Tíminn - 08.06.1975, Qupperneq 7
Sunnudagur 8. júni 1975
TÍMINN
7
Dr. Hallgrímur Helgason:
Kantor og kirkjulag
Fyrir 225 árum lauk lifi þess
manns, sem lengst hefur komizt
I þeirri list að láta fjölröddun
lifa i smæsta frumi sem stór-
kostlega heild, Johan Sebastian
Bach (1685-1750).
Hann dó sem einskis metinn
tónhöfundur, smáður söngvari.
Valdsmenn samtiðar gældu við
útlenzka tizku og létu sér fátt
um finnast organistann við
Tómasarkirkjuna iLeipzig, sem
jafnan hafði haft fátækt að
fylgikonu.
Sterkur vilji, bjartsýn lifs-
skoðun og einstök iðjusemi,
voru hins vegar þeir eiginleikar,
sem gerðu honum kleift að af-
kasta ótrúlegu æviverki við
þjónustumanns kjör. Sá hluti
æviverks, sem tengdur er tón-
sköpun, er nú orðinn sameign
allra þeirra, sem iðka og unna
músik. Rúmar tvær aldir hafa
engu breytt um mat né gildi tón-
verka Tómasarkantorsins. Þau
eru fyrir löngu orðin sigild.
Timinn,sem seinvikur er, en að
siðustu alltaf réttlátur dómari
hefur kveðið upp sinn óvé-
fengjanlegan úrskurð.
Þeim úrskurði verður aldrei
áfrýjað. Hann er endanlegur og
algildur. Hann stendur á þeim
óraskanlega grunni, að verk
Bachs, hverju sinni sem . þau
heyrast, vekja athygli áheyr-
anda, seðja forvitni hans, svala
fegurðarlöngun, fullnægja sam-
ræmisþörf hans og veita honum
þar með reynslu og aukinn
þroska.
Still allra verka þessa
lútherska kantors ber auðsæ
höfundareinkenni. Það er tiðar-
still barokk-timans samandreg-
Hvað get ég
gert
í sumar?
FÉLAGSMALASTOFNUN
Kópavogs hefur gefið út bækling,
sem nefnist: Hvað get ég gert i
sumar? Bæklingnum hefur verið
dreift i öll hús i Kópavogi og er i
honum að finna allar upplýsingar
um námskeið og klúbba fyrir
unglinga. Má þar nefna Siglinga-
klúbbinn Kópanes, námskeið i
iþróttum og útillfi, reiðskólanám-
skeið, sundnámskeið, vinnuskóli,
skólagarða og margt fleira.
Nánari upplýsingar um alla
þessa sumarstarfsemi eru gefnar
hjá Félagsmálastofnun Kópa-
vogskaupstaðar i sima 41570.
Sálmur
nr.507.
Sigurbjörii Einarsson biskup
hefur komið á framfæri svolát-
andi athugasemd:
,,t grein, sem nefnist „Ofurlit-
il athugasemd” og birtist i Tim-
anum 1. júni, segir höfundur,
Sn.J., að i Sálmabók 1972 sé sr.
Matthias Jochumsson enn rang-
lega talinn frumhöfundur
sálmsins ,,Ó, faðir, gjör mig
litið ljós”, svo sem verið hafi i
fyrri sálmabók (1945).
Þetta er ekki rétt hermt. Bæði
við sálminn sjálfan (nr. 507 i
bókinni) og i höfundaskrá (bls.
539 og 543) er sr. Matthias
skráður þýðandi og hins enska
írumhöfundar getið. Og i sið-
ustu prentum Sálmabókar 1945,
þeirri einu, sem ég sá um, hafði
þetta þegar verið leiðrétt, enda
hafði sr. Þorsteinn Björnsson
frikirkjuprestur bent á það
opinberlega, að þessi sálmur
væri þýddur, fyrstur manna svo
ég viti til.
Ég veit ekki, hvernig slikt
sem þetta getur farið framhjá
vel læsum manni. Má vera, að
-eitthvað fleira, sem fundið er að
nýju sálmabókmni, yxi ekki
mjög i augum, ef lesið væri með
nokkru meiri gát en þessi at-
hugasemd ber með sér.”
inn i brennipunkt hámarka.
