Tíminn - 08.06.1975, Page 8

Tíminn - 08.06.1975, Page 8
8 TÍMINN Sunnudagur 8. júnl 1975 Einn fagran janiíardag 1972 langa&i Pamelu Levin allt i einu aö fara út aö ganga. Hún geröi þaö þó ekki. I staö þess settist hún viö stofugluggann og horföi á nágrannakonur sinar draga börn sin á sleöum I snjónum. Pamela var alltof feit til þess aö komast I vetrarsiöbuxurnar sinar. Hún var hvorki meira né minna en 237 pund. Þaö var greinilega kominn timi til þess að fara enn einu sinni I megrunarkúr. í þetta skipti byrjaöi þessi 25 ára gamla kona ekki á þvi aö svelta sig og fá sér aöeins súrt skyr annaö slagiö, né heldur a& telja ofan I sig kolvetniseiningarnar. Hún innritaöist á námskeiö I Pennsylvaniu-háskóla, en nám- skei&iö var ætlaö feitu fólki, og þar var lögö megináherzla á að rannsaka hegöun fólksins og hátt- erni þess allt I sambandi viö mat og matarvenjur. Oröið megrun var aldrei nefnt, þótt ekki sé þar meö sagt, aö hitaeiningar skipti ekki máli. Það gera þær. En Pamela læröi nú annað og þýöingarmeira, i sambandi við megrunina. Innan árs haföi Pamela losnað viö 74 pund, og hún hefur ekki bætt einu einasta þeirra við sig aftur, og hún hefur heldur ekki hætt að boröa allan þann mat, sem henni þykir góöur, né heldur tekið megunarlyf af nokkurri gerö. Hún losnaöi viö þessi pund meö þvi aö læra aö skilja ástæöuna fyrir offitu sjálfrar sin, og hætta aö einblina á vigtina, en hugsa þeim mun meira um matarvenjurnar. Þarna I skólan- um er það kenningin, aö þaö sé ekki maturinn einn, sem geri fólk feitt, heldur matarvenjurnar, hvar, hvers vegna og hvenær og hversu oft þú borðar. Hvaö Pamelu viðkom, þá var svariö einfaldlega þaö, aö hún boröaöi stanzlaust. Þaö er heldur engin furða, því þaö þarf töluverðan mat til viöhalds 237 punda llkama. Boðendur þessarar nýju megrunaraöferöar segja, a& fólk eins og Pamela fitni alltaf aftur vegna þess aö á meðan á megr- ununni stendur sé þaö svipt þeim mat og öllu þvt sem fólkinu þykir bezt, en ekkert sé gert til þess aö breyta matarvenjunum. Það get- ur hver sem er haldiö þaö út aö boröa grænmeti I nokkrar vikur. Svo kemur allt I einu þessi ótta- lega löngun I allt, sem fólkinu þykir gott, og þá stelt þaö til þess aö fá sér ofurlltinn bita. Næst kemur sektartilfinningin, og aftur er gripiö til þess aö fá sér eitthvað til þess aö svæfa hana, og þar meö er bindindiö brotiö fyrir fullt og allt, og kílóin streyma aftur til baka. Pamela Levin ger&i sér ekki grein fyrir þvl, að hún borðaði stanzlaust fyrr en hún fór á nám- skei&ið. Þar var henni gert skylt að halda dagbók yfir allt sem hún lét ofan I sig. — Þaö var ekki fyrr en ég fór aö skrifa allt niöur, meira aö segja gosdrykki, aö ég geröi mér ljóst, aö ég var alltaf aö fá mér eitthvað, segir hún. —■ Ég haf&i vanið mig á aö boröa hitaeiningasnauöan mat, gegnum alla þá megrunarkúra sem ég hafði verið I. En þess á milli var ég alltaf að troða mig út á ein- hverju, sem mér þótti gott. Stundum fékk ég mér ís, stundum hintaeiningasnauöan gosdrykk. Pamelu var nú ráölagt aö boröa ekki nema þrjár máltiöir á dag, og fá sér svo eitt- hvaö smávegis einu sinni eöa tvisvar þess á milli. Færi hana allt I einu aö langa I pizza, var þaö allt I lagi, en hún mátti bara ekki fá sér það fyrr en á matmáls- tlma. Vildi hún fá sér brauðsneið meö sultu, þá var þaö einnig I lagi, svo fremi hún væri hluti af máltlð hennar. Þegar hún hætti aö bor&a milli mála fór hún aö