Tíminn - 16.02.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 16.02.1975, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 16. febrúar 1975 Kveöja frá Islandi. Litum fyrst á fröölega fiskað- gerðarmynd frá 1915 eða eldri. Útgefandi G. Jónasson og M .0. í baksýn gömul hús við Hafnar- stræti I Keflavik. Mér er sagt að húsin til hægri hafi verið i eigu Duusverzlunar. Málverk mun hafa verið gert eftir þessu korti. E.t.v. þekkja einhverjir les- endur öll húsin og fiskaðgerðar- mennina? Kort B. Magnús- sonar (1914) af fyrstu stjórn Eimskipafélags Islands sýnir einnig fyrstu skipin Gullfoss og Goðafoss-, og vikingaskips- hugmynd i baksýn. Það fór hrifningaralda um landið þegar félagið var stofnað. Margir ötulir að fá menn til að skrifa sig fyrir hlutabréfum. I Hrisey var sungið: Og viljirðu sjá Gullfoss þá gægstu þar inn, þér gefst máski eitthvað i kamppunginn þinn”, — er þá átt við eitt söfnunarheimilið. A kvennaárinu sómir vel að birta mynd af barnasjónleik 1916 til ágóða fyrir landspitala- sjóðinn, en konur gengu vask- lega fram i þvi máli, sem kunnugt er, og skildu kannski betur þörfina en karlmennirnir gerðu. Þekkir einhver konuna glæsi- legu, sem heldur á bláhvita fánanum? Og hvenær er myndin tekin? Liklega fyrir sextiu til sjötiu árum. Enginn útgefandi er skráður á kortið, en á það er skrifað til Guðnýjar Magnús- dóttur Smiðjustig 10, Reykja- vik. Útgefandi tónskáldakortsins er Olafur Ölafsson, Reykjavik. Hvenær? Þeir bræðurnir Helgi og Jónas Helgasynir voru báðir smiðir að iðn, Helgi trésmiður en Jónas járnsmiður. Áttu heima i Reykjavik en ættaðir úr Mývatnssveit og Flóa. Helgi smiðaði hús, brýr og þilskip. Var einnig kaupmaður, slökkvi- liðsstjóri og tók þátt i þilskipa- útgerð. Var fjömaður mikill. Sagt er að hann hafi stundum þotið ofan af húsþaki til að ná sér I pappir, ef hugmynd að sönglagi kom upp i kollinum á honum. Heyrði útlenda hljóm- sveit leika á Austurvelli 1874 og eftir það héldu honum engin bönd, hann fór til Hafnar til að læra að þeyta horn, einnig fiðlu- leik, tónfræði og ocgelsmiði. Stofnaði Lúðurþeytarfélag Reykjavikur 1876, hið fyrsta hér á landi, og stjórnaði þvi til 1902, er hann um skeið flutti til Vesturheims. Jónas hafði mikla og fallega söngrödd og þótti svo gaman að syngja að hann hljóp stundum frá steðjanum til að syngja við jarðarfarir. Arið 1862 stofnaði Jónas söngfélagið Hörpu, sem varö orðlagt og skemmti bæjar- búum með söng I 30 ár. Tók við organleikarastarfinu i dóm- kirkjunni 1877, Jónas var I fyrstu algerlega sjálfmennt- aður, lék á fiðlu og harmónium. Hátt á fertugsaldri 1875 brá hann sér til Danmerkur til tónlistarnáms. Tóku meistar- arnir V. Gade og próf. Hart- mann honum frábærlega vel. Þeir bræðurnir sömdu mörg lög, einkum þó Helgi (sjá i „Islenzku söngvasafni”) Sum voru fjörleg t.d. lag Helga „öxar við ána”. Þar má greina Jónas og Helgi Helgasynir. lúðrahljóminn, önnur hjartnæm og heillandi fögur. Báðir gáfu út sönglagabækur, einkum þó Jónas (Jónasarheftin). Áhrif þeirra bræðra voru mikil. Jónas fékk Steingrim Thorsteinsson skáld til að semja teksta við fjölmörg lög, íslenzk og útlend. A sönglistin i landinu Steingrimi mikið að þakka. Lögin i íslenzku söngvasafni („Fjárlögi.i”) voru lengi aðal tónaveröld þjóðar- innar. Þá var vélsmiðjuskrölt og öskur ekki farið að tröllriða tónlistinni. (Kortin hefur Guðrún Peter- sen lánað úr safni ömmu sinnar). Fyrslo. sljörn.,E unskip a fjel. Island Fyrsta stjórn Eimskipafélags tslands Fiskaðgerö I Keflavík. Duushús, ungmennafélagshús siðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.