Tíminn - 08.06.1975, Page 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 8. júni 1975
HVAD NU
JA CKIE.
Það linar ekki sorgina að hún er auð-
ugasta ekkja heims? Á hún að taka við
stjórn risaútgerðarinnar? Gengur hún i
hjónaband í þriðja sinn? Þetta eru
spurningar, sem vakna i huga Jackie
Onassis. En stærsta og fyrsta viðfangs-
efni hennar er að hugga stjúpdóttur sina
Christinu, auðugustu stúlku í heimi, og
þá sem er sennilega mest einmana.
Fjölskylda okkar er talandi
dæmi þess að peningar eru ekki
sama og hamingja, sagði
Christina, 24 ára gömul dóttir
skipakóngsins Onassis, eftir að
hafa heimsótt hann á banasæng-
ina i Paris.
HUn og stjúpmóðir hennar
Jackie eru rikustu konur i heimi,
en milljarðarnir, eignirnar og
listaverkin, sem þær eiga, dregur
ekki Ur sorginni eftir manninn,
sem þær báðar elskuðu meira en
allt annað. Hann var einmitt sá
eiginmaður, sem Jackie þurfti:
Tryggur, rikur og fUs að veita
henni það frelsi, sem hUn óskaði
sér. Christina átti engan annan að
en hann, eftir að bróðir hennar
Alexander lézt i flugslysi fyrir
tveim árum, og skyndilegt lát
móður hennar i fyrra haust.
SjUkdómur og andlát Aristo-
telesar Onassis færði konurnar
tvær nær hvor annarri, en þær
höfðu nokkru sinni áður verið.
Þær reyndu að hugga hvor aðra
við jarðarförina á eynni Scorpio.
Onassis var grafinn við hlið sonar
sins i litlu kapellunni, þar sem
Jackie og hann voru gefin saman
næstum 6 1/2 ári áður.
Allur heimurinn fylgdist með
veikindum Onassis, og nU beinast
allra augu að þeim, sem erfa
heimsveldi hans. Onassis var
meira en forrikur verzlunarmað-
ur, hann var lifandi þjóðsaga.
Athygli manna beindist ávallt að
honum, og þá um leið einnig
þeim, sem hann umgekkst.
Jackie er vön að vera i sviðsljós-
inu og fellur það ekki illa, en
Christina á þá ósk heitasta að fá
að vera i friði. Einkalif hennar
hefur alltaf verið vinsælt efni i
blaðagreinar og nU er sorg henn-
ar og söknuður á hvers manns
vörum. Ekkert verkefni er nU
mikilvægara fyrir Jackie en að
hugga stjUpdótturina á erfiðum
timum.
Hann vildi ekki lifa leng-
ur
Þær vöktu vikum saman við
sjUkrabeð Onassis, en örlög réðu
þvi að Jackie var fjarri þegar
hann lézt. Dóttirin Christina var
þar ein, og við hana sagði hann
sin hinztu orð. Jackie var i New
York með börnum sínum, Caro-
line og John. HUn var komin
þangað fyrir fjórum dögum, þeg-
> <
Jackie og Christina vöktu vik-
um saman. en Christina var
ein viðstödd þegar Onassis
iézt.
ar hringt var i hana og henni til-
kynnt láteiginmanns hennar. Það
var henni áfall, þvi að fáeinum
tlmum áður hafði hUn hringt á
sjUkrahUsið og var þá sagt að allt
væri i lagi. HUn var meira að
segja farin að vona að hann væri
á batavegi.
Andlit hennar var mótað sorg
og örvæntingu þegar hUn kom til
sjUkrahUssins á sunnudags-
morgni að kistu Onassis. HUn
hefur sagt við vini sina að hUn
kæmi aldrei til með að fyrirgefa
sjálfri sér að hafa ekki verið hjá
honum þegar hann dó. Vikum
saman hafði hún verið við hlið
hans dag sem nótt, og svo dó hann
án þess að þau gætu kvaðzt. 1
fyrra skiptið sem hún varð ekkja,
kom dauðinn einnig að óvörum.
Þegar John Kennedy forseti var
skotinn, féll hann i fang henni og
lézt stuttu seinna án þess að kom-
ast til meðvitundar.
Siðustu mánuðina áður en
Onassis lagðist á sjUkrahúsið 6.
febrúar s.l. varð hann sifellt
meira veikburða og merktur
sjúkdómi. Hann gekk óstuddur
inn á sjUkrahúsið, en myndir sýna
að þar fór dauðvona maður, sem
af viljastyrk einum saman gekk
siðustu skrefin að sjUkrarúminu,
sem honum átti ekki að auðnast
að risa upp Ur aftur.