léttast. Hvers vegna fitnum við Það er um fátt meira hugsað eþa skrifaö I Bandarlkjunum heldur en megrun. Heilbrigðisráðuneyti Bandarlkjanna segir, aö 79 milljónir Bandarlkjamanna séu 20% of þungir. Og þar er milljöröum dollara eytt I alls konar lyf og annaö, sem fólk er hvatt til þess aö nota til þess aö ná af sé aukakítóunum. Þaö ætti öll- um aö vera ljóst, aö þaö er mun hagkvæmara aö eyöa nokkrum mlnútum á dag I þaö aö gera sér ljósa orsök vandans. Það er ein- föld staðreynd, að hitaeiningarn- ar mega ekki vera fleiri en nauð- synl. er til þess aö fólk fitni ekki. Þó maöur borði ekki meira en sem svarar 25 umframhitaeining- um á dag — eöa sem svarar einni smáköku — þýðir það 9125 hita- einingar á ári. Þar sem eitt pund af fitu kemur úr 3500 hitaeining- um er hér um aö ræða 21/2 pund á ári, vegna þessarar einu smá- köku á dag. Þiö getiö rétt Imyndaö ykkur hvaö sneið af súkkulaöiköku getur gert, eöa Is meö jarðarberjasósu. Þvl miöur hugsar feitt fólk mjög lítið um hvað það borðar, eða hvers vegna. Það bara borðar. Rannsóknir hafa leitt I ljós, aö klukka hefur mikiö aö segja varöandi matarvenjur. Vitir þú, aö klukkan nálgast tólf á hádegi, fer þig aö langa I mat, hvort sm þú ert svangur eða ekki. Þetta hefur veriö rannsakaö meö þvl aö láta nokkrar manneskjur vera I lokuðu herbergi án arm- bandsúrs en klukkan, sem það hefur fylgzt með, hefur annað hvort veriö látin flýta sér eöa seinka. Matarlystin hefur fylgt klukkunni, og þeir, sem héldu aö klukkustund væri liöin, boröuöu helmingi meira heldur en þeir, sem héldu aö mun skemmri tlmi væri liöinn frá þvi þeir boröuöu slöast. Þaö eru ýrtisar ástæður fyrir þvl aö fólk boröar. Astæöurnar má finna þegar i frumbernsku. Barniö gerir sér ljóst, aö matur- inn hefur róandi áhrif á þaö, og þvl llður vel eftir aö þaö hefur drukkiö úr pelanum slnum. Ef barn meiðir sig, hverfur sárs- aukinn, ef þaö fær kökubita. Börnum er gefiö sælgæti þegar veriö er aö .verölauna þau fyrir velunnin störf eöa góöa hegöun. Móöirin brosir ef barnið lýkur af diskinum slnum. Allt hefur þetta sin áhrif og á eftir að koma fram slðar meir. Stjórnandi nám- skeiösins I Pennsylvaniuháskóla, dr. Leonard Levitz, ásakar for- eldra vegna þeirra milljón fitu- klumpa, sem nú ganga um sem fulloröiö fólk, og reynir í örvæntingu aö losna viö fituna, en boröar svo stöðugt til þess aö komast yfir örvæntingarköstin. Hann segir okkur söguna um feitu fjölskylduna, sem sat aö snæöingi. Fólkiö var búiö aö úöa I sig mæta vel af aöalrétti máltiðarinnar, og byrjuð á isn- um, þegar dóttirin sagði allt I einu: „Mig langar ekki I meira.” Hvað er aö, sagöi móðirin. Viltu ekki meira? — Nei, ég er södd, sagöi barniö — Hvaö segiröu! Boröaöu þptta, og láttu ekki matinn fara til spillis. Dr. Levitz segir, aö þetta barn sé þegar dæmt til þess aö berjast um alla framtlö við fituna. — Móöirin geröi ekki greinarmun á þvl aö borða, og neyta þess matar, sem hverjum er nauösyn- legur. Breyttar venjur Tilgangur námskeiöisins sem áöur er nefnt, er aö kenna fólki nýja siöi, svo þaö haldi ekki áfram þá leiö, sem þaö hefur gert frá barnæsku til fulloröinsára. Áriö 1965 setti dr. Albert Stunkard á fót fysta námskeiöiö til venjubreytinga viö Pennsylvaniu-háskóla. A slöasta ári flutti hann sig um set og hóf störf viö Stanford-háskólann, og vinnur þar að sama verk- efni. Starfi hans er haldið áfram I Philadelphiu, og árangurinn er þar mjög góöur. Fólk