Tíminn - 08.06.1975, Side 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 8. júni 1975
HYDRAULIC WINCH MODEL ®71®
háþrýsfivindur
í skip, á krana, dráttarvélar o.fl.
fyrirliggjandi — 2,3 tonn
Meðal skipa sem nota Pullmaster
eru: Guðmundur RE, Gullberg VE,
Huginn VE og Runólfur SH
VÉLTAK H/F
Sími 8-66-05 og á kvöldin 2-81-75
EIGENDUR
ATHUGIÐ!
Eigum fyrirliggjandi skipti
AAeiri en helmingur
íslendinga orðið fyrir
dulrænni reynslu
Þriðjungur aldrei lesið Biblíuna
FB—Reykjavik. Á siðast liðnu
sumri var hafinn undirbúningur
að söfnun upplýsinga um reynslu
landsmanna af svonefndum
dulrænum fyrirbærum og við-
horfum þeirra við þeim.
Rannsókn þessi fór fram á vegum
sálfræðideildar Háskóla tslands
og stjórnaði henni Erlendur
Haraldsson lektor, en með honum
störfuðu fjórir stúdentar í sál-
fræði, þau Asa Guömundsdóttir,
Asþór Ragnarsson, Jóhann Lofts-
son og Sigtryggur Jónsson.
Niöurstöður könnunar þessarar
liggja nú fyrir, og eru mjög yfir-
gripsmiklar, en þess má fyrst
geta, aö 64% þeirra, sem svöruðu
telja sig hafa orðiö fyrir einhverri
dulrænni reynslu.
Spurningar listans eru úr eftir-
farandi efnisflokkum: 1. Draum-
ar. 2. Dulræn reynsla og þjóðtrú.
3. Trúarreynsla og lestur bóka
um dulræn efni. 4. Kynni af starf-
semi miöla, huglækna, spá-
kvenna o.fl. 5. Viöhorf til
dulrænna o.fl. fyrirbæra.
Úrtakið var fengið á þann hátt
að dregnir voru úr þjóðskrá 1132
menn á aldrinum frá þritugu til
sjötugs. Þetta er um sjötugasti
hver landsmaður á þessu aldurs-
skeiði. Siðan var spurningalistinn
póstsendur þessu fólki.
Heimtur urðu þær, að 902 menn
svöruðu með útfylltum
spurningalista. 425 karlar og 477
konur. Þetta er 80% úrtaksins. Af
þeim, sem svöruðu eru 47% karl-
ar og 53% konur.
Á fundi með blaðamönnum
benti Erlendur Haraldsson á, að
flestir hefðu talið sig ber-
dreymna, eða 36%. Næsttlðust
var sú dulræn reynsla, sem flokk-
uö er undir að hafa orðið var við
látinn mann. Þar er hundraðstal-
an 31%. Aðeins 2% svöruðu ját-
andi minningu um fyrra lifsskeið.
Erlendur benti á, að konur telja
sig hafa meiri dulræna reynslu
heldur en karlar. Einnig virðist
menntun hafa einhver áhrif á
svör manna, þannig að þeir sem
hafa meiri menntun viröast siður
hafa orðið varir við, eða viður-
kenna dulræna reynslu.
Benda má á, að varðandi trú og
lesefni þá eru það 33% þeirra,
sem svara, sem segjast aldrei
hafa lesið bibliuna, og 59% hafa
sjaldan lesið hana. Hins vegar
eru aðeins 3%, sem segjast alls
ekki vera trúaðir, en 63% eru
nokkuð trúaöir og 15% mjög
trúaðir.
Þriöjungur þeirra, sem spurður
er hefur sótt skyggnilýsingar, og
sömuleiöis miðilsfundi, og af
þeim telja 83% miölilsfundina
gagnlega. Náið samband við
framliðna á miðilsfundi segjast
56% hafa komizt I.
Spákonur fá heldur hraklega
útreið, en þær hafa 52% heimsótt,
en 72% telja þær einskis nýtar.
Huglækningar virðast mikið
sóttar, og hafa 41% leitaö til hug-
læknis, og 91% telja þær gagnleg-
ar. Þegar litið er á skoðun
stúdenta á huglækningum, þá
telja 60% þeirra þær gagnlegar,
og sömuleiðis telja 67% stúdenta
miðilsfundi gagnlega.
Þá voru könnuð viðhorf fólks til
dulrænna fyrirbæra. Enginn taldi
óhugsandi að hugskeyti eða hug-
boð væru fyrir hendi. Aðeins 1%
taldi berdreymi óhugsanlegt og
2% töldu skyggni óhugsanlega.
Þrjú prósent töldu samband við
framliðna á miöilsfundum óhugs-
andi, en 10% reimleika og sömu-
leiðis huldufólk og álfa. Fylgjur
og álagabletti töldu 5% óhugsandi
og 2% töldu framhaldslif óhugs-
andi. Endurholdgun og fram-
haldslif á öðrum hnöttum töldu
9% óhugsandi.
Að lokum var svo spurt um
rannsóknir dulrænna fyrirbæra,
og þar kom fram að 35% töldu
sllkt kunna að leiða i ljós ný sann-
indi, og 33% töldu rannsóknirnar
þýðingarmiklar.
