Tíminn - 08.06.1975, Side 6
6
TÍMINN
s ii í . H i j y h i s *.’í; l <
Sunnudagur 8. júni 1975
HikbMí .snes j ðkull
A Ilellnum. Melabúö t.v. Glslabær t.h. Kirkjan gamla Utrnlaus fyrir miöju, fjær.
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið í
gamla daga
LXXVII
Tjarnir i Eyjafirði um aldamót
t Hrisey (1956)
Garðurinn i Fifilgeröi (1941)
„En ég hef verið i Hrisey!”
sagði stúlkan. Þaö hefur löngum
verið lif i tuskunum i þessari al-
kunnu útgerðarstöð. Hrisey er
með stærstu eyjum við Island,
um 7 km á lengd, en fremur
mjó. Stytzt er til lands að Hellu-
höfða á Arskógsströnd 2 km. Á
myndinni sést hluti af þorpinu á
suðurenda eyjarinnar. Kirkjan
var byggð á árunum 1927—1928
og er hin vandaðasta. Áður
höfðuHriseyingar sótt messu að
Stærra-Arskógi. Timburhúsið á
miðri myndinni, kennt við Þor-
stein Jörundsson útgerðarmann
mun vera byggt um eða fyrir
aldamót. Til hægri við það er
hús Þorvaldar smiðs, einnig all-
gamalt. Vestan fjarðarins blas-
ir Arskógsströnd við, en yfir
hana utanverða gnæfir Krossa-
fjall með nær þúsund metra
hnjúkum sinum. Liklega er það
hin fornu Sólarfjöll, sem um
getur i Landnámu. Ýmsir út-
gerðarmenn hafa gert garðinn
frægan i Hrisey, t.d. hákarla-
Jörundur á Syðstabæ og siðar
Páll Bergsson, Björn á Sela-
klöpp, Oddur i Hafnarvik, Krist-
inn á Yztabæ o.fl. Páll rak jafn-
framt verzlun og byggði stærsta
húsið i Hrisey. Nú er norðurendi
eyjarinnar friðaður og hafin þar
skógrækt. Vitinn gnæfir þar
yfir. Rannsóknir á rjúpum fara
fram i eyjunni, og holdanauta-
stöð er i undirbúningi. Ræktun
var allmikil um skeið, en nú eru
túnin litið nýtt og Hriseyingar
kaupa mjólk frá Akureyri.
Bregðum okkur i land og lit-
um á gamla bæi frammi i Firði,
innan Akureyrar. Myndin af
Tjörnum er tekin af þýzkum
manni (H. Erkes) um eða fyrir
aldamót. Bærinn hefur verið
reisulegur þriggja bursta með
þykkum veggjum — og vel rýk-
ur ■ úr eldhússtrompunum.
Tjarnir eru nú fremsta býlið
austan Eyjafjarðarár, um 46
km frá Akureyri.
Myndarlegur hefur hann ver-
ið gamli sexburstabærinn á
öxnafelli, um 25 km frá Akur-
eyri. Bak við sést baðstofan, er
snýr gafli og glugga móti suðri.
Vigfús Sigurgeirsson ljósmynd-
ari tók myndina 1927. Margir
kannast við Margréti frá öxna-
felli vegna skyggnigáfu hennar.
Nú er steinhús á Tjörnum og
öxnafelli.
Fifilgerði er miklu utar, að-
eins 7.5 km frá Akureyri. 1 Fifil-
gerði komu þeir bræður Jón og
Kristján Rögnvaldssynir upp
fjölskrúðugum trjágarði og
ræktuðu um skeið hið mesta
safn islenzkra jurta og margt
útlendra. Arið 1957 keypti Akur-
eyrarbær safnið og urðu plönt-
urnar kjarninn i grasgarðinum i
Lystigarði Akureyrar. Myndin
mun tekin um 1940. Húsið gamla
er einlyft timburhús portbyggt.
Ekki eru allir á eitt sáttir um
hvar myndin gamla af byggð
undir Snæfellsjökli er tekin.
Kristján Kristinsson á Hellis-
sandi segir hana vera af Helln-
um og heiti rauðu húsin þrjú til
vinstri Melabúð, en þyrpingin
fjær Gislabæ Turnlausa kirkju
ber i jökulinn. Maðurinn, sem
stendur fremst á myndinni, er
Kristinn Brandsson, faðir
Kristjáns. Óvist um blómarós-
irnar, sennilega gestkomandi
þarna. Myndin mun tekin
snemma á öldinni eða fyrr?
Bærinn, er sýndur var nafnlaus
mynd af 11. mai, mun vera
Sturlu-Reykir i Borgarfirði um
1920.
öxnafell i Eyjafiröi (gamii bærinn) (1927)