losnar þar almennt viö 20 pund á tuttugu vikna námskeiöi, og um 85% þeirra, sem þátt taka I nám- skeiðinu halda sér I þeirri vigt, sem þeir hafa komizt I. Astæöan er ekki talin sú, aö fólk hafi náö stjo'rn á löngun sinni I mat, heldur þaö eitt, a& þaö hefur gert sér ljósa grein fyrir orsökum of- fitunnar. Erfaeiginleikar geta veriö ein af orsökunum. Ofát önnur. Fólkiö á námskeiöunum er beöiö um aö boröa ekki meira en 1200hitaeiningar á dag. Sumt fólk er svo heppið, aö þaö getur setiö heilt kvöld og hámað I sig hnetur. án þess aö fitna, en sllkt er ekki hægt fyrir feita. Þeir verða að leggja á hilluna allt sllkt át, sem getur veriö öörum eölilegt. Fólk veröur að gera sér grein fýrirþrem veigamiklum atriðum. i lyrsta lagi: Hvaöa áhrif hefur bjórauglýsing I sjónvarpinu á þig? Þýtur þú af staö og nærö þér I einhvern kaldan svaladrykk I Is- skápnum. Fær fjölskyldan sér alitaí eitthvað undir svefninn, hvort sem svengd er fyrir hendi eöa ekki. Réttir þú o'sjálfrátt út höndina eftir sælgæti, ef þaö er I skál fyrir framan þig? I ööru lagi: Er eitthvert sam- band á milli þess hvernig þér llöur, og hvort þú borðar? Sú staðreynd, aö feitt fólk boröar gjarnan meira en þeir grönnu, ef þvl líður eitthvaö illa, þarf ekki aö benda til þess aö þeim feitu llöi almennt verr en þeim grönnu. Þeir bregðast aöeins viö vandan- um á þennan ákveöna hátt. Það fylgir lika átinu sektartilfinning hjá sumum, og þeir reyna svo að losna viö hana með því aö borða enn meira. Þetta er einmitt eitt af þvi, sem háskólamennirnir eru aö reyna aö komast hjá, sektartilfinningin. Fólk á ekki aö þurfa aö sanna ágæti sitt meö þvl aö geta lagt af. Það er munur á viljastyrk og sjálfstjórn segja þeir ennfremur. Þaö er viljastyrkur, ef þú situr inni i Isbúö, en færö þér fremur kaffibolla heldur en fá þér Isinn. En það er sjálfstjórn, að borða is- inn, en fá sér svo engan eftirrétt með kvöldmatnum. Þetta er meginmunurinn, og þeir telja sjálfstjórnina það æskilega. Þriöja atriöið varðandi aukna þyngd, er aö hvaöa leyti maturinn ver&ur ómeövitaöur þáttur I llfi okkar. Ef til dæmis grannur eiginmaöur hefur þann hátt á a& fara alltaf að fá sér eitthvað rétt undir svefninn, og þú fylgir hon- um eftir tii þess að veita honum félagsskap, þá verður þú aö breyta þessu, ef þú ætlar að halda þér grannri, og þið veröið aö finna eitthvaö annað til sameiginlegrar skemmtunar. Sama máli er aö gegna um húsmóðurina, sem allt- af er heima og hefur litla ánægju , af sjónvarpinu eða heimilisstörf- unum, en skemmtir sér þess i stað við aö borða. Hún á ekki ann- ars úrkostar en breyta um lifs- venjur. Lois Battles, 163 cm há hús- móöir I New Jersey er gott dæmi um þetta. Hún var 201 pund, þegar hún hóf þátttöku I Pennsylvanlu-námskeiöinu en nú er hún aðeins 164pund. Þegar hún byrjaöi á námskeiöinu kom I ljós, aö hún át stanzlaust frá hádegi til kvöldmatar, og hún geröi sé enga grein fyrir þvl hversu mikið hún raunverulega innbyrti. Greinilegt var, aö Lois varö aö komast aö heiman slödegis. Hún breytti þá llfsvenjum slnum á þann hátt, aö hún fór aö fara út eftir hádegi I innkaupaferðir slnar og til þess aö ljúka af nauðsynlegum erind- um, I staö þess að gera þaö á morgnana eins og hún haföi alltaf veriö vön aö gera. Nú varð hún einnig aö fara aö hugsa um, hversu mikiö hún át. — Nú veit ég, aö ég má boröa 1200 hitaeiningar á dag, og ég get

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.