Tíminn - 08.06.1975, Síða 5
Sunnudagur 8. júni 1975
TÍMINN
5
Antony M. Voelker, yfirmaöur gagnglæpadeildar lögreglunnar I
New York.
„Fórnarlömb”
ræningja,
nauðgara,
eiturlyf jasala,
kynvillinga
og morðingja
Viövarandi glæpafaraldur i
New York hefur orðið til þess að
lögreglan þar verður að beita
ýmsum ráðum til að hafa hend-
ur i hári afbrotamanna og sum-
um jafnvel vafasömum, til
dæmis með þvi að leggja fyrir
þá afbrotagildrur. Ein deild lög-
reglunnar hefur þann starfa, að
dulbúa lögregluþjóna og gera þá
þannig úr garði, að þeir verði
fórnarlömb afbrotamanna og
snýst þá leikurinn oft þannig
við, að það verða árásarmenn-
irnir sem fara illa út úr við-
skiptunum. Vart þarf að taka
það fram, að lögreglusveit þessi
er sérstaklega þjálfuð til að fást
við ofbeldismenn. Lögregluyfir-
völd telja að með þessu sé ekki
einvörðungu verið að leiða af-
brotamenn i gildru til að standa
þá að verki og dæma, heldur
hugsi þeir sig um tvisvar áöur
en þeir leggja til atlögu við ein-
hverja, sem þeir halda sig geta
auðveldlega ráðið við, þar sem
aldrei megi vita við hverja sé i
raun og veru við að eiga.
Þessi lögreglusveit er á vakt
allan sólarhringinn og áður en
lögreglumennirnir fara út á
strætin er engu likara en þeir
séu á leið á leiksvið. Föðrunar-
sérfræðingar, hárgreiðslukonur
og saumakonur fara höndum
um þá og búninga þeirra, og eru
þeir oft óþekkjanlegir frá degi
til dags. Eru lögreglumennirnir
klæddir sem hippar, skrifstofu-
menn, betlarar, blindir menn,
eiturlyfjaneytendur, bréfberar,
konur, fatlaðir menn og jafnvel
gleðikonur. Þeir blanda sér i
mannmergðina á strætum stór-
borgarinnar, og iðulega verða
þeir vitni að lögbrotum, svo sem
eiturlyfjasölu, fjárkúgun, rán-
um og fleira, án þess að vera
sjálfir viðriðnir málið. Oft er
einnig ráðizt á þá og hafa
margir, bæði lögreglumenn og
afbrotamenn farið illa út úr
þeim viðskiptum.
Allir lögreglumennirnir i
þessari sérstöku deild eru sjálf-
boðaliðar og fá ekki sérstaklega
greitt fyrir þetta hættulega
starf..
Arásarmaður handtekinn. Þrlr dulbúnir lögreglumenn handtaka
mann, sem réðist á einn þeirra. Venjulega er þessu öfugt farið.
Árásarmennirnir eru fleiri en fórnarlambið eitt.
Þessi virðist sakleysislegur byggingaverkamaöur, en er I rauninni
harðsnúinn lögregluþjónn.
Blindur maður? Ekki alveg rétt. Þetta er lögreglumaður, sem fylg-
ist mjög vel með öllu sem fram fer umhverfis hann.
„Fórnarlömbin” að hefja vakt.
i gagnglæpadeildinni eru fáar konur, en I þeirra stað eru ungir og
sætir strákar klæddir sem kvenmenn og vafra um I skemmtigöröum
og fáförnum stöðum og láta þá handtöskuþjófar og nauðgarar sjald
an lengi á sér standa. —.
Likamsárásarmenn eru hvergi öruggir með fórnarlömb sln I New
York, bensínafgreiðslumenn geta veriö vel vopnaðar skyttur og
„læknirinn” hér á myndinni er sérstaklega þjálfaður til að „svæfa”
menn, með hnefunum.