— Allt verður að reyna til að
bjarga lifi mannsins mins, sagði
Jackie og kvaddi til sérfræðinga.
SjUkdómsgreiningin var: Veilt
hjarta, vöðvarýrnun, gula og
e.t.v. illkyjnaður lifrarsjúkdóm-
ur, vottur af lungnabólgu, and-
þrengsli og bráður gallsjUkdóm-
ur. Siðustu mánuðina hafði hann
létzt um 14 kiló.
En þetta voru ytri einkenni
sjúkdómsins. 1 raun og veru hafði
Onassis verið „lifandi dáinn” sfð-
an einkasonur hans og erfingi
Alexander, sem nU væri 27 ára ef
hann lifði, fórst i flugslysi 23.
janúar 1973.
— Þegar Alexander dó, fjaraði
liflöngun Onassis Ut, segja vinir
hans. Honum fannst lifið ekki
hafa neinn tilgang lengur. Enginn
var til að taka við þvf sem hann
hafði stritað við að byggja upp.
Oft sagði hann, að hann hefði
enga ánægju af að lifa og hann
vildi gjarnan deyja.
Ást og umhyggja dóttur og
eiginkonu dugði ekki til að rifa
hann upp Ur þunglyndinu, sem
kom yfir hann við sviplegt lát
sonarins. Siðustu árin sýndi hann
fyrirtæki sinu litinn áhuga miðað
viö það sem hann hefði gert áður.
Að visu fór Christina til náms i
skrifstofu hans i' New York, en
hún hefur aldrei sýnt sömu hæfi-
leika til viðskipta og bróðir henn-
ar. En sagt var um Alexander að
hann væri jafnvel meiri fjárafla-
maður en faðirinn.
Jackie var honum stöðu-
tákn
Konur gegndu ávallt mikilvæg-
um hlutverkum i lifi útgerðarjöf-
ursins. Hann dáði þær og þær
hann
— Enginn, sem kynnist Ara,
kemst hjá að hrifast af honum,
sagði Jackie eitt sinn.
Onassis var yfir fertugt þegar
hann giftist Tinu, 17 ára gamla
dóttur Livanosar, forríks grisks
skipaeiganda. Þau eignuðust tvö
börn og allt virtist leika i lyndi.
En þá gekk Maria Callas óperu-
söngkona inn á sviðið, og Tina dró
sig i hlé og giftist enskum aðals-
manni, en Onassis og Callas áttu
saman stromasamt ástarævin-
týri. Þau giftust aldrei. Onassis
fór ekki að hugsa um hjónaband á
ný fyrr en hann fékk áhuga á
ekkju Bandarikjaforseta. Hann
vildi eignast Jackie og vissi að
ekki þýddi að bjóða henni annað
en hjónaband. Fyrir hvorugu
þeirra var þetta stóra ástin. HUn
var leið á að vera tilbeðin eins og
dýrlingur í Bandarikjunum, og
Onassis var i hennar augum sá
maður, sem gat veitt henni
fjárhagslegt og tilfinningalegt
öryggi, sem hún þarfnaðist. Hann
var lika fús til að gefa henni tals-
vert frelsi. Hann skipti sér ekki af
hvar hún var eða með hverjum,
svo lengi sem hún hélt sig innan
vissra marka.
Hann, griski fátæki drengurinn,
sem hafði unnið sig upp i að verða
auðugasti skipaeigandi heims,
átti allt, nema konu sem hann gat
verið stoltur af. Að ganga að eiga
ekkju hins látna Kennedys for-
seta væri geysilegt skref upp á við
i þjóðfélagsstiganum. Hjónaband
þeirra opnaði dyr, sem áður höfðu
verið honum lokaðar.
Hjónaband þeirra vakti griðar-
lega athygli, og þvi var spáð
skammlifi. Fyrstu árin gekk það
e.t.v. ekki of vel, en þegar Jackie
varð ekkja eftir næstum 6 1/2 árs
hjónaband, felldi hún ósvikin tár
við gröf manns sins. Hægt og
örugglega þróaðist gagnkvæm
virðing þeirra á milli og hlýtt
ástarsamband. Við og við komu
myndir f blöðum, sem báru vott
þeirri umhyggju og ást, sem þau
báru i brjósti hvort i hins garð.