Tíminn - 16.02.1975, Síða 4

Tíminn - 16.02.1975, Síða 4
4 riYIlNN Sunnudagur 16. febrúar 1975 Demantar og „stjörnur" einkenndu kvöldið Blööin í Hollywood sögöu að þetta heföi verið „kvöld stjarn- anna”, þegar þau sögðu frá hátið, sem MGM-kvikmynda- félagið hélt til heiðurs gamalla og nýrra leikara sinna, en þö einkum hinna frægu kvik- myndastjarna frá fyrri dögum. MGM-félagið hefur látið gera kvikmynd, sem þeir kalla „That’s Entertainment! ” og er hún byggð upp á endurminning- um um „stjörnurnar” frægu, og vegna þessarar myndar var veizlan haldin. Fyrst fór fram sýning i MGM-leikhúsinu en sið- an gengu gestirnir eftir rauðum flosdregli til Beverly Wilshire Ballroom, en þar var kvöld- verður og dans. Þarna mættust gamlir vinir, sem sumir höfðu ekki lengi sést, og var fjölmennt mjög af frægu fólki: T.d. Liz Taylor, June Allyson, James Stewart, Gloria Swanson, Margaret O’Brian, o.fl. Þarna söng Liza Minnelli lagið „You Made Me Love You” I minningu um móður sina Judy Garland söngkonu, en Liza hefur mjög lika rödd og hún, og gamlir vinir Judy táruðust að hlusta á söng- inn. A eftir var dansað af miklu fjöri. Þar á meðal voru dans- stjörnurnar gömlu FredAstaire (sem sést hér á mynd með gesti sinum (óþekktum) og Ginger Rogers, en þau léku saman i mörgum dans- og söngmyndum I gamla daga. Þau höfðu ekki talazt við i mörg ár, en bættu úr þvi þarna og dönsuðu saman og skemmtu sér hið bezta. Mikla athygli vakti Alexis Smith fyrir unglegt útlit. Hún virtist ekkert hafa elzt i 20 ár! Hún sést þarna leiöa Craig Stevens. Einnig var talað um Gloriu Swanson, hve hún væri ótrúlega ungleg (hún er meö hatt). Hún gefUr upp að hún sé 75 ára, en sagt er að hún sé eldri. Keenan Wynn (með yfirskeggið) var þarna einnig. Hann sagðist skemmta sér vel, en þvi miður yrði hann að fara Keenan Wynn thoroughly enjoj the evening of nostalgia, but left early, to get up next morning for filming of “Deadly Touch.” DENNI DÆAAALAUSI „Ætlarðu að búa til snjókarla handa mér áður en þú ferð I vinn- una.”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.