Tíminn - 08.06.1975, Page 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 8. júni 1975
AÐFARANÓTT laugardags varö stórbruni I Reykjavík er eldur kom upp I tvilyftu timburhúsi aö Þing-
holtsstræti 27, laust fyrir klukkan hálf fimm. Tveir menn voru I húsinu, og geröi annar þeirra slökkvilið-
inu viövart og bjargaði sér siöan á brunakaðli út úr húsinu. Slökkviliösmenn fundu hinn manninn sof-
andi á neöri hæöinni og hlaut hann nokkur brunasár, þó ekki alvarlega aö þvi aö talið er. Mikill eldur var
I húsinu, þegar siökkviliöiö kom á vettvang, en þvl tókst á skömmum tfma aö ráöa niðurlögum eldsins,
sem sézt bezt á þvi, aö slökkvistarfi var að mestu lokið ki. 5. Brunavakt var við húsiö fram tii hádegis I
gær, en húsiö er mikið skemmt, bæöi af reyk og vatni. Þingholtsstræti 27 er eitt af þeim húsum I Reykja-
vík, sem friðuö hafa veriö. Myndin sýnir slökkviliösmenn aö störfum I fyrrinótt. Tlmamynd G.E.
Fyrir komu siögæöisvaröarins
AAólað yfir
„ósómann"
ASK-Reykjavlk. A þessum
siöustu og verstu tímum er enn
hægt að finna nokkrar siðprúöar
sálir. Augljós sönnun þess er, aö
einhverjir fulltrúar þessarar
hverfandi stéttar máluðu yfir
auglýsingarskilti Kjarvalsstaöa
aöfaranótt 5. júnl.
Myndirnar á skiltunum sýndu
útlinur nakinnar kvenpersónu og
átti aö minna á sýningu Gunnars
I. Guðjónssonar að Kjarvals-
stöðum.
Ungir
Framsóknar-
menn
halda þing
á Húsavík
FIMMTANDA þing Sambands
ungra Framsóknarmanna var
sett á Húsavík sl. föstudag. For-
maður Sambandsins, Eggert Jó-
hannesson, setti þingið með ræöu.
Þá fór fram kjör þingforseta.
1. þingforseti var kjörinn Guð-
mundur Björnsson, Húsavik, 2.
þingforseti Dagbjörg Höskulds-
dóttir, Stykkishólmi og 3. þingfor-
seti Jón Sigurðsson, Kópavogi.
Þingritarar voru kjörnir Kristinn
Jónsson, Búðardal, og Guðni
Agústsson, Selfossi.
Formaður SUF, Eggert Jó-
hannesson, flutti skýrslu fráfar-
andi stjórnar og Sævar Sigur-
geirsson, gjaldkeri Sambandsins,
gerði grein fyrir reikningum
SUF.
1 gær, laugardag, sátu nefndir
að störfum, en þinginu lýkur I
dag, sunnudag.
Slðast i mai var haldið 15. nor-
ræna póstmannaþingið I Kaup-
mannahöfn. 325 fulltrúar sóttu
þingið, þar af 13 frá Póstmanna-
félagi tslands. Páll Daníelsson,
forstjóri hagdeildar Pósts og
síma, var fulltrúi íslenzku póst-
stjórnarinnar.
Hans Strunge, formaður
danska póst- og simamanna-
félagsins, ávarpaði þingið. í
ávarpi hans kom fram, að þetta
var I fjórða sinn sem þingið fór
fram I Kaupmannahöfn. Þá flutti
Anker Jörgensen, forsætisráð-
herra Danmerkur ávarp og bauð
gesti velkomna. Einnig lýsti ráð-
herrann áhuga sfnum á aðalverk-
efni þingsins, en það var ,,at-
vinnulýðræði á vinnustað”. Slðan
lýsti hann 15. norræna póst-
mannaþingið sett.
K.N. Kaptein póstmeistari
flutti framsöguræðuna, en að
henni lokinni skiptust fulltrúar I
starfshópa og efniö var tekið til
meðferðar. Siöasta dag þingsins,
sem stóö I þrjá daga, lágu fyrir
niðurstööur starfshópanna, og
hófust þá umræður.
Þá voru fluttir fyrirlestrar á
þinginu, Gösta Hultin frá Stokk-
hólmi talaði um bankastarfsemi
póststjórna á Norðurlöndum, og
Helge Seip flutti fyrirlestur, sem
þinga
DET 15. NORDISKE
POSTM0DE -1975
Merki Norræna póstmannaþings-
ins 1975.
hann nefndi Norðurlönd og Efna-
hagsbandalagið. Nokkrarumræð
ur urðu um fyrirlestra þessa og
skoöanaskipti.
