Tíminn - 08.06.1975, Síða 10
io
fíMINN
Sunnudagur 8. júni 1975
Ólafur Bjarnason prófcssor: Rannsóknir geta leitt til þess aö leiðir finnist til að fyrirbyggja einnig þá
sjúkdóma, sem i fljótu bragði virðast vera arfgengir. Myndin er tekin við sýningartæki, sem notuö eru
við kennslu læknanema.
Rannsóknadeildir Landspítalans
og læknadeildar
„Þjónustustarfsemin
hefur orðið að
• a f • / • !!
sitja i fyrirrumi
segir prófessor Ólafur Bjarnason forstöðumaður
Rannsóknastofu Hóskólans í líffærameinafræði
Rannsóknastofa Háskólans eins
og hún er nefnd, stendur á Land-
spftalalóöinni. Hún var fyrsta
rannsóknastofan á vegum Há-
skóla tslands og tók til starfa árið
1917 i Kirkjustræti i húsi, sem
Likn siöar tók til afnota, en er nú
aö Arbæ. Nú starfa I Rannsókna-
stofu Háskólans 40-50 manns, en
forstöðumaður er ólafur Bjarna-
son, prófessor. Starfssvið
stofnunarinnar er þriþætt: Lif-
færameinafræði, sýklafræöi og
réttarlæknisfræði. Arinbjörn Kol-
beinsson, læknir, dósent i
bakteriologiu, stendur fyrir
bakteriurannsóknum, en ráðgert
er að hann og starfsfólk hans
flytji áður en langt um líður i ann-
að tveggja stálgrindahúsa, sem i
byggingu erp á sjúkrahUsslóð-
inni.
Stefán Jónsson, fyrsti dósentinn
I meina- og sýklafræði við Há-
skóla tslands var forstöðumaður
Rannsóknastofnunnar frá 1917-
1923, en 1926 tók Niels Dungal
prófessor við. 1934 flutti Rann-
sóknastofa Háskólans i nUverandi
hUsnæði.
Áður bæði rannsóknir
á sjúkdómum
i mönnum og dýrum
— 1 fyrstu fóru hér ekki aöeins
fram rannsóknir á sjúkdómum I
mönnum, heldur einnig á dýra-
sjUkdómum, segir ólafur Bjarna-
son prófesor. — Hér var bólu-
efnisframleiðsla og fram á sið-
asta ár hefur verið framleitt á
Rannsóknastofunni bráöapestar-
bóluefni fyrir sauðfé. begar Til-
raunstööin á Keldum var stofnuö
fluttu allar húsdýrarannsóknirn-
ar þangað og meginhlutinn af
bóluefnisframleiðslunni lika.
NU er starf Rannsóknastofunn-
ar að mestu bundið við rannsókn-
irá sjUkdómum I mönnum. Þessi
starfsemi er eiginlega þriþætt,
liffærameinafræði, sýklafræöi og
þá fyrst og fremst bakteriufræði
og loks réttarlæknisfræði. Okkur
eru send sýni Ur sjUklingum
hvaðanæva að af landinu, frá öll-
um sjUkrahúsum og einstökum
læknum. Meginhlutinn af rann-
sóknum á dánarmeinum fara
fram hér, bæði almennar rann-
sóknir og réttarkrufningar.
Þessi þjónustustarfsemi hefur
farið stööugt vaxandi, og er nú að
sprengja allt utan af sér, svo viö
erum I hreinustu vandræöum
hvað allan aðbúnað snertir.
Kennsla i áðurnefndum grein-
um við Háskóla íslands fer fram
á vegum Rannsóknastofunnar.
Þrir sérfræðingar auk min annast
kennslu i llffærameinafræði. En
ég hefi auk þess á hendi kennslu I
réttarlæknisfræði. Auk okkar sér-
fræðinganna starfa venjulega 2-4
aðstoðarlæknar hér.
HUsnæöisskortur háir kennsl-
unni. Aður voru fyrirlestrar
haldnir i kennslustofu Rann-
sóknastofu Háskólans, en vegna
fjölgunar stúdenta siöustu ár
verðum við að hafa fyrirlestra og
sýnikennslu i kennslustofu
Fæðingardeildar, sem er mjög
bagalegt og kemur niöur á
kennslunni. Verklegar æfingar
fara fram hér og rannsóknir á
banameinum, en verkleg kennsla
á vefjagreiningu i húsnæði Há-
skólans við Armúla. Arninbjörn
Kolbeinsson annast verklega
kennslu I bakteriufræöi I nýju
rannsóknastofunni i veirufræöi,
sem innréttuð var f gamla þvotta-
húsinu, en fyrirlestra heldur hann
einnig I kennslustofu Fæðingar-
deildar.
Frumurannsóknir
aö hausti?
Ahugi er á að halda uppi meiri
almennum rannsóknum hér en nú
er gert, en aðstæður allar eru
erfiðar bæði vegna þrengsla og
annars aðstöðuleysis.
Næsta viðbót, sem ráðgert er
að taka upp, eru frumurannsókn-
ir {sambandi viö greiningu á æxl-
um. Leit að krabbameini I legi á
byrjunarstigi fer fram á vegum
Krabbameinsfélags Islands og
annast læknar, sem starfa á veg-
um þess, frumurannsóknir i þvi
sambandi, en aöeins hjá konum,
sem ekki hafa sjúkdómseinkenni.
Vel er fyrir þessum rannsóknum
séö, en þörf er á að halda uppi
frumurannsóknum á illkynja
meinum i fleiri liffærum, svo sem
Rannsóknastofa Háskólans
þvagfærum lungum og maga.
Ætlunin er að koma þessum
rannsóknum á fót þegar nýju
stálgrindarhúsin hér á lóðinni
verða komin upp. Nýlega er kom-
inn heim frá námi vel menntaöur
læknir, sem hefur sérhæft sig i
frumurannsóknum, Gunnlaugur
Geirsson. Hann sér um leitar-
rannsóknirnar hjá Krabbameins-
félaginu I Leitarstöðinni I Suður-
götu og ætlunin var að hann heföi
einnig yfirstjórn frumurannsókn-
anna hér. Samkvæmt áætlun áttu
húsin að vera tilbúin s.l. haust, en
verða varla tekin I notkun fyrr en
á næsta ári.
Eina stofnunin hér á
landi, sem annast
vefjarannsóknir
Vefjagreining fer fram hér á
Rannsóknastofunni og liggur til
grundvallar meðferðar á illkynja
æxlum og ýmiskonar sjúkdóm-
um. Frumurannsóknirnar eru
annars eölis. Þá eru skoöaöar
einstakar frumur en i hinu tilfell-
inu örþunnar sneiðar af vef.
Rannsóknastofa Háskólans er
eina stofnunin hér á landi, sem
annast slika vefjagreiningu fyrir
einstaka lækna og sjúkrahús, ekki
aöeins á höfuðborgarsvæðinu
heldur hvaðan æfa aö af landinu.
Faraldursfræðilegar
rannsóknir I
samvinnu við aðra
Faraldursfræöilegar rannsókn-
ir, sem fara fram hér á Rann-
sóknastofu Háskólans eru einkum
tengdar krabbameinsskráning-
unni. Könnuð hefur verið tiöni
ýmissa tegunda krabbameins og
höfum viö nána samvinnu við
Erföafræöinefnd Háskólans. Get-
ur þar bæði veriö um að ræða
sjúkdóma, sem ganga beint i
erfðir frá einum einstaklingi til
annars, en einnig getur verið um
aö ræöa arfgengt byggingarlag,
sem gerir menn' mismunandi
hæfa til að standast ákveðin
áreiti. Það gerir þá einum ekkert
til sem veldur sjúkdómi hjá öör-
um.
Þjónusturannsóknirnar hér
hafa vaxiö svo gifurlega, að viö
höfum ekki sem skyldi getaö snú-
ið okkur að grundvallar rann-
sóknum. Hér er ekki lengur að-
staða til að hafa tilraunadýr, sem
nauðsynlegt er þó til slikra hluta.
Það hefur veriö samdóma álit
okkar, aö þjónustustarfsemin
yrði aö ganga fyrir, en við von-
umst til að grundvallarrannsókn-
ir hefjist i vaxandi mæli þegar
smátt og smátt veröur fariö aö
byggja upp stofananir lækna-
deildar Háskóla'ns hér á lóöinni.
Okkar framlag til almennra
rannsókna undanfariö hefur þvi
einkum verið faraldursfræöilegar
rannsóknir, en ekki tilraunir á
ra nn s ó k n a s to f u m . Meö
faraldursfræöilegum rannsókn-
um er átt viö kannanir t.d. á tiöni
sjúkdóma, aldursdreifingu, mis-
munandi dreifingu eftir lands-
hlutum innan ákveðins lands eða
misdreifingu milli landa. 1 þessu
sambandi höfum viö eins og áöur
er sagt haft samvinnu við aöra
aðila hér á landi. Island er sér-
staklega vel fallið til slikra
faraldursfræðilegra rannsókn,
vegna legu sinnar og vegna þess
hve þjóðin er litt blönduö, vegna
þess hve almennar skýrslur eru
hér áreiðanlegar og að lokum
hversu almennt menntunar-
ástand þjóðarinnar er á háu stigi.
Auk samvinnu við hérlenda
aðila höfum viö unniö að
faraldursfræðilegum athugunum
i samvinnu viö erlenda rann-
sóknamenn og ber þar fyrst og
fremst að nefna samvinnu við
krabbameinsskráningar á öðrum
Norðurlöndum. Eitt af þeim
verkefnum, sem þar hafa veriö
tekin til athugunar er tiöni
krabbameins I skjaldkirtli, sem
er mun hærri hér á landi en I
nokkuru hinna Noröurlandanna.
Krabbameinsskráningin
og tölvuskrá
Erfðafræðinefndar
Krabbameinsskráning i þvi
formi, sem hún er nú rekin hófst
hér á landi 1. janúar 1954 og er á
vegum Krabbameinsfélags Is-
lands. Þar eru skráð öll ný tilfelli
af illkynja æxlum, sem finnast
hér á landi. Upplýsingar koma
frá öllum sjúkrahúsum á landinu,
um krabbameinstilfelli, sem þar
eru greind. Auk þess eru sendar
tilkynningar héðan um tilfelli,
sem finnast viö vefjarannsókn en
þaö er nákvæmasta greiningar-
aðferöin á krabbameini, sem viö
ráðum yfir I dag. Þá eru skrán-
ingunni sendar tilkynningar um
öll illkynja æxli, sem finnast við
rannsókn banameina. Loks hefur
Hagstofan heimilað krabba-
meinsskráningunni aö fara i
gegnum öll dánarvottorð, sem
gefin eru út. Þannig ætti aö vera
trygging fyrir þvi að öll greind
krabbamein hér á landi komist á
Erfðafræöinefnd Háskólans
hefur um nokkurra ára skeið unn-
ið að þvi aö safna upplýsingum
um alla tslendinga, sem voru á
lifi 1910 og þá sem fæðzt hafa sfö-
an. lsland er einnig mjög heppi-
legt til mannerföafræöilegra
rannsókna, m.a. vegna nokkurra