eru filmur sem eru settar í gluggana þannig að rúðan lítur út eins og sandblásin og svo skerum við út í filmuna það sem fólk vill,“ segir Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Memó. „Í anddyrinu er vinsælt að vera með húsnúmer og nöfn þeir- ra sem búa í húsinu og í baðher- bergisgluggana eru ljóðlínur og málshættir mjög vinsæl. Það allra nýjasta er svo að við getum skorið út ljósmyndir í filmuna. Við erum að fá margar sniðug- ar pantanir og hvetjum fólk til að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn og hafa þetta frumlegt og persónulegt.“ ■ Með lýríkina í ljóranum Ávextir skornir í sandblástursfilmur. Hér hafa verið skorin út ljóð og máls- hættir í stofugluggann. 02-03 fast lesið 26.2.2005 17:14 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.