Höfundur er likastur aðdráttar-
linsu, sem til sin seiðir og safnar
frönskum, enskum og itölskum
áhrifum og aðlagar þau alda-
gamalli þýzkri hefð og sjö kyn-
slóða eigin ættararfi. Allir þess-
ir stórfenglegu, landfræðilegu
og liffræðilegu aðdrættir, sam-
fara óbrigðulli listalegri
ábyrðartilfinningu og meistara-
legri handverkskunnáttu, hljóta
að marka há mið.
Skilningsleysi yfirboðara,
erfiðleikar og andstreymi fengu
aldrei yfirbugað þennan ein-
stæða mann, sem aldrei hvikaði
frá sinni sannfæringu, aldrei
brást þeirri köllun sinni að
vinna föðurlandi sinu allt það
gagn, er hann mátti. Styrka stoð
átti hann i fordæmi Marteins
Lúther, sem vakið hafði þýzkt
kirkjulif til nýrrar reisnar, lagt
grundvöll að nýháþýzku bók-
menntamáli með bibliuþýðingu
sinni og gefið siðbótarhreyfing-
unni kveikjandi striðssöng með
lagi sinu Vor guð er borg á
bjargi traust.
Ein aðalmáttarstoð tónverka
Bachs er kirkjuleg, lútherskur
kórall, sem nátengdur er al-
mennum alþýðusöng. Hann ber
uppi kóralforspil hans, kantöt-
ur, passiur, messur, orgelbók-
ina, kóraltiíbrigði'og sjálfstæð-
ar útsetningar. Þá er þjóðlag
honum hjartfólgiö. Andi þess
bærist i svitum hans og jafnvel
barnalag, sem tiðkast hér á
landi, Fram, fram fylking,
reynist honum verðugt niöurlag
i Goldberg-tilbrigðum hans.
Allur þessi einfaldi efniviður
verður i höndum hans að marg-
slunginni, háreistri byggingu,
sakir raddfærslulistar, sem i þvi
felst, að allar raddir leggi fram
jafnan skerf til þeirrar heildar,
sem við nefnum tónsmið. Ef ein
rödd hefur ekkert markvert
fram að færa, þá þagnar hún.
Innantómt tónagjálfur er þvi
útilokað. Þetta veldur þvi, að
verkin eru ávallt verð áheyrnar,
þvi að timalegur varanleiki
þeirra er fullur viðburða.
Smátt frum eða mótif er vaki
tónlistar. Úrvinnsla þess er
leyndardómur tónsköpunar.
Sjálft nafn Bachs, tónarnir B-A-
C-H, er slikt frum. Nú, þegar
Þórarinn Jónsson er liðinn,
þökkum við honum framleg
hans að frumsaminni tónsmiö
fyrir einleiksfiðlu til vegsemdar
þessum mesta kantor allra
tima. Verk hans er sveigur Is-
lands á grafreit Bachs.
SjöHu sinnum
iviku
Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í
áætlunarferð, samkvæmt sumaráætlun til 12 staða
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þessi mikli ferðafjöldi þýðir það, að þú getur ákveðið
ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust.
En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Það
þarf traust starfsfólk og góðan flugvélakost.
Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og
3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga með
langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar,
Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á íslandi.
500 þeirra starfa á flugstöövum og skrifstofum
okkar i 30 stórborgum erlendis.
Hlutverk þess er að greiða götu þína erlendis.
Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki
þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni,
þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur
framhaldið í samvinnu við flest flugfélög heims, sem
stunda reglubundið flug, og fjölda hótela.
Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir
og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér
finnst að þú sért að ferðast á áhyggjulausan, þægi-
legan og öruggan hátt, þá veistu að það er árangur
af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða
annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo
mætti veröa.
FLVCFÉIAC LOFJWDIR
ISLANDS
Félög með þjálfað starfslió í þjónustu við þig
%+ !■ \\ "%0{
V **
%