Auk þingstarfa var margt gert
gestum til fróðleiks og
skemmtunar. M.a. var móttaka I
Ráðhúsinu hjá Urban Hansen,
borgarstjóra Kaupmannahafnar.
Viö þingslit bauð formaður
finnska póstmannafélagsins,
Paavo Heikkila, til 16. norræna
póstmannaþingsins I Helsinki
1979, og hvatti hann póstmenn til
að hefja finnskunám sem fyrst.
A 125 ára afmæli danska frl-
merkisins verður sýningin
„HAFNIA-76” haldin i hinu nýja
Bella Center i Kaupmannahöfn,
sem liggur rétt úti við Kastrup-
flugvöllinn.
Danska póststjórnin hefur
þegar gefið út sina fyrstu blokk,
með yfirverði, sem gengur til að
greiða kostnað af sýningunni.en
önnur slik er væntanleg. Blokk
þessi kom út 27. febrúar 1975, en
hin siðari á sjálfri sýningunni.
Fyrstu tillögurnar að dönsk-
um frimerkjum sáu dagsins ljós
7. nóvember 1849. Þetta voru
tvær blýantsteikningar eftir
M.W. Ferslew, af skjaldar-
merki Danmerkur og Friðrik
VII. konungi. Þessar tillögur, og
tvær aðrar, prýða blokk þá er
þegar hefur verið gefin út.
Nafnið HAFNIA hefur verið
valið á sýninguna sökum þess,
að um 1000-1100 hét borgin Havn
sem siðar varð Köbenhavn, en
eins og kunnugt er, er ekki ýkja
langt siðan borgin hélt upp á 800
ára afmæli sitt. Hafnia er svo
hið latneska heiti borgarinnar.
Sýningin verður haldin á há-
sumarleyfistímanum, 20.-29.
ágúst sumarið 1976, og er ætlun-
in að skipuleggja hópferð héðan
frá íslandi á sýninguna.
Sýningin verður eins og áöur
segir, I hinu nýja Bella Center,
sem þá á að verða tilbúið, á
237,000 ferfeta svæði.
Stærð sýningarramma verður
35x47 tommur að innanmáli, en
það eru sömu rammarnir og
notaðir voru á Stockholmia ’74.
Auk þess verður bæði póst-
stjórnum og kaupmönnum gert
kleift að leigja sölustanda á sýn-
ingunni, auk þess sem póst-
stjórnir geta tekið þátt i hinni
opinberu sýningardeild.
Þaö þarf varla að geta þess,
aö þetta er alþjóðleg sýning
undir vernd Federation Inter-
Sýningarmerkið.
national de Philatelie (F.I.P.),
eða Alþjóðasamtaka frimerkja-
safnara.
Hin opinberu mál sýningar-
innar verða enska og danska.
Stórt uppboð verður haldið I
sambandi við sýninguna. Þá
verða gefnir út a.m.k. 2 kynn-
ingarbæklingar, áður en sýning-
in verður haldin, og er áætlað að
sá fyrri komi út I ágúst næst-
komandi. Verður m.a. I hinum
skrá yfir umboðsmenn I hverju
landi. En þetta er fyrsta
alþjóðasýningin, sem þær regl-
ur gilda að fullu um, að aðeins
er hægt að senda efni frá hverju
landi I gegn um hin skipaða um-
boðsmann, og eingöngu tekið til
sýningar efni frá mönnum, sem
eru meðlimir i þeim lándssam-
böndum, sem eru aðilar að
F.I.P. Hér a landi er það Lands-
samband islenzkra frlmerkja-
safnara, en umboðsmaður er
undirritaður I Pósthólf 26, Haf&
arfirði.
Forseti sýningarinnar er for-
maður Danske Filatelisters
Fællesraad, Tage Bundtsen
efnaverkfræðingur, en fram-
kvæmdastjóri er Henrik Eis,
fulltrúi hjá Pósti og sima.
Þegar er hafin söfnun safna
frá Islandi og Islenzkra safna
vítt um heim til að senda á sýn-
inguna, svo að Island verði þar
rækilega kynnt.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Llkan af hinu nýja Bella Cenier.
Eftir komu siðgæöisvaröarins.
Timamynd: Róbert. |