Fréttablaðið - 28.02.2005, Síða 73

Fréttablaðið - 28.02.2005, Síða 73
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 FER‹ALEIKURINN ER Á VISIR.IS – TAKTU fiÁTT! Þú gætir unnið ferð til Kaupmannahafnar eða London! EKKI L ÁTA 20 0.000 K R. KAU PAUKA GANGA fiÉR Ú R GRE IPUM! AUKAHLUTAPAKKI Myrkur í hálftíma Einkavæðing felst eins og mennvita í því að fáir selja eignir margra í hendur sérvalinna aðila. Innkoman er svo notuð til að fjölga sendiherrum, styrkja uppbyggingu í Írak, og auk þessa myndast skemmtilegt svigrúm fyrir taugabil- aða ráðherra að gæla við að undir- búa vopnaðar stormsveitir og leyni- þjónustu. En áhugi stjórnmálamanna á slíkri forneskju virðist vaxa í réttu hlutfalli við óvinsældir þeirra heima fyrir; austantjalds höfðu ráðamenn fyrir sið að smíða því magnaðri njósna- og ofbeldisstofnanir sem þeim stóð meiri stuggur af þjóðum sínum. Í smærri löndum hefur þó stjórnmálamönnum, hversu arfavitl- ausir sem þeir eru, ekki ennþá tekist að koma upp slíkum stofnunum: Hver hefur heyrt talað um færeyska leyniþjónustu eða grænlenskar stormsveitir? ÞAÐ ER LANGT liðið á febrúar og flestum útsölum lokið og því ekki seinna vænna að reyna að klára að einkavæða draslið sem þjóðin hefur í sameiningu komið sér upp áður en sól hækkar á lofti í íslenskum stjórnmálum. Næst kemur röðin að Símanum. Og jafnvel mun líka ge- fast tóm til að losna við Landsvirkj- un og orkuveitur, þannig að við þurf- um ekki lengur að vandræðast með það sjálf hvaða prís við eigum að borga hvert öðru fyrir heita vatnið eða rafmagnið. TIL AÐ TRYGGJA vinsældir hinn- ar svonefndu einkavæðingar hefur verið brugðið á það ráð að láta þau boð út ganga að innkoman verði not- uð til að byggja sjúkrahús. Sam- kvæmt því eru þeir sem hafa ótrú á einkavinavæðingunni á móti sjúkra- húsum og vilja að fólk drepist án aðhlynningar þar sem það er statt á biðlistum hverju sinni. ÞETTA ER AUÐVITAÐ hið besta mál og í góðum höndum og farvegi. Úrtölumenn munu halda áfram að sífra um spillingu og heimsku í sam- bandi við einkavæðinguna og ástæðulaust að hlusta á þá kvein- stafi. Við þurfum að hafa hraðar hendur við þetta mikilvæga verk- efni og hefðbundnar leiðir geta verið tafsamar. Einfaldast væri því og fjótlegast að ríkisstjórnin gæfi út fyrirmæli um að slökkva öll ljós á landinu í hálftíma meðan vaskir menn með góða nætursjón kláruðu dæmið. BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR 72 Bak 27.2.2005 19:11 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.