Varðandi rannsóknir svipaðs
eðlis annars staðar sagði Erlend-
ur m.a. að i rannsókn I Sviþjóð
hefði komið fram, að 38% tryöu á
annað lif, en 47% hefðu svarað
þeirri spurningu neitandi þar,
samanborið við aðeins 7% hér. 1
Bandarikjunum hefðu 73% svar-
að játandi og 19% I Bretlandi 35%
neitandi, og I Noregi 54% játandi.
Hins vegar er á það að lita að þær
kannanir, sem gerðar hafa verið
og vitnað er i erlendis eru ekki
eins umfangsmiklar og sú sem
hér hefur nú verið gerð, og eru
gerðar i litlum bæjum, eða á litl-
um hluta viðkomandi lands, og
gefa þvi ekki jafnrétta mynd af
skoðunum fólks i viökomandi
löndum, og sú, sem hér hefur ver-
ið gerð. Einnig mun hafa komið I
ljós á un'danförnum árum, að t.d.
trúin á framhaldslif hefur farið
vaxandi I Bandarikjunum, en á
hinn bóginn minnkað i Evrópu-
löndum.
Við söfnun svara við spurning-
unum neituðu aðeins 10% þeirra,
sem spurningalistann fengu, aö
svara. Sagði Erlendur, að hann
og samstarfsmenn hans hefðu nú
mikinn áhuga á að fylgja þessari
könnun frekar eftir með þvi m.a.
að hafa viðtöl við einhverja
þeirra, sem svör bárust frá, og fá
nánari lýsingar og skýrgreiningu
þeirra á þvi, sem fram hefur
komið i svörum þeirra. Verður
það gert, ef fjárhagur leyfir á
næstunni, en engar endanlegar
ákvarðanir hafa þó verið gerðar
þar að lútandi.
vélar ó mjög hagstæðu
verði.
Tökum gömlu vélina upp í.
0 TEKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-6
SÍM/ 42606
Læknir óskast
til afleysinga f júli og ágúst á barnadeild Heilsuvernd-
arstöðvarinnar.
Upplýsingar um starfiö gefur yfirlæknir deildarinnar.
m
ú
$ &
■íá
r'.:l
Í
'’MV’ .v- \
Heilsuvernda rstöð
Reykjavikur.
I .... , , .
w •TVv »•*’.' •'. -VT?f.V'*.'í 'j\ 'yv,V-'*'•
Tíminn
er
peningar
Þar sem mjög mikiar töluiegar
upplýsingar komu fram á biaða-
mannafundinum látum við hér
fylgja með töfiur um svör I
hundraðstölum viö hinum
einstöku spurningum, svo þeir,
sem áhuga hafa á geti borið svör-
in saman, bæði milli kynja og
aldursflokka, og einnig hvað við
kemur menntun þeirra, sem
svöruðu.
HUNDRAÐSTALA ÞEIRRA SEM TELJA SIG HAFA ORÐIÐ FYRIR YMIS KONAR DULRÆNNI REYNSLU
Spurning Alls karlar konur 30 - 39 Aldur 40 - 49 50 - 59 60 - 70 barnask Menntun . raiðsk. stúdent
9. Berdreymi 36 27 44 29 35 46 39 44 34 19
10. Hugboð um atburð 27 23 31 28 26 30 19 27 30 12
11. Skynjun fjarstaddrar persónu 11 10 12 11 9 13 13 14 12 2
12 . Dulræn vitneskja ann- arra um freginn 16 15 16 16 20 15 7 14 17 10
13. Utan líkama 8 8 8 7 7 10 8 6 10 2
14 . Séð blik 5 3 7 4 5 6 4 7 5 0
15. Minning um fyrra lífs- skeið 2 3 2 2 3 1 2 2 3 0
16. Orðið var við látinn mann 31 26 36 28 28 37 34 36 30 14
17. Látinn maður náð valdi yfir likama 4 5 3 3 4 6 5 4 4 0
18. Séð yfirnáttúr lega hreyfingu 9 8 9 8 9 8 9 7 7 2
19. Reimleikar 18 17 20 18 18 19 19 23 18 7
20. Séð álfa eða huldufólk 5 5 5 3 4 8 6 8 3 0
21. Alagablettir 2 1 2 1 1 3 2 2 0 0
22. Fylgjur 17 16 17 16 15 21 16 21 17 5
TRD OG LESEFNI
Aldur Menntun
Spurning Alls karlar konur 30 - 39 40 - 49 50 - 59 60 - 70 barnask. miðsk. stúdent
24. Trúaður:
mjög 15 11 19 12 13 22 17 17 16 14
nokkuð 63 60 66 65 66 60 60 66 62 57
lítils háttar 19 26 13 19 20 16 20 16 20 29
alls ekki .... 3 3 2 4 1 1 4 2 3 0
25. Trúarleg reynsla 26. Lestur dulrænna bóka: 25 17 32 21 20 37 27 32 22 19
oft 25 17 32 17 18 36 42 30 24 8
sjaldan 53 55 51 62 56 45 38 50 52 63
aldrei 22 28 17 22 26 19 20 20 24 29
27. Biblíulestur:
oft 8 7 9 4 8 12 10 9 8 4
sjaldan 59 58 59 60 58 55 63 57 59 63
aldrei 33 35 32 36 34 33 27 34 33 33
28. Lestur um indversk trú- arbrögð eða guðspeki:
oft 5 4 6 4 3 6 9 4 7 0
sjaldan 19 21 18 16 22 24 17 10 20 46
aldrei 76 75 76 80 75 70 74 